Frjáls verslun - 01.02.2007, Side 76
76 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7
T
om Hunter er ekki einn af þeim
sem dreymdi um að auðgast til
að gera svo ekki neitt – í viðtali
hefur hann sagt að hann geti
einmitt ekki ímyndað sér neitt
verra en að gera ekki neitt. Þessi auðugasti
maður Skotlands heitir fullu nafni Thomas
Blane Hunter og nú Sir Tom Hunter.
Hunter er öflugur talsmaður frumkvöðla-
starfs í viðskiptum, stundar fjárfestingar
jöfnum höndum við góðgerðastarfsemi,
bæði heima í Skotlandi og svo í fátækum
þriðjaheimslöndum, meðal annars í slagtogi
við Bill Clinton fyrrum forseta Bandaríkj-
anna. Fyrir mannúðarmál og umsvif í þágu
frumkvöðlahugsunar var hann aðlaður 2005
og er því Sir Tom Hunter.
Á Íslandi hefur þessi sköllótti og snagg-
aralegi Skoti fjárfest í námunda við Baug.
Hann á sjálfur tæplega 3% hlut í FL Group.
Að sögn kynntust þeir Jón Ásgeir og Hunter
á lystisnekkju Philips Green 2001.
Baugur studdi svo Hunter í tilraunum
hans til að kaupa House of Fraser árið
2003 sem gengu þó upp en Hunter kom að
kaupum Baugs á HoF í fyrra, á 11% þar. Það
hefur ekki farið mikið fyrir því í fréttum en í
samstarfi við Bank of Scotland hafa Baugur
og Hunter fjárfest í fasteignum, þar á meðal
í LXB Holdings sem þeir seldu í fyrra fyrir
200 milljónir punda, um 26 milljarða króna,
en höfðu árið áður selt annað svipað fyr-
irtæki fyrir 360 milljónir punda, um 46,8
milljarða króna.
Hunter heldur sig í fasteigna- og bygg-
ingageiranum. Hann keypti nýlega eitt slíkt
fyrirtæki, Crest Nicholson, í samvinnu við
HBOS, fyrir 715 milljónir punda, um 93
milljarða króna. Þá komst hann nýlega
í fréttirnar þegar hann keypti blóma- og
garðyrkjukeðjuna Blooms of Bressingham.
Baugur var þátttakandi í þeirri yfirtöku.
Á auðmannalista Sunday Times í fyrra
voru eignir hans metnar á 780 milljónir
punda, um 102 milljarða króna, og þær
hafa örugglega ekki rýrnað síðan þrátt fyrir
gjafmildi hans.
Trúir á frumkvöðlaandann
Hunter ólst upp í skoskum námubæ, sonur
kaupmanns þar. Þegar námunum var lokað
breyttist lífið í bænum. Hunter hefur síðar
sagt að þessi reynsla hafi gert hann ákveðinn
í að vera ekki öðrum háður. Hann tók próf í
markaðsfræðum og hagfræði frá Strathclyde
háskólanum 1982 og fór þá að svipast um
eftir viðskiptatækifærum.
Með lán upp á fimm þúsund pund og
40 pund á viku í vasapeninga að heiman fór
hann að selja íþróttavörur og 1989 opnaði
hann fyrstu íþróttavörubúðina sína. Á næstu
árum byggði hann upp Sports Division
BÆÐI GRÆÐIR
OG GEFUR
TEXTI: SIGRÚN DAVÍÐSDÓTTIR
MYNDIR: ÝMSIR
Skotinn Tom Hunter er einn
ríkasti maður Bretlands.
Nýlega eignaðist hann tæp-
lega 3% hlut í Glitni. Þá hafa
borist fréttir um að hann
hafi farið til Indlands með
Jóni Ásgeiri Jóhannessyni
en leiðir þeirra hafa legið
nokkrum sinnum saman á
undanförnum árum.
L U N D Ú N A P I S T I L L S I G R Ú N A R
SIR TOM HUNTER: