Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2007, Blaðsíða 42

Frjáls verslun - 01.02.2007, Blaðsíða 42
42 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7 TÖLVUPÓSTURINN ... UMSJÓN: SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON ... TIL PÁLS GUNNARS PÁLSSONAR, FORSTJÓRA SAMKEPPNISEFTIRLITSINS. Sameining banka hefur verið rædd. Leyfa samkeppnislög frekari sameiningu íslenskra viðskiptabanka? SVAR: Yrði tekið til gaumgæfilegrar skoðunar Spurningunni er ekki hægt að svara fyrirfram og afdrátt- arlaust, enda þarf í hverju samrunamáli að skoða sjálfstætt áhrif á þá markaði sem um er að tefla. Við athugun á samruna er skoðunarefnið hvort viðkomandi samruni hindri virka samkeppni með því að markaðs- ráðandi staða, eins eða fleiri fyrirtækja, verði til eða slík staða styrkist. Ef svo er, getur Samkeppniseftirlitið ógilt samruna eða sett honum skilyrði. Sökum aðstæðna á viðskiptabankamörkuðum er ljóst að samrunar viðskipta- banka yrðu teknir til gaumgæfilegrar athugunar af hálfu Samkeppniseftirlitsins. Það hefur áður verið gert og má í því sambandi vísa til þess að samkeppnisyfirvöld komust að þeirri niðurstöðu árið 2000 að samruni Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf., sem þá var fyrirhugaður, hefði skaðleg áhrif á samkeppni á tilteknum mörkuðum og færi gegn samkeppnislögum. Fallið var frá þeim samruna. ... TIL KJARTANS MAGNÚSSONAR, BORGARFULLTRÚA OG FORMANNS UMFERÐARRÁÐS. Hvaða samgöngubætur á höfuðborg- arsvæðinu eru mest aðkallandi? SVAR: Mislæg gatnamót og Sundabraut Gerð mislægra gatnamóta Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar, ásamt ýmsum lagfæringum á þessum tveimur brautum, meðal annars með stokkalausn, er brýnt verkefni. Nýr meirihluti í borgarstjórn hefur nú tekið af skarið og ákveðið að hafist skuli handa. Huga þarf að mislægum lausnum við fleiri gatnamót enda er reynslan sú að slík mannvirki fækka slysum og greiða fyrir umferð. Almennt er brýnt að setja þær fram- kvæmdir í forgang sem líklegastar eru til að draga úr slysahættu. Lagning Sundabrautar er einnig afar brýnt verkefni, en nú er unnið að hönnun og skipulagn- ingu hennar af fullum krafti. Vanda þarf til alls undirbúnings enda verður Sundabraut stærsta samgöngumannvirki landsins. Fyrsti áfangi hennar mun stórbæta samgöngur við Grafarvogshverfi og er mikilvæg forsenda uppbyggingar í Geldinganesi. Við vegagerð og gatnaframkvæmdir þarf og að taka meira tillit til hagsmuna gangandi og hjólandi vegfarenda. Við hönnun verkefna þarf ætíð að skilgreina öruggar gönguleiðir og hefja þarf átak við lagningu sérstakra hjólreiðastíga milli götu og gangstéttar, eins og gefið hefur góða raun víða erlendis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.