Frjáls verslun - 01.02.2007, Blaðsíða 109
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7 109
Perla Investment leggur megináherslu á að veita kaupendum og
eigendum góða þjónustu allt frá því þeir fara að hugleiða húsakaup
þar til gengið hefur verið frá kaupum. Eftir að kaupandinn er farinn
að nýta húsið til dvalar eða útleigu getur hann enn notið margvís-
legrar þjónustu Perlu.
Langbestu lánin og lengsti lánstíminn Orri segir að Perla Invest-
ment bjóði langbestu fáanleg lán á Spáni. Þar beri öll fasteignalán
Evrópuvexti auk álags sem nú er 0,85% svo að vaxtaprósenta sé nú
4,9%. Perla geti útvegað viðskiptavinum allt að 100% bankalán til 40
ára, eða til 85 ára aldurs kaupanda. Ástæða þessara góðu kjara sé það
traust og sá styrkur sem fyrirtækið njóti á Spáni. „Við seljum aðeins
eignir sem standast 100% bankamat sem er skilyrði fyrir góðum
lánskjörum. Ennfremur útvegum við bankaábyrgð á greiðslum fyrir
viðskiptavini okkar, óski þeir þess.“
Perla selur aðallega nýtt íbúðarhúsnæði, auk endursölu eigna.
Þegar fólk hefur ákveðið hvar það vill vera finna starfsmenn fyrirtæk-
isins alltaf hús sem fellur kaupandanum í geð. Verð á fasteignum er
dýrast við ströndina og í stórum borgum en verð fer líka alltaf eftir
umhverfinu. „Sumt húsnæði og staðir eru leiguvænni en aðrir og
verðið annað,“ segir Orri. „Við fasteignakaup verður fólk að huga vel
að umhverfinu. Sé húsið ekki í „alfaraleið“ eða fjarri þjónustu kann
það að koma niður á leigumöguleikum, þótt eignin geti vissulega
verið góð fjárfesting til framtíðar. Viðskiptavinir Perlu á Spáni eru
ekki aðeins Íslendingar heldur fólk af ýmsu þjóðerni; Norðmenn,
Svíar, Færeyingar, Bretar, Írar og Þjóðverjar, enda ekki hægt að byggja
upp jafnviðamikla starfsemi og raun ber vitni til þess eins að selja
Íslendingum húseignir.“ Spánverjar kaupa líka mikið af Perlu því að
algengt er að fólk í borgum vilji eiga frístundahús nálægt ströndinni.
Fjölþætt þjónusta Perlu Perluskrifstofurnar á Spáni eru meira en
fasteignasölur. „Við leggjum mikið upp úr aðstoð og þjónustu við
viðskiptavini okkar fyrir og eftir húsnæðiskaup,“ segir Auður. „Þjón-
ustudeild Perlu veitir alla hugsanlega þjónustu tengda fasteigna-
kaupunum og auðveldar fólkið lífið. Við önnumst útleigu fasteigna,
samninga við öryggisfyrirtæki, viðhald, ræstingar, útvegum iðn-
aðarmenn og ótalmargt fleira. Auk þess bjóðum við viðskiptavinum
upplýsingar varðandi innskráningu í landið, skólamál, heilbrigðismál,
atvinnuumsóknir, um kaupferli, kostnað við kaup og rekstrarkostnað
auk lögfræðiráðgjafar. Á upplýsingablöðum okkar má fræðast um
staði þar sem mest er selt af fasteignum og um spænskar borgir og
bæi. Þar er líka að finna fróðleik um hátíðahöld á Spáni og fræðslu
um Miðjarðarhafið. Loks erum við með ferðaþjónustu, skipuleggjum
stuttar og langar ferðir og leiðbeinum fólki svo það geti kynnst Spáni
sem best og lært sem mest um umhverfið.
Framkvæmdastjóri Perla Investment á Íslandi er Eiríkur Bragason
verkfræðingur sem stýrir verkefnum og annast daglega stjórnun.
Starfsmenn Perla Investment á Íslandi og á Spáni eru 16 talsins; lög-
giltur fasteignasali, lögfræðingar, verkfræðingur, löggiltur endurskoð-
andi, fjárfestingaráðgjafar og aðrir starfsmenn, íslenskir og spænskir,
en allir íslensku starfsmennirnir á Spáni tala spænsku.
Ánægja viðskiptavinanna hefur alltaf verið
leiðarljós Perlu Investment. Reynsla Perlu
síðustu 10 árin sýnir að kaupendur leggja
megináherslu á gæði húseigna, góða
staðsetningu og góða þjónustu við eigendur.
Starfsmenn Perla Investment á Íslandi, f.v.: Guðlaugur Guðmundsson, Tara Sif Þrastardóttir, Kristín Þórðardóttir, Jóhann Ingvason, Auður
Hansen, Orri Ingvason og Arnar Már Ottósson. Eiríkur Bragason framkvæmdastjóri var fjarverandi vegna starfa erlendis.
Process
c 0, m 27, y 90, k 0 c 95, m 94, y 0, k 4
Grensásvegur 13 108 Reykjavík
Sími: 545 0300 Fax: 545 0309 www.perla.is