Frjáls verslun - 01.02.2007, Side 52
52 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7
A N D R I Þ Ó R G U Ð M U N D S S O N Í N Æ R M Y N D
Októ Einarsson:
Hann er vonlaus
vínsafnari
Októ Einarsson, fram-
kvæmdastjóri hjá
Daníel Ólafssyni hf.,
segir að í stuttu máli
sé Andri Þór góður
drengur, traustur og
skemmtilegur. ,,Ég
kynntist honum fyrir
fjórum árum í gegnum
vinnuna og síðan þá höfum við orðið góðir
vinir og átt góðar stundir bæði í vinnu
og utan hennar. Andri er skarpgreindur,
talnaglöggur og fljótur að greina aðal-
atriðin. Einnig er kostur að hann er orðvar
og stendur við það sem segir og ætlar sér.
Hann er kröfuharður á samstarfsfólk sitt
og að sama skapi á sjálfan sig og er mjög
vinnusamur. Jákvæðni hans og vilji til verka
verður þess valdandi að hann skapar fljótt
góðan liðsanda og fólk er tilbúið til að fylgja
honum og taka þátt í erfiðum verkefnum
sem hann stjórnar.
Andri hefur þægilega nærveru því hann
er ávallt léttur í skapi og liggur jafnan vel
á honum. Hann er mjög vandur að virðingu
sinni og því er erfitt að segja frá einhverju
klaufalegu um hann nema þá helst að ég tel
hann vonlausan vínsafnara þrátt fyrir góða
tilburði og einu sinni heyrði ég hann segja
að lífið væri of stutt til að vera að geyma öll
þessu góðu vín sem Ölgerðin flytur inn.“
Atli Atlason:
„Já, ég
er orku-
maður“
„Við Andri kynntumst
í Verslunarskólanum
og vorum einnig samferða í gegnum við-
skiptafræðina við Háskóla Íslands,“ segir
Atli Atlason, framkvæmdastjóri starfsmanna-
sviðs Landsbanka Íslands.
„Andri er einn af mínum bestu félögum
og mjög traustur vinur. Hann laðar að sér
fólk og á stóran vinahóp sem hann heldur
saman og sinnir vel. Andri er einlægur og
skemmtilegur og fáir sem er eins gaman
að heimsækja og hann og fjölskyldu hans.
Vinnan hefur alla tíð spilað stórt hlutverk í
lífi Andra og hann því unnið mikið og sinnt
sínu starfi mjög vel og af áhuga.
Andri hefur gaman af því að fara á skíði
en hefur aldrei verið íþróttamaður í eðli sínu
og mætti yfirleitt á sokkunum eða berfættur
í íþróttir í Verslunarskólanum. Hann hefur
þó sótt í sig veðrið í seinni tíð og stundað
badminton, laxveiði og almenna líkamsrækt
sér til skemmtunar og heilsubótar. Á tímabili
hafði Andri mikinn áhuga á vínsöfnun og við
hittumst nokkrir félagar einu sinni í mánuði
til að smakka vín og gefa þeim einkunn.
Satt best að segja held ég að hann hafi ekk-
ert vit á víni, frekar en við hinir, þrátt fyrir að
hann haldi annað. Án gríns þá er Andri vand-
virkur í öllu sem hann tekur sér fyrir hendi
og er flinkur viðskiptafræðingur. Honum hafa
í gegnum tíðina verið falin erfið og vanda-
söm verkefni í vinnu og félagsstörfum, sem
hann hefur leyst af stakri prýði og segja má
um Andra að hann sé leiðtogi í eðli sínu.
Andri á það stundum til að vera dálítið
óheppinn sem getur tengst því að hann
heyrir stundum illa. Hann var eitt sinn kjör-
inn varamaður í stjórn Orkuveitunnar af
Sjálfstæðisflokknum en þurfti sjaldan að
mæta á fundi. Einu sinni þegar hann var
boðaður á fund var hann spurður af sam-
flokksmanni sínum hvort hann væri ekki
okkar maður eins og það var orðað. Andri
misheyrði og svaraði hátt og skýrt yfir fund-
inn: „Já, ég er orkumaður,“ öllum til mikillar
furðu. Hann áttaði sig reyndar fljótlega á
mistökunum en hann var ekki boðaður á
fleiri fundi eftir það, þrátt fyrir að vera mikill
orkubolti,“ segir Atli.
