Frjáls verslun - 01.02.2007, Síða 65
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7 65
H J Á L M A R W. H A N N E S S O N S E N D I H E R R A
- En hefur þú aldrei saknað kennslunnar í MR?
„Ég hafði mjög gaman af að kenna í MR og naut þess. Það voru frábær
sjö ár. En þegar ég lít til baka sé ég ekki eftir því að hafa gengið til liðs
við utanríkisþjónustuna. Ég vona að það hljómi ekki væmið, en það
er oft svo gaman í þessari vinnu að mér verður hugsað til þess að ég
sé á kafi í áhugamáli mínu frekar en vinnunni. Það eru mikil forrétt-
indi að vinna í „þjónustunni“ og fá að vafstra í því sem manni finnst
skemmtilegt.“
Þegar við rifjum upp árin í kennslunni í MR segir hann skemmti-
lega sögu af því þegar vinur hans og fyrirmynd í kennslunni, Jón
Guðmundsson íslenskukennari, tók hann undir sinn verndarvæng og
ráðlagði honum heilt.
„Jón var afbragðskennari og skemmtilegur. Ég leit mjög upp til
hans. Ég kenndi mest í fimmta og sjötta bekk, en við hjónin stóðum
í íbúðakaupum á þessum tíma, eins og flest annað ungt fólk, og því
bætti ég við mig kennslu í þriðja bekk. Jón var umsjónakennari þriðja
bekkjar á þessum tíma. Ég var ekkert að breyta aðferð minni í sam-
skiptum við nemendur þó þeir væru á fyrsta ári í skólanum. En Jón,
sem hafði tekið mig undir sinn verndarvæng, kom til mín og sagði
nokkuð alvarlegur: Hjálmar, ég heyri að það er alltaf svolítil kátína í
kringum þig og þú hlærð mikið með nemendum. Ég held að það sé
gott í hófi – en á haustönninni, fram að jólum, borgar sig að vera alvar-
Á göngu okkar um byggingu SÞ hitti Hjálmar forseta allsherjarþingsins.
Hún heitir Haya Rashed Al Khalifa og er frá Bahrein.
Sameinuðu þjóðirnar
Sameinuðu þjóðirnar eru hnattræn
stofnun sem nánast öll ríki heims
eiga aðild að; komið á fót árið 1945
eftir lok seinni heimsstyrjaldarinnar.
Meðal sex aðalstofnana Samein-
uðu þjóðanna eru Allsherjarþingið,
skipað fulltrúum allra aðildarríkja
sem núna eru 192 talsins en voru 51 í upphafi árið 1945, og
Öryggisráðið, skipað 15 ríkjum, en fimm þeirra, Bandaríkin,
Bretland, Frakklandi, Kína og Rússland, eiga þar fast sæti
og hafa neitunarvald. Hin tíu ríkin eru kosin til tveggja ára
í senn af allsherjarþinginu. Greiði fastaríki í öryggisráðinu
atkvæði gegn tillögu nær hún ekki fram að ganga.
Hinar aðalstofnanir Sameinuðu þjóðanna eru Efnahags- og
félagsmálaráðið, Gæsluverndarráðið (fá verkefni eftir), Skrifstofa
Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðadómstóllinn í Haag.
Skrifstofu Sameinuðu þjóðanna stjórnar aðalfram-
kvæmdastjóri (aðalritari), kosinn af Allsherjarþinginu, sam-
kvæmt uppástungu Öryggisráðsins. Mikilsverð starfsemi SÞ
fer fram á vegum sérstofnana.
Ísland gerðist aðili að Sameinuðu þjóðunum 19. nóv-
ember árið 1946 ásamt Svíþjóð og Afganistan. Þau voru
fyrstu þrjú ríkin sem fengu inngöngu í SÞ á eftir stofnríkj-
unum.
Sameinuðu þjóðirnar tóku við af Þjóðabandalaginu, en
það voru alþjóðasamtök til varðveislu friðar í heiminum,
stofnuð 1919, einkum að frumkvæði W. Wilson Bandaríkja-
forseta. Þjóðabandalagið var með aðsetur í Genf.
Horft yfir sal öryggisráðsins í byggingu Sameinuðu þjóð-
anna; hér vilja Íslendingar sitja 2009-2010.