Frjáls verslun - 01.02.2007, Side 55
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7 55
að markaðsvirði, meðalstór félög (Mid cap)
sem eru á bilinu 150 milljónir evra til eins
milljarðs evra að markaðsvirði og smá félög
(Small cap) sem eru félög undir 150 millj-
ónum evra að markaðsvirði. Vísitölur verða
tengdar við hvern flokk. Athyglisvert er að
íslensk félög verða tiltölulega fyrirferðarmikil
meðal stórra félaga en þriðjungur skráðra
félaga í Kauphöllinni tilheyrir þeim flokki,
sem er langtum hærra hlutfall en í öðrum
kauphöllum OMX.“
5. Hvað verður um íslensku úrvalsvísitöl-
una? Haldið þið áfram með hana?
„Úrvalsvísitalan verður áfram reiknuð í
núverandi mynd. Byggðar verða afleiður
á hana en afleiðumarkaður verður settur á
stofn í vor.“
6. Hvernig áttu von á að framhaldið
verði á þróun úrvalsvísitölunnar?
„Verðlagning hlutabréfa á íslenska mark-
aðnum virðist í eðlilegu samhengi við hefð-
bundna mælikvarða, t.a.m. hagnað, og einnig
er hún í ágætu samræmi við verðlagningu á
alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum. Til lengri
tíma mun þróun úrvalsvísitölunnar því fyrst
og fremst velta á vexti hagnaðar félaganna. Sé
tekið mið af árangri síðustu missera í þeim
efnum er engu að kvíða.
Erfitt er að ráða í skammtímaverðsveiflur.
Fylgni við erlenda markaði hefur aukist
mikið, sem er eðlilegt í ljósi alþjóðavæðingar
skráðu félaganna. Við höfum því eðlilega
fundið fyrir þeirri ólgu sem verið hefur
á alþjóðlegum verðbréfamörkuðum undan-
farnar vikur en hana má m.a. rekja til auk-
innar áhættufælni, þ.e. fjárfestar eru að verða
varkárari í fjárfestingum. Líklegt er að þessi
taugatitringur vari eitthvað lengur og íslenski
markaðurinn mun vafalaust ekki fara var-
hluta af þeim sveiflum sem verða á erlendum
verðbréfamörkuðum á árinu.“
7. Hvernig verður tæknimálum háttað
í kauphöllinni nú? Verður hún áfram
í sama húsnæði? Fækkar eða fjölgar
starfsmönnum?
„Viðskiptakerfið, hjartað í kauphallarrekstri,
verður óbreytt, enda sama kerfi og notað er
í öðrum kauphöllum OMX. Margt annað
breytist í tækniumhverfi Kauphallarinnar,
s. s. fréttakerfið, ýmis reiknikerfi, heimasíða
og skrifstofukerfi. Kauphöllin verður áfram
í sama húsnæði - hér líður okkur vel. Ekki
eru að svo stöddu áform um að breyta
starfsmannafjöldanum sem neinu nemur.
Það verður hins vegar skoðað vandlega að
auka umsvif OMX á Íslandi í framtíðinni,
fjölga starfsmönnum, m. a. vegna þess að
skattaumhverfi fyrirtækja er hagstæðara hér á
landi en annars staðar á Norðurlöndum.“
8. Hvernig eru efnahagshorfur í heim-
inum um þessar mundir, að þínu mati?
Er hagvaxtarskeiðinu að ljúka eins og
Greenspan spáir fyrir um?
„Það er skjálfti í mönnum sem byrjaði með
9% lækkun markaða í Shanghai í lok febrúar
og hefur síðan sótt á menn aftur og aftur.
Upphafið verður þó ekki í Shanghai ef af
efnahagslægð verður. Samanlagt er verð-
mætið á hlutabréfamörkuðunum í Kína
rétt um 5% af verðmæti bandaríska
markaðarins. Hættan liggur einkum í
fasteignamarkaðnum í Bandaríkjunum.
Þar hafa lánveitingar til húskaup-
enda með lélegt lánstraust auk-
ist gífurlega á undanförnum
árum. Fyrirtæki sem staðið
hafa að slíkum lánveitingum
sjá nú fram á erfiða tíma
(New Century Financials).
Og margir halda því reyndar
fram að áhætta í fjármálagern-
ingum víða um heim hafi verið
vanmetin um langt skeið. Ég
tel að þetta leiði til þess að áfram
sæki skjálfti að mönnum af og til
fram eftir ári. Ef efnahagslægð
mun verða að veruleika liggja
skýringarnar einhvers staðar
þarna. Það kann þó að vera
að Greenspan sé of svartsýnn
þegar hann metur líkur á lægð
upp á 30%.“
F J Á R M Á L
Þórður Friðjónsson, forstjóri OMX Nordic Exchange In Iceland.
„Það verður hins vegar
skoðað vandlega að auka
umsvif OMX á Íslandi í
framtíðinni, m. a. vegna
þess að skattaumhverfi
fyrirtækja er hagstæðara
hér á landi en annars
staðar á Norðurlöndum.“