Frjáls verslun - 01.02.2007, Page 66
66 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7
H J Á L M A R W. H A N N E S S O N S E N D I H E R R A
legur við þriðju bekkinga.“ Jón fól svo Hjálmari að hafa umsjón
með þriðju bekkingum í hinu sögufræga húsi, Þrúðvangi.
Hjálmar hefur eðlilega víða komið við í utanríkisþjón-
ustunni. Hann tók við núverandi starfi; sem fastafulltrúi og
sendiherra Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, haustið 2003,
en hafði áður m.a. verið sendiherra í Kanada, Þýskalandi og
Kína, auk þess sem hann hefur gegnt stöðu skrifstofustjóra
Alþjóðaskrifstofu í utanríkisráðuneytinu.
Hann var sendiherra Íslands í Þýskalandi þegar Berlínar-
múrinn féll árið 1989 og Þýskaland endursameinaðist 1990.
Það var söguleg stund sem lét engan ósnortinn – það var ekki
bara múrinn sem féll heldur kommúnisminn í Austur-Evrópu.
Kalda stríðinu lauk.
Hjálmar var fyrsti sendiherra Íslands sem búsettur var í
Kína og hóf rekstur sendiráðsins í Peking í janúar 1995. Hann
segir að fyrsta hálfa árið hafi verið erfitt, m.a. vegna mikillar
húsnæðiseklu í Peking; ekki síst þar sem fjölmörg nýfrjáls ríki
settu á laggirnar sendiráð í landinu á sama tíma.
„Árin í Kína voru mikið ævintýri. Fyrsta hálfa árið var erfitt
vegna húsnæðiseklunnar. Við vorum fyrstu sex vikurnar á hót-
elherbergi og í Kína var auðvitað allt annar menningarheimur
en við höfðum áður kynnst. Þegar hjólin fóru síðan að snúast
var einstaklega gaman að búa þarna og takast á við þau mörgu
verkefni sem blöstu við; t.d. að byggja upp viðskiptatengsl og
standa að margs konar menningarsamkomum.
Það hefur verið ævintýralegur uppgangur í kínversku efna-
hagslífi á síðustu fimmtán árum. Núna er Kína viðskiptarisi.
Þegar farið er í verslanir hér í Bandaríkjunum fá menn það á
tilfinninguna að allar vörur séu meira og minna unnar í Kína.
Uppbyggingin í Kína byrjaði í stórborgunum og við
strendur landsins – og fólki í sveitunum finnst það hafa orðið
útundan. Kínverjar eru 1.300 milljónir og það segir sig sjálft að
það er ekki auðvelt að halda utan um svo mikinn fjölda.“
Hjálmar segir að eitt minnisstæðasta verkefnið í Kína hafi
verið þegar þar var haldin hin mikla kvennaráðstefna Samein-
uðu þjóðanna í Peking þar sem Vigdís Finnbogadóttir forseti
tók þátt.
„Þessi ferð Vigdísar til Kína var jafnframt opinber heimsókn
– sem einhverjum heima þótti umdeilt vegna umræðna um
mannréttindamál í Kína. Vigdís forseti hins vegar kom, sá
og sigraði. Hún var virkur þátttakandi í kvennaráðstefnunni
og kom skoðunum okkar Íslendinga á framfæri við kínverska
ráðamenn á fundum við ýmis tækifæri. Heimsókn hennar
var mikil lyftistöng fyrir hið nýja íslenska sendiráð – opnaði
Anna Birgis (t.h.) eiginkona Hjálmars og Nane Annan í kveðjuboði sem makafélag fastafulltrúa hjá S.Þ. héldu fyrir Nane, eiginkonu Kofi Annan.