Ásdís Halla Bragadóttir:
Heldur alltaf
ótrauður áfram
Ásdís Halla Bragadóttir, forstjóri Byko hf.,
kynntist Andra fyrst þegar þau voru í stúd-
entapólitíkinni í Háskóla Íslands og þau
voru bæði að vinna fyrir Vöku. „Í mínum
huga er Andri hreint út sagt frábær maður,
skemmtilegur og mikill félagi. Hann er
jákvæður, bjartsýnn og traustur einstakl-
ingur sem er gaman að umgangast og sem
vinur og félagi er hann óaðfinnanlegur. Andri
er félagsvera sem hefur gaman af því að
hitta fólk og gera eitthvað skemmtilegt eins
að fara í bíó, keilu eða útilegu og bjóða
í mat og grilla. Með aldrinum hefur hann
lagað þetta að fjölskyldumynstri fólks og
býður börnum vina sinna með í matarboðin.
Hann skipuleggur leiki við allra hæfi þannig
að foreldrar leika á móti börnunum og reynt
er að láta alla hafa gaman af.
Fyrir um það bil 15 árum fórum við
nokkrir vinir saman í útilegu vestur á
Snæfellsnes. Eitt af því sem við gerðum í
ferðinni var að fara á hestbak á bæ sem
leigði út hesta. Það var mikið stuð á mann-
skapnum þegar við komum í hlað og allir
kátir. Bóndinn átti ekki nógu marga hnakka
handa öllum og spurði hvort einhver vanur
hestamaður væri í hópnum sem kynni að
ríða berbakt. Andri bauð sig strax fram þrátt
fyrir að kunna lítið sem ekkert að sitja hest.
Honum er vísað á klár sem stóð á hlaðinu
og Andri vippaði sér á bak eins og vanur
maður. Hesturinn var hinn rólegasti en um
leið og hann fór af stað byrjaði Andri að
síga hægt og rólega út á aðra hliðina hætti
ekki fyrr en hann var kominn undir hestinn
og lá þar á jörðinni og klárinn yfir honum.
Sem betur fer meiddist hann ekkert og við
vorum náttúrulega öll að springa úr hlátri.
Andri lá þarna smástund á meðan hann var
að átta sig á stöðunni en lét þetta þó ekki
á sig fá og stóð upp og dustaði af sér rykið.
Hann fékk svo annan hest og hélt áfram
eins og ekkert hefði í skorist. Satt best
að segja þykir mér þessi saga lýsa Andra
ágætlega. Hann er alltaf boðinn og búinn að
hoppa á bak jafnvel þótt hann sé að taka
áhættu og lætur það
ekki þvælast fyrir sér
þótt hann detti af baki.
Andri stendur alltaf
jafnharðan upp aftur og
heldur ótrauður áfram,“
segir Ásdís Halla.
S
AG
T
U
M
A
N
D
R
A
ÞÓ
R
G
U
Ð
M
U
N
D
S
S
O
N
Vertu skrefi á undan
Flugkort Flugfélags Íslands er greiðslu- og
viðskiptakort sem veitir handhöfum sínum drjúgan
afslátt af fargjöldum, gistingu og bílaleigu.
Greiða má með Flugkortinu flugfarseðla með
Flugfélagi Íslands, hótelgistingu og bílaleigu hjá
þeim fyrirtækjum sem eru í samstarfi
við Flugkortið.
Upplýsingar um Flugkortið færðu hjá
Fyrirtækjaþjónustu Flugfélags Íslands
í síma 570 3606.
flugkort@flugfelag.is
Ungt flugfélag með sjötíu ára reynslu.
flugfelag.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/F
L
U
3
67
03
0
3/
07
Láttu Flugkortið greiða þér leið