Frjáls verslun - 01.10.2009, Qupperneq 84
84 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 9
„Jólin eru afar sérstök í mínum
huga,“ segir sjónvarpskonan
Friðrika Geirsdóttir sem stýrt
hefur þættinum Léttir réttir Rikku
á Stöð 2. „Þau eru tákn um
vináttu, kærleik og hamingju.
Ég legg mig fram við að hafa
jólaundirbúninginn sem afslapp-
aðastan og nýt þess að baka
nokkrar gerðir af smákökum og
skrifa jólakort til vina og vanda-
manna við kertaljós í mjúku
sokkunum mínum.
Eftirminnilegustu jól sem ég
hef upplifað voru þegar ég var á
Bali fyrir nokkrum árum síðan.
Á aðfangadagskvöld var lagt á
borð undir tjaldi og boðið upp á
nautakjöt og bearnaise-sósu í
yndislegu veðri. Þetta leit út fyrir
að verða hið huggulegasta kvöld
en skjótt skipuðust þó veður í
lofti og það var sem himnarnir
rifnuðu fyrir ofan okkur og hellt
væri úr fötu yfir tjaldið okkar og
þar með yfir allt sem undir var.
Jólastemmningin hvarf eins og
dögg fyrir sólu en góða skapið
stóð þó eftir.“
Hamborgarhryggur
2 msk ólífuolía
1 laukur, sneiddur
1 gulrót, skræld og sneidd
1 appelsína, sneidd
1 tsk negulnaglar
1 rauðvínsflaska
1, 5 -2 l vatn ( fer eftir stærð
kjöts og potts)
1 hamborgarhryggur
70 g smjörvi
70 g púðursykur
2 msk hunangssinnep
salt og pipar
Steikið laukinn, gulrótina, app-
elsínuna og negulnaglana upp
úr ólífuolíunni og hellið rauðvín-
inu yfir, látið malla í 5 mínútur.
Bætið vatninu saman við og
hitið upp að suðu. Lækkið hit-
ann og setjið kjötið út í, látið
það malla við vægan hita í
25-30 mínútur. Færið kjötið
á ofnskúffu og kælið í ca. 10
mínútur. Hrærið saman smjörv-
anum, púðursykrinum og sinn-
epinu og kryddið með salti og
pipar. Berið smjörblönduna á
hrygginn og bakið í ofninum í
25-30 mínútur við 180°C.
Sveppasósa:
1 msk smjörvi
1 hvítlauksrif
1 askja sveppir
handfylli af þurrkuðum
sveppum (sjá meðhöndlun á
umbúðum)
1 kjúklingakraftsteningur
500 ml soð af hamborg-
arhryggnum
250 ml rjómi
2 msk maizena sósuþykkir
salt og pipar eftir smekk
Steikið hvítlaukinn og sveppina
upp úr smjörinu, bætið
kjúklingakraftsteningnum út í og
hellið soðinu smám saman við.
Bætið rjómanum út í og kryddið
með salti og pipar. Þykkið
sósuna að vild.
Með þessu hef ég svo alltaf
brúnaðar kartöflur og waldorf-
salat.
Friðrika Geirsdóttir. „Jólin eru afar sérstök í mínum huga. Þau eru tákn um vináttu, kærleik og hamingju.“
Í úrhelli á Bali