Frjáls verslun - 01.10.2009, Page 51
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 9 51
s k y n d i b i t a m a r k a ð u r i n n l
Quiznos móðurfyrirtækið í Bandaríkjunum
gerir engar kröfur um innflutning á
hráefni en tekur út birgjana á Íslandi eftir
ákveðnum stöðlum.
Árið 2007 gerði
Olíuverzlun Íslands samning
við Quiznos um kaup á
sérleyfisrétti fyrir Ísland. Olís
hefur opnað Quiznos-staði
á stærri þjónustustöðvum
félagsins. Fyrsti staðurinn var
opnaður í Norðlingaholti við
Rauðavatn og í dag er Olís
með Quiznos á níu stöðum
en alls eru um 4.500
Quiznos-staðir í heiminum.
Aðalheiður Signý
Óladóttir hjá Quiznos,
segir að móðurfyrirtækið í
Bandaríkjunum geri engar kröfur um inn-
flutning á hráefni frá þeim en taki þess
í stað alla birgja á Íslandi, sem Quiznos
skipti við, út eftir ákveðnum stöðlum.
„Við verðum einnig að skila inn vott-
orðum um það hvort ákveðnir sjúkdómar
hafi komið upp í sláturhúsunum sem við
verslum við. Brauðin eru bökuð eftir ákveð-
inni uppskrift en við
flytjum inn allar umbúðir
og útlit staðanna er
eftir erlendri forskrift.
Hingað koma reglulega
eftirlitsaðilar að utan til
að athuga hvort allt sé
eftir bókinni en einnig
er mánaðarlegt eftirlit á
þessum stöðum og allar
skýrslur sendar mán-
aðarlega til höfuðstöðva í
Bandaríkjunum.
Áhrif gengishrunsins
á rekstur Quiznos eru
því minni en hefðu verið ef við flyttum
allt til rekstursins inn frá
Bandaríkjunum.“
Úr pistli Jóns G.
Haukssonar á heimur.is
big mac-vísitalan
McDonald’s er meira en hamborgari, hann
er mælistika á gengi gjaldmiðla. Tímaritið
Economist hefur í mörg ár birt Big Mac-
hamborgaravísitöluna. Í henni er borið saman
verð á Big Mac-borgaranum víða um heim.
Þetta er skemmtilegur og fróðlegur sam-
anburður. Lengi vel var krónan ofmetnasti
gjaldmiðillinn í heimi samkvæmt vísitölunni.
Snemma árs 2007 sagði Econom-
ist: „Ofmetnasti gjaldmiðillinn er íslenska
krónan. Það gengi milli krónu og dollars sem
myndi þýða að verðið væri það sama í Banda-
ríkjunum og á Íslandi er 158 krónur. En
gengið er 68,4 krónur sem táknar að krónan
er 131% of dýr.“
Í þessu tilviki var gengið út frá því að
borgarinn kostaði 3,22 dali í Bandaríkjunum
en um 500 krónur á Íslandi. Það þýddi að
dollarinn yrði að vera skráður á 155 krónur á
Íslandi til að fá út nauðsynlegt jafnvægi.
Einfaldari samanburður hjá þeim sem
fá sér Makka á Íslandi er bara sá að borg-
arinn sé 130% dýrari á Íslandi. Það er ekkert
flóknara. Ég vel hér mælingu í Economist
frá byrjun ársins 2007, í ljósi þess að það
ár var gengi krónunnar mjög sterkt. En
Big-Mac vísitalan sagði að gengi krónunnar
væri meira en tvöfalt of sterkt og dollarinn
þyrfti meira en að tvöfaldast í verði. Eftir
hrunið stendur Bandaríkjadollar núna í 125
krónum – og á sjálfsagt eftir að hækka í
verði ef eitthvað er; svo skuldsett er þjóðin
erlendis og vaxtabyrðin af þeim skuldum
þung. Kannski jafnvægið sé 155 krónur.
Big Mac-vísitalan endurspeglar sömuleiðis
samkeppnishæfni þjóða, stærð markaða, verð
landbúnaðarvara, landbúnaðartolla, vinnu-
laun, skatta, niðurgreiðslur, flutningskostnað
og áfram mætti telja. Það er margt sem skýrir
verðmismun á hamborgurum eftir löndum.
Það sama má auðvitað segja um aðrar vörur.
Lyf á Íslandi eru dýrari en annars staðar; bílar
og bensín líka; hvað þá vextir og fjármagns-
kostnaður við húsnæðiskaup. Big Mac-vísi-
talan ýtir undir þá þörfu umræðu hvers vegna
allt sé dýrara á Íslandi.
Olís með Quiznos:
allt hráefni innlent
hjá Quiznos
Fjöldi „franchise“
fyrirtækja hérlendis
hefur aukist undanfarin
ár; sérstaklega í
veitingarekstri og
gróflega áætlað
má reikna með að
heildarvelta þeirra sé
um 5,5 til 6 milljarðar
króna á ári.
Aðalheiður Signý Óladóttir, umsjónarmaður Quiznos Sub.