Frjáls verslun - 01.02.2007, Side 43
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7 43
... TIL JÓNS SIGURÐSSONAR,
IÐNAÐAR- OG VIÐSKIPTARÁÐHERRA.
Er röng stefna að virkja nánast eingöngu fyrir
álver og klára þannig alla virkjunarkosti þegar
orkuverð er að hækka?
SVAR:
Villandi spurning
Yfirleitt er virkjað til að auka afkastagetu alls raforkukerfis lands-
manna, en jafnframt er nauðsynlegt að tryggja kaupanda eða kaup-
endur að nógu miklu magni við hvern áfanga til að hann geti stað-
ist. Þannig er villandi að telja að virkjað sé „nánast eingöngu fyrir
álver“ enda þótt álver sé ráðandi kaupandi á þeim tíma þegar ráðist
er í tiltekna framkvæmd.
Með tilliti til stöðu og þróunar rannsókna á þessu sviði er hæpið
að fjalla efnislega um spurningu sem snýr að því að „klára þannig
alla virkjunarkosti“. Með hliðsjón til dæmis af hugmyndum um
djúpboranir verður svar við þessu marklaust.
Samningar falla úr gildi þegar tíma þeirra lýkur, og orkuverð hér-
lendis er tengt álverði á heimsmarkaði. Þess vegna mun orkuverð
hér áfram fylgja verðþróun á heimsmarkaði eins og hingað til. Við
lok samningstíma, til dæmis á 20 til 40 árum, eru nýir samningar
gerðir og miðast þá við nýjar, nú ókunnar, aðstæður. Að hve miklu
leyti raforka verður þá notuð til áliðnaðar er ekki vitað. Nýir samn-
ingar taka mið af verðlagi og verðþróun á hverjum tíma.
... TIL VILHJÁLMS EGILSSONAR, FRAMKVÆMDASTJÓRA
SAMTAKA ATVINNULÍFSINS.
Viðskiptahallinn í fyrra var 305 milljarðar króna.
Stefnir í fall krónunnar?
SVAR:
Eignir þjóðarinnar vanmetnar
Ég hef enga trú á því að krónan falli umtalsvert á næstunni vegna
viðskiptahallans. Ástæðan er sú að þær aðferðir, sem notaðar eru,
mæla ekki raunverulegan viðskiptahalla. Ef staðan væri í raun sú,
að hallinn væri yfir 300 milljarðar króna og að erlendar skuldir þjóð-
arinnar umfram eignir væru 120% af vergri landsframleiðslu væri
vissulega ástæða til að óttast og að mikil hætta væri á efnahags-
legu hruni. Þetta er hins vegar ekki staðan, því eignir þjóðarinnar
erlendis eru mikið vanmetnar svo og tekjur af þessum eignum.
Þannig eru til dæmis lífeyrissjóðir að auka réttindi og greiðslur til
lífeyrisþega vegna verðhækkana á erlendum eignum. Tekjur vegna
þessara verðhækkana eru ekki skráðar en auknar greiðslur til sjóð-
félaga leiða til neyslu og innflutnings og koma fram sem aukinn við-
skiptahalli. Enginn veit hver raunverulegur viðskiptahalli er, en hann
er örugglega hvergi nærri nálægt því sem hann er mældur.
TÖLVUPÓSTURINN ...
... TIL ERNU HAUKSDÓTTUR, FRAMKVÆMDASTJÓRA SAMTAKA FERÐAÞJÓNUSTUNNAR.
Hversu margir erlendir ferðamenn eru væntanlegir til landsins í ár?
Og erum við að fá nægilega efnaða ferðamenn?
SVAR:
Aukning í dýrri þjónustu
Á síðasta ári komu 422 þúsund erlendir ferðamenn til
ársins og fjölgaði þeim um 12,9% frá árinu áður og var
það óvenjulega mikil aukning. Þess ber að geta að allir
eru taldir sem hafa erlent vegabréf, t.d. erlent verkafólk
og aðrir sem koma hingað vegna starfa sinna. Það er
engin ástæða til annars en vera bjartsýn og spá aukn-
ingu áfram, þótt hún verði ekki jafnmikil og í fyrra. Ef til
vill væri ekki fjarri lagi að giska á 450 til 460 þúsund
manns. Þá er ég að líta til síaukins framboðs flugsæta
og gistirýmis. Annars er það ekki höfðatalan sem skiptir
mestu heldur sú þjónusta sem ferðamenn kaupa hér á
landi, hversu miklar gjaldeyristekjur ferðaþjónustunnar eru
á hverjum tíma og atvinnan sem hún skapar. Það hefur
orðið mikil aukning á góðri þjónustu og þar af leiðandi
dýrari, s.s. betri hótelum og veitingastöðum, meiri afþrey-
ingu og svo mætti lengi telja. Allt þetta skapar meiri
tekjur fyrir þjóðarbúið og dregur hingað ferðamenn sem
krefjast góðrar þjónustu.