Frjáls verslun - 01.02.2007, Page 110
110 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7
K
YN
N
IN
G
TEKNÍS:
Leggja metnað sinn
í að gera hlutina vel
A llir sem eiga sumarbústað eða bara hús í borg eða bæ og vilja loka af landi sínu eða lóð með hliði ættu að kynna sér verk málmiðnaðarmannanna í Teknís í Garðabæ. Þar
er hægt að fá smíðaðar hliðgrindur og hliðstólpa
af öllum stærðum og gerðum og láta síðan skera
út nafn bústaðarins, húsnúmer eða götuheiti eftir
þörfum. Já, það má meira að segja bjóða gesti
velkomna með fallegum orðum sem skorin eru út í
plötu í hliðgrindinni..
Jón Þór Sigurðsson er framkvæmdastjóri Teknís.
Hann segir að vélsmiðjan sé byggð á gömlum grunni
því upphafsmaðurinn hafi verið faðir hans, Sigurður
Jónsson, sem stofnaði um 1960 Vélsmiðju Sigurðar
Jónssonar og þá á svipuðum slóðum og Smáral-
indin er nú. Vélsmiðja Sigurðar smíðaði mikið af
tönkum fyrir olíufélögin „en við höfum víkkað
starfsemina töluvert út,“ segir Jón Þór, „þótt Teknís
smíði reyndar líka tanka þá hefur fyrirtækið gert
fleira, t.d. lagt ryðfrí rör í orkuverið á Hellisheiði,
smíðað göngubrúna við Sóltún og ótalmargt annað
á höfuðborgarsvæðinu og út um allt land.“ Jón Þór
leggur áherslu á að menn leggi mikinn metnað í störf sín hjá Teknís
en þar starfa nú 14 manns.
Hliðgrindurnar og fánastengur „Á síðasta ári hófum við framleiðslu
sumarhúsahliða og bjóðum nú nokkrar mismunandi útfærslur en
hliðeiningunum má raða saman eftir þörfum hvers og eins. Síðan
skerum við út nöfn og annað í hliðgrindurnar eftir óskum manna.“
Fánastangir eru einnig meðal þess sem Teknís framleiðir og er
óneitanlega töluverður stærðarmunur á verkefnum
fyrirtækisins, annars vegar risatankar en hins vegar
litlar fánastengur fyrir borðfána. Jón Þór segir að
félagi hans í Rotary-klúbbnum í Grafarvogi, Björn
Tryggvason, hafi fengið hugmyndina að fánastöng-
unum og sé með einkaleyfi á framleiðslunni. Einfalt
er að raða fánastöngunum saman þegar ekki er
verið að nota þær og taka þær þá ótrúlega lítið pláss.
Menn eru að þreifa fyrir sér á markaðinum varðandi
sölu á stöngunum og þegar hafa hótel sýnt þeim
áhuga, enda þarf oft að stilla upp fjöldamörgum
fánum á stöng í ráðstefnu- og fundarsölum. Teknís
er með tæki frá ítalska fyrirtækinu Nitty Gritty
og með þeim má grafa á málmplötur svo ekkert
er einfaldara en að merkja fánastengurnar. Nitty
Gritty búnaðurinn er einnig notaður til að hreinsa
bláma af ryðfríu stáli eftir suðu.
Árið 2005 keypti Teknís tölvustýrða plasma-
skurðarvél sem er með því nýjasta á þessu sviði. Vélin getur skorið
út hvað sem er úr öllum leiðandi málum og hefur Teknís þjónustað
aðrar smiðjur með þessum búnaði. Teknís vinnur aðallega úr svörtu
og ryðfríu stáli og einnig úr áli og þá úr efni sem er 3 mm á þykkt
eða meira.
Málmiðnaðarmenn-
irnir hjá Teknís hafa
oft unnið til verð-
launa. Þar starfar
núverandi Íslands-
meistari í málm-
suðu auk tveggja
fyrrverandi Íslands-
meistara, en Málm-
suðufélag Íslands
stendur fyrir árlegri
málmsuðukeppni.
Fánastengurnar flottu. Jón Þór Sigurðsson framkvæmdastjóri.