Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2009, Qupperneq 56

Frjáls verslun - 01.10.2009, Qupperneq 56
56 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 9 n æ r m y n d a F G u ð j ó n i m á G u ð j ó n s s y n i og fór því án ótta út í lífið og tilveruna sem hefur haft þær afleiðingar að ég hef aldrei lagt mikið á mig til að öðlast formleg diplóma. Enda er skólun og menntun sitt hvort fyrirbærið og ég held að uppbygging OZ hafi endurspeglast í því. Fyrstu verkefni OZ voru í tengslum við grafíska hönnun og eftir að ég sá kvikmyndina The Abyss langaði mig að geta beitt sömu tækni við mína hönnun. Við grófum því upp hvaða tölvu- og hugbúnaður var notaður við gerð myndarinnar og fjárfestum í honum. Á þeim tíma voru ekki nema fjórir starfsmenn hjá fyrirtækinu og allir með mjög flotta titla og yfirmenn mismunandi deilda,“ segir Guðjón. Fyrstu árin var OZ til húsa á Laugavegi en flutti síðan í Brautarholt og að lokum í hús Osta- og smjörsölunnar við Snorrabraut. Í fyrstu í eitt herbergi en OZ stækkaði hratt og að lokum keypti fyrirtækið húsið. „Á árunum fyrir 1990 eiga sér stað miklar breytingar í tölvubransanum og við sem unnum hjá OZ höfðum gríðarlegan áhuga á og þroskuðumst með og ég held að það hafi verið okkur mjög náttúrulegt. Við hreinlega sóttumst eftir erfiðum og krefjandi verkefnum og vorum oft áræðnir í ákvarðanatöku. Aðilar í atvinnulífinu skynjuðu þetta og ýmsir veittu okkur brautargengi. Þar á meðal var IBM á Íslandi sem mælti með okkur við IBM í Evrópu sem í kjölfarið veitti okkur lánsfjármögnun til að kaupa búnað sem ekki hefði áður verið settur upp í Evrópu og eingöngu notaður í Hollywood og Silicon Valley. Fyrir vikið vorum við með tækni sem var á við það besta í heimi á sínum tíma.“ Fljótlega eftir það sneri OZ sér að þróun hugbúnaðar og gerði tilboð í verkefni hjá Microsoft, árið 1995, og fékk það. Verkefnið fólst í að forrita hugbúnaðarsafn sem gæti teiknað náttúrulega hluti eins og áferð viðar, vatns og reyks svo dæmi sé tekið. Slíkt var erfitt á þeim tíma en OZ tókst að leysa verk- efnið og í framhaldi af því hófst uppgangur fyrirtækisins fyrir alvöru. „OZ fékk mikla athygli á þessum tíma og satt best að segja vorum við alltaf mjög hissa á henni. Fyrirtækið hefur eflaust þótt merkilegt fyrir þær sakir að tvítugir strákar voru að gera samninga við erlend risafyrir- tæki og slíkt þótti áhugavert og jákvætt. Við vorum líka að gera allt annað en flestir aðrir og hugsuðum öðruvísi og ég man eftir mörgum áhugaverðum fundum með banka- starfmönnum, sem á þeim árum voru flestir stjórnmálamenn og byrjuðu á því að spyrja hverra manna við værum, en skildu hreinlega ekki orðaforðann sem við notuðum. Fyrir vikið gátum við yfirleitt farið okkar eigin leiðir og unnið sjálfstætt. Eftir að Internetið kom til sögunnar hófst nýtt ferli hjá okkur og eftir það gekk Guðrún líneik Guðjónsdóttir, systir „Guðjón var fimm ára þegar ég fæddist og hann hefur alltaf verið mjög kröfuharður í sinn garð og þeirra sem standa honum næst. ég fékk oft að finna fyrir því sem barn ef honum mislíkaði eitthvað og þótti mér hann oft ansi afskiptasamur en á móti kemur að hann er mjög traustur og mikill vinur og góðhjartaður. Hann hefur alla tíð verið vinmargur og vinsæll og á ég margar góðar minningar úr Skipasundi þar sem við ólumst upp. Húsið var alltaf fullt af vinum hans og þurftu þeir oft að þola að hafa litlu systur hans hangandi yfir sér. Guðjón tók eflaust lítið eftir því þar sem hann sat alltaf við tölvuna að búa til tölvuleiki eða önnur flókin kerfi meðan vinirnir spiluðu billjard og prófuðu leikina sem Guðjón matreiddi ofan í þá. Síðar færðist áhuginn yfir í tónlist og nýttist billj- ardborðið þá vel undir allar græjurnar. ég man vel þegar við pabbi fórum á músíktilraunir í tónabæ til að styðja hljómsveitina expet þar sem Guðjón tók sig vel út á bak við tölvuna. ég get fullyrt að það hafi verið upphaf tölvutónlistar hér á landi enda hefur Guðjón alla tíð verið langt á undan sinni samtíð. upp frá því skipaði tónlistin stóran sess í lífi hans og á ég margar minningar um misþekkt og frumlegt tónlistarfólk heima í Skipasundi. Við höfum alltaf verið talin lík í útliti og er það mér minnisstætt að þegar ég var að byrja að fara út á lífið með honum lentum við oft í vandræðalegum atvikum þar sem vinir hans töldu sig þekkja mig og öfugt. einu sinni var ég á skemmtistað að dansa þegar Guðjón kemur inn á staðinn og hittir félaga sinn náfölan og hrærðan því hann þóttist hafa séð Guðjón rétt áður á dansgólfinu í dragi.“ Þórarinn stefánsson, vinnufélagi og vinur „leiðir okkar Guðjóns hafa legið saman af og til undanfarin 15 ár, allt frá því Guðjón fékk mig til að aðstoða sig við að breyta OZ úr grafíksmiðju í hugbúnaðarhús með útflutning að leiðarljósi. Það er aldrei lognmolla í kringum Guðjón. ef maður kýs að umgangast hann er maður í hringiðu hugmynda- og framkvæmdagleði og slíkt getur tekið talsvert á. Það er hvort tveggja í senn hans stærsti kostur og galli. kostur af því að fátt er skemmtilegra en að takast á við ný og spennandi verkefni, en galli ef þau fæðast svo ört að varla vinnst tími til að klára verkið. Guðjón gerir þetta vissulega ekki einn, en ólíkt mörgum öðrum er Guðjón óhræddur við að fá alls kyns fólk til liðs við sig og setur það ekkert fyrir sig að það sé hugsanlega klárara en hann á einhverjum sviðum. Hann lítur ekki á slíkt sem ógnun heldur kost, þar sem þetta fólk veit eitthvað sem hann veit ekki og þess vegna eigi augljóslega að vinna með því. Í kringum hann virðist myndast svæði sem magnar upp það sem á ensku kallast „suspension of disbelief“. Fólk sem unnið hefur með Guðjóni virðist fyllast trú á að hægt sé að byggja upp alls kyns S AG t u M G u ð JÓ N M Á G u ð JÓ N S S O N
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.