Frjáls verslun - 01.02.2007, Síða 118
118 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7
K
YN
N
IN
G
SUMARHÚS
er að öllum hluta náttúrulegt,
endurvinnanlegt efni. Sérstök
þynna ofan á parketinu gefur því
styrk, rispu-, hálku- og slitvörn.
Pergo parketið er ekki ofnæm-
isvaldandi, tekur ekki í sig stöðu-
rafmagn og hefur líka náttúrulega
sýklavarnaeiginleika. Parketið er
ótrúlega sterkt eins og sést á að
það hefur lengi verið notað á
verslunargólf þar sem fólk ber inn
með sér bleytu og óhreinindi ef þannig viðrar.
Pergo parketi er smellt saman á þægilegan og varanlega hátt og
það er með áföstum filtmottum til hljóðeinangrunar. Milli 40 og 50
tegundir eru til af Pergo parketi og að jafnaði eru 12 og 15 tegundir
til á lager hjá Rými Ofnasmiðjunni. Sérpantanir berast á 3-4 vikum.
Ljóst parket er vinsælast þessi misserin að sögn Jóseps en þó er eikin
sívinsæl og salan stöðug í henni enda selur Rými u.þ.b. 15 tegundir af
eik. Nýjar tegundir eru alltaf að koma á markað, nú síðast fasað efni
sem hefur reynst mjög vinsælt bæði á sumarbústaði og heimili.
Verð á Pergo parketi hefur sáralítið breyst í ein 8 ár sem þýðir í
raun að það hefur lækkað hlutfallslega miðað við önnur gólfefni. Þar
við bætist að nánast hver sem er getur lagt þetta parket og sparað við
það háar upphæðir.
RÝMI OFNASMIÐJAN:
Pergo parket
og sérsmíðaðir
ofnar njóta
vinsælda
Íslendingar leggja mikið upp úr því að heimili þeirra jafnt sem sumarhús séu falleg og notaleg. Tvennt sem skiptir máli og setur svip á umhverfið eru falleg gólf og, nú í seinni tíð, fallegir ofnar,
sérsmíðaðir í samræmi við teikningar arkitekta svo að þeir falli vel að
stíl heimilisins. Hvort tveggja má fá í Rými Ofnasmiðjunni.
„Ofnar eru orðnir annað og meira en búnaður til að hita upp hús.
Þeir eru hluti af hönnun hússins,“ segir Jósep Grímsson, markaðs- og
sölustjóri hjá Rými. „Við höfum selt ofna í yfir 70 ár, fyrst eigin fram-
leiðslu Ofnasmiðjunnar en nú um alllangt skeið svissneska Zehner-
ofna sem eru þekktir fyrir glæsileika og góða hönnun. Ásamt því að
vera með miðstöðvarofna frá belgíska fyrirtækinu Veha, en þeir ofnar
hafa þótt vera með þeim albestu hér á landi um áratuga skeið.
Ofnar sérsmíðaðir Zehner ofnarnir eru úr gæðastáli og má fá þá
sérsmíðaða eftir teikningum, t.d. sem handrið, eða bogna ofna sem
„vefja sig“ utan um vegg eða súlur. Afgreiðslutími sérsmíðaðra Zehner
ofna er 4-6 vikur. „Nokkrar útfærslur líta út eins og gömlu pottofn-
arnir en einnig fást handklæðaofnar auk sérsmíðuðu ofnanna. Fólk
gerir meiri kröfur en áður og vill
að jafnvel ofnarnir hafi sérstakt
útlit bæði hvað form og liti
varðar,“ segir Jósep og bætir
við að fólk hylji ekki lengur
ofnana. Þeir séu búnaður sem
megi svo sannarlega sjást.
Áratugavinsældir Pergo park-
etsins Rými Ofnasmiðjan
hefur selt sænska Pergo park-
etið í áratugi en það er með
ISO vottun ásamt því að vera
með Græna svaninn sem er
norrænt umhverfismerki. Pergo
parketið er til í ótal útfærslum
og er eitt það slitsterkasta sem
til er á markaðnum í dag. Það
Um 80% Pergo
parketstegundanna
eru með 50 ára
ábyrgð sem nær yfir
upplitun af völdum
sólarljóss, blettavörn
og slitvörn.
Háteigsvegur 7 · Reykjavík · Furuvellir 13 · Akureyri · www.rymi.is
Það má vaða
yfir PERGO
100% náttúrulega sterkt parket sem þolir álag!
Svanfríður Lárusdóttir verslunarstjóri í Rými við handklæðaofna og
óvenjulegan ofn sem mætti nota sem sæti.