Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2007, Side 153

Frjáls verslun - 01.02.2007, Side 153
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7 153 FÓLK Skúli J. Björnsson er fram-kvæmdastjóri Sportís og nýkjörinn formaður Félags íslenskra stórkaupmanna. Sportís hefur haslað sér völl á sviði sportfatnaðar, en er einnig að versla með aðrar vörur: „Við stofnuðum Sportís 1983. Mark- miðið var strax í upphafi að flytja inn vandaðan sportfatnað og barnafatnað og var byrjað smátt í bílskúrnum heima. Við höfum síðan verið að vaxa smátt og smátt og stóra stökkið kom þegar við tókum við Cintam- ani vörumerkinu 1999. Höfum síðan verið að byggja fyrirtækið upp í kringum það. Við hönnum fatnaðinn sjálf, framleiðum hann og seljum í okkar eigin verslun að Austurhrauni 3, en þar höfum við komið okkur vel fyrir og erum nýbúin að stækka við okkur húsnæðið. Einnig er Cintamani fatnaðurinn seldur í öllum helstu verslunum landsins sem versla með sport- og útivistarfatnað. Þá erum við erum að fikra okkur áfram í útflutningi og þar eru ýmis tækifæri þó að samkeppnin sé mikil í sportfatnaði.“ Sem framkvæmdastjóri Sportís er Skúli mikið í útlöndum og sér- staklega eftir að farið var að koma Cintamani á erlendan markað. „Þegar verið er að vinna sig inn á markaði þarf að fylgjast vel með, koma vörunni á framfæri og fara á vörusýningar og það kostar mikil ferðalög. Við höfum einbeitt okkur að Evrópulöndum en erum að athuga markaði í Bandaríkjunum og Kanada. Í haust verður opnuð Cintamani deild í Magazin du Nord í Kaup- mannahöfn.“ „Eftir að hafa lokið stúdents- prófi í MH 1973 fór ég að vinna í Landsbankanum en ætlaði mér í áframhaldandi nám og skráði mig í Háskóla Íslands. Þar þreif- aði ég fyrir mér í lögfræði og viðskiptafræði en lauk aldrei námi enda á þessum árum kominn með eiginkonu og börn. Ég fór út á vinnumarkaðinn og var aðstoðar- maður framkvæmdastjóra hjá Gráfeldi í fimm ár og forstöðu- maður félagsmiðastöðvar í fjögur ár eða þangað til við stofnuðum Sportís. Eiginkona Skúla er Anna Sigríður Garðarsdóttir og eiga þau fjögur börn. „Anna vinnur í fyrirtækinu og það gera einnig tvær dætur mínar, Elva Rósa sem stjórnar hönnunardeildinni og Sigrún Kristín sem er í verslun- inni.“ Helsta áhugamál Skúla er tón- list. „Um nokkurt skeið á yngri árum lék ég í hljómsveitum og hef aldrei losnað við tónlistarbakt- eríuna þó að ég spili ekki opinber- lega. Við eigum sumarbústað sem er gott afdrep fyrir fjölskylduna og höfum gaman af að ferðast saman, en það er erfitt fyrir mig að nefna ferðalög sem áhugamál þar sem ég er langmest í ferðalögum á vegum vinnunnar. Það er samt gott að slaka á með fjölskyldunni á ferðlagi án þess að vera alltaf að hugsa um vinnuna.“ Skúli var kosinn í stjórn Félags íslenskra stórkaupmanna, FÍS, árið 2003 og tók við formanns- embættinu á þessu ári. „Ég hef alltaf haft gaman af að stússast í félagsmálum og hef auk félags stórkaupmanna verið í stjórn Fimleikasambands Íslands. Það er mikið um að vera hjá FÍS um þessar mundir, öflug starfsemi í gangi sem stjórnað er frá skrif- stofu okkar í Húsi verslunar- innar. Félagsmenn eru um 200. Félagið verður 80 ára á næsta ári og verður ýmislegt gert á þeim tímamótum.“ framkvæmdastjóri Sportís og formaður Félags íslenskra stórkaupmanna SKÚLI J. BJÖRNSSON Skúli J. Björnsson: „Ég hef alltaf haft gaman af að stússast í félagsmálum og hef auk þess að vera í stjórn félags stórkaupmanna verið í stjórn Fimleikasambands Íslands.“ Nafn: Skúli J. Björnsson. Fæðingarstaður: Reykjavík 14. maí 1953. Foreldrar: Björn Guðbrandsson (látinn) og Rósa Jóhannsdóttir. Maki: Anna Sigríður Garðarsdóttir. Börn: Þórhallur, 35 ára, Elva Rósa, 29 ára, Sigrún Kristín, 23 ára, Hlynur Skúli, 11 ára. Menntun: Stúdent frá MH 1973.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.