Frjáls verslun - 01.02.2007, Page 152
FÓLK
endurmenntunarstjóri Háskóla Íslands
KRISTÍN JÓNSDÓTTIR
TEXTI:
HILMAR KARLSSON
MYNDIR:
GEIR ÓLAFSSON
Endurmenntun Háskóla Íslands hefur starfað í 23 ár og verið leiðandi í end-
urmenntun landsmanna frá upp-
hafi og er stærsta endurmennt-
unarstofnun landsins. Kristín
Jónsdóttir er forstöðumaður
stofnunarinnar: „Í mínum verka-
hring er að leiða og samræma
starfið sem hér fer fram. Við
erum fimmtán sem störfum við
stofnunina auk fjölmargra laus-
ráðinna kennara á hinum ýmsu
námskeiðum og er fjölbreytnin
mikil þegar kemur að vali á nám-
skeiðum. Ég ber einnig ábyrgð á
rekstrinum og er í samstarfi við
marga aðila, meðal annars aðrar
deildir Háskóla Íslands sem og
aðila á vinnumarkaðinum.“
Kristín segir að námskeiðin
séu í stanslausri endurskoðun
og flest sem eru í boði séu ný:
„Stærstu námskeiðin, sem eru
jafnvel með hundrað manns, eru
nokkur og þar má nefna forn-
sögurnar sem Magnús Jónsson
sér um. Þverfræðileg námskeið
á heilbrigðissviði, sem oft eru
tengt ákveðnum sjúkdómum, eru
einnig vel sótt, en að þeim koma
allar stéttir í heilbrigðisgeiranum.
Stök námskeið á meistarastigi,
ekki síst á sviði viðskipta og fjár-
mála, eru vinsæl, nemendum þar
hefur fjölgað mjög og erum við
með á yfirstandandi misseri 20
námskeið á því sviði. Þá er vert að
nefna námskeiðaröðina „Vísindi
fyrir fjölskyldur“ sem við fórum
af stað með í fyrra í samstarfi við
Vísindavefinn og Orkuveituna og
náðu þau námskeið strax miklum
vinsældum.“
Sambýlismaður Kristínar er
Kristján Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri fjármála hjá Marel.
Eftir að Kristín lauk námi við
Kennaraháskóla Íslands 1985 lá
leið hennar til Bandaríkjanna
þar sem hún lauk mastersnámi
í kennslufræðum ásamt námi í
viðskiptum. Kristín er nú í dokt-
orsnámi í leiðtogafræðum við
háskólann í Phoenix í Bandaríkj-
unum með starfi sínu hjá End-
urmenntun: „Ég er sem sagt sjálf
að gera það sem ég býð öðrum,
að vera í námi samhliða því að
vera í fullu starfi og líkar það
vel.“
Kristín hefur verið endur-
menntunarstjóri Háskóla Íslands
í níu ár: „Áður var ég lengst af
fræðslustjóri hjá Eimskip og síðan
starfsmannastjóri hjá Íslenskri
erfðagreiningu áður en ég hóf
störf sem endurmenntunarstjóri
HÍ. Það má einnig geta þess að
eftir að ég lauk námi í Bandaríkj-
unum réð ég mig til Boeing verk-
smiðjanna til að semja námsefni
fyrir flugmenn.“
Þegar kemur að áhugamálum
þá er Dómkórinn í Reykjavík
ofarlega á blaði. „Að syngja í
Dómkórnum er mér hvíld frá
krefjandi starfi. Þar nýt ég þess
að syngja falleg og skemmtileg
verk með frábæru fólki og þarf
ekki að taka neinar ákvarðanir.
Við Kristján erum með sum-
arbústað í landi Efri-Reykja við
Brúará og þar dveljum við þegar
tími gefst til.“ Gönguferðir eru
einnig vinsælar hjá Kristínu. „Við
búum nánast í Elliðaárdalnum
og förum mikið í gönguferðir
um hann.“
Framundan hjá Kristínu er
ferð til Vancouver í Kanada. „Ég
ætla að sækja ráðstefnu sem er
á vegum samtaka endurmennt-
unarstjóra í Bandaríkjunum.
Þar verður ýmislegt forvitnilegt
kynnt sem ætti að nýtast okkur.
Verður gaman að koma aftur á
þessar slóðir sem segja má að séu
mínar gömlu heimaslóðir frá því
ég var í námi.“
Kristín Jónsdóttir:
„Að syngja í Dómkórnum er
mér hvíld frá krefjandi starfi.“
152 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7
Nafn: Kristín Jónsdóttir.
Fæðingarstaður: Reykjavík,
15. janúar 1961.
Foreldrar: Kristín Svanhildur
Njarðvík og Jón Bergþórsson.
Maki: Kristján Þorsteinsson.
Börn: Halldór Arnþórsson,
15 ára.
Menntun: M.Ed.