Frjáls verslun - 01.02.2007, Síða 50
50 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7
draumur átti eftir að verða að veruleika þegar
ég ferðaðist um Austurlönd fjær og fór í nám
til Indlands,“ segir Andri.
Ráðgjafar- og markaðsstarf
Þegar Andri hóf nám á fjórða ári í viðskipta-
fræði segist hann hafa verið orðinn vanur að
hafa peninga á milli handanna og þess vegna
hafi hann unnið með námi. „Ég tók að mér
að reka kvikmyndahúsið Regnbogann fyrir
Jón Ólafsson og var þar í eitt ár eftir að ég
útskrifaðist af fjármálasviði 1992. Starfið
fólst að stórum hluta í markaðssetningu og
ég kynntist henni því vel. Í framhaldi af því
var mér boðið að verða markaðsstjóri hjá
Almenna bókafélaginu og starfaði þar til
1995. Starfið hjá AB var bæði skemmtilegt
og spennandi og þar settum við meðal ann-
ars á laggirnar Matar- og vínklúbb Sigga
Hall, Tónlistarklúbb AB og önnur áhugaverð
verkefni.
Næsta verkefni var að skrifa viðskipta-
áætlun um rekstur á nýrri sjónvarpsstöð
fyrir Frjálsa fjölmiðlun og fleiri aðila en eftir
það var ég ráðinn sem fjármálastjóri hjá Lýsi
hf. Fyrirtækið hafði átt í töluverðum erf-
iðleikum í rúman áratug og það þurfti því
að taka hraustlega til hendinni til að bjarga
því. Eftir tiltekt lögðum við mikla vinna í
vöruþróun og við settum meðal annars á
markað Heilsutvennuna og Krakkalýsið sem
seljast enn mjög vel.
Við hófum einnig útflutning til Kína
og ég fór nokkrum sinnum þangað, auk
þess til Malasíu og Tælands. Árið 1999 var
ég orðinn aðstoðarforstjóri en þá urðu eig-
endaskipti hjá Lýsi og nýir eigendur létu mig
og fleiri stjórnendur róa. Slíkt hafði aldrei
komið fyrir mig áður, en eftir á að hyggja var
ágætt að hafa kynnst þeirri reynslu því sjálfur
hafði ég verið blóðugur upp fyrir axlir að
segja mönnum upp á meðan við vorum að
rétta reksturinn við,“ segir Andri.
Í nám til Hollands og Indlands
Næst starfaði Andri sem framkvæmdastjóri
hjá Íslenskri miðlun og ráðgjafi hjá KEA
vegna Efnaverksmiðjunnar Sjafnar. Haustið
2000 hóf hann MBA-nám við Rotterdam
School of Management í Hollandi og það
tók átján mánuði. Hluti námsins fór fram
hér heima og þá starfaði Andri hjá Íslands-
banka. Að eigin sögn öðlaðist hann gríð-
arlega reynslu þar í tengslum við mál sem
tengdust Arcadia og Bills Dollar Stores og
skrifaði m.a. hagkvæmniskönnun í tengslum
við opnun útibús frá Íslandsbanka í Kan-
ada. Andri kynntist Ragnheiði sambýliskonu
sinni einnig á þessum tíma.
,,Sem hluta af MBA-náminu tók ég eina
önn á Indlandi, flutti þangað í ágúst 2001
og fór í skóla sem heitir India Institute of
Management í Ahmedabad og þykir einn
fremsti viðskiptaháskóli í Asíu. Hugmyndin
var upphaflega að fara til Kína en ég valdi
Indland í staðinn þar sem skólinn þar þykir
mun betri.
Ég tel reynsluna af Indlandsdvölinni hafa
verið mjög mannbætandi. Inn á milli verk-
efna í skólanum ferðaðist ég um landið í
lestum með innfæddum og hlekkjaði mig
og farangurinn við bekkinn á meðan ég svaf.
Ég kynntist miklum andstæðum, sá mikið
ríkidæmi og ótrúlega fátækt. Fyrir utan gott
nám öðlaðist ég nýja sýn á Indland og nýtt
sjónarhorn á tilveruna. Eftir dvölina þar
hef ég lagt annað mat á lífsgæði. Ég á góða
vini á Indlandi sem ég held tengslum við og
heimsótti fyrir tveimur árum,“ segir Andri.
Kaupir Ölgerðina og Danól
Andri kom heim frá Hollandi í maí 2002 og
réð sig sem framkvæmdastjóra fjármálasviðs
hjá Ölgerðinni en var ráðinn forstjóri árið
2004. „Þá var mörkuð sú stefna hjá Ölgerð-
inni að þróa drykki sem eru ekki bara betri á
bragðið heldur einnig hollari fyrir neytendur.
Við riðum á vaðið með Kristal plús og sú
ákvörðun borgaði sig svo sannarlega því nú
er hann næstsöluhæstur gosdrykkja í hálfs-
lítraflöskum hérlendis,“ segir Andri.
Í janúar síðastliðinn réðust Andri og
Októ Einarsson í að kaupa Danól og Ölgerð-
A N D R I Þ Ó R G U Ð M U N D S S O N Í N Æ R M Y N D
Árin í Verslunarskólanum voru
rosalega skemmtileg og ég fékk strax
brennandi áhuga á félagsmálum
en þrátt fyrir að eyða stórum hluta
sólarhringsins í skólanum gerði ég
flest annað en að læra.