Frjáls verslun - 01.10.2009, Page 32
32 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 9
forsíðu grein kruMlA bAnkAnnA
1. byrjum á „ekki yfirtöku“. bankarnir gera
þá ekkert og leyfa fyrirtækjunum að
verða gjaldþrota en við það færast við-
skiptin sjálfkrafa yfir til keppinautanna
í faginu og gera þá stærri og sterkari.
Skuldir afskrifaðar.
2. bankar halda yfirteknum fyrirtæki gang-
andi í skamman tíma með það að leið-
arljósi að selja þau fljótt aftur. Skuldir
afskrifaðar. Söluferli sett í gang. Hætta
á brunaútsölu, segja bankarnir.
3. bankar byggja þau upp kerfisbundið til
að gera þau verðmætari og auðveldari í
sölu. Skuldir afskrifaðar.
4. bankar breyta skuldum í hlutafé eða
víkjandi lán. leggja jafnvel til nýtt
hlutafé áður en fyrirtækin eru seld
aftur. Skuldir afskrifaðar og gott betur.
5. bankar óska eftir tilboðum í yfirtekin
fyrirtæki á almennum markaði. Hæsta
tilboðið felur yfirleitt í sér stórfelldar
afskriftir bankans.
6. bankarnir setja yfirtekin félög á
markað, skrá þau í kauphöllinni. Þau fá
verðmiða og auðvelt er að selja þau í
einingum. áður þarf að afskrifa skuldir
svo markaðurinn hafi áhuga.
7. bankar stofna eitt stórt eignaum-
sýslufélag. Setja öll yfirtekin félög inn
í það. Þetta félag yrði síðan skráð í
kauphöllinni. Það væri stórt og með
dreifða starfsemi; nánast eins og fjár-
festingarsjóður.
8. bankar bjóða fyrirtækin til sölu en leita
til keppinautanna, þeirra sem fyrir eru
í greininni og kunna á reksturinn, í
von um að þeir geti nýtt sér samruna
og hagræðingu stórreksturs og greitt
hærra verð. Þessi leið er oft ekki fær
vegna samkeppnislaga.
9. bankar bjóði erlendum fjárfestum að
kaupa yfirtekin fyrirtæki. Gert til að fá
erlenda fjárfesta til landsins og til að
forðast verðhrun vegna of fárra kaup-
enda á heimamarkaði. Gengi krón-
unnar er svo lágt að nú er ódýrt fyrir
erlenda fjárfesta að kaupa.
10. bankar taka fyrirtæki yfir, endurfjár-
magna það og eiga hlut í því til að byrja
með í þeirri von að fyrirtækið bragg-
ist og hluturinn verði verðmætari og
auðseljanlegri síðar.
11. rökin gegn yfirtöku banka á fyrirtæki
eru m.a. þau að það er óþolandi þegar
viðskiptabanki einhvers er orðinn helsti
keppinautur hans líka.
Hvernig eiga bankar á að yfirtaka fyrirtæki og selja þau aftur? eiga þeir að yfirtaka þau? Hér koma
fimmtán punktar Frjálsrar verslunar um yfirtökur banka á skuldugum og gjaldþrota fyrirtækjum og helstu
álitamálin. kjarni málsins er að bankar geta aldrei selt yfirtekið fyrirtæki aftur nema afskrifa skuldir.
Þegar Bankar yfirtaka fyrirtæki
PunktAr FrjálSrAr VerSlunAr
texti: jón g. hauksson ● Myndir: geir ólafsson