Læknablaðið - 01.07.2015, Blaðsíða 32
372 LÆKNAblaðið 2015/101
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
Dagar gistiskýlisins á horni Þingholts-
strætis og Spítalastígs eru nú á enda.
Spítalinn var byggður árið 1883 og dregur
gatan nafn sitt af honum. Spítalarekstur
hófst í Reykjavík árið 1866 þar sem nú er
hús Hjálpræðishersins en síðar lét Sjúkra-
húsfélag Reykjavíkur byggja sérstakan
spítala. Þetta er elsta hús landsins sem
er sérstaklega byggt sem spítali. Helgi
Helgason tónskáld og trésmiður teiknaði
húsið sem er hið reisulegasta og hefur
ætíð þjónað vel þeirri starfsemi sem þar
hefur verið. Auk spítalastarfseminnar var
læknaskólinn þarna til húsa um árabil en
þegar Landakotsspítali var byggður árið
1902 tók hann við hlutverki sem helsti
spítali Reykjavíkur. Næstu árin var húsið
notað til íbúðar en um 1920 var það tekið
til heilbrigðisþjónustu á ný. Þar var útbúin
aðstaða fyrir farsóttarsjúklinga og þá fest-
ist við húsið nafnið Farsótt. Það var einnig
notað fyrir berklasjúklinga um tíma en á
síðari árum var það gistiskýli fyrir þá sem
hvergi áttu höfði sínu að halla.
Nú stendur húsið autt en margir renna
hýru auga til þess í gósentíð erlendra
ferðamanna enda getur gott hús á góðum
stað fært eiganda sínum ágætan arð. En
ekki er allt gull sem glóir og til eru verð-
mæti sem gefa arð sem er ekki einvörð-
ungu mældur í krónum eða evrum.
Tillaga mín er að koma á fót Heilbrigð-
isminjasetri í fyrsta spítala Reykjavíkur
sem legði áherslu á þekkingu á heil-
brigðismálum og stöðu heilbrigðismála
á Íslandi á árunum ca. 1870-1930. Á þeim
árum fjölgaði þjóðinni mikið, barnasjúk-
dómar urðu landlægir og hættu að vera
drepsóttir, síðasta stóra drepsóttin gekk
yfir (spænska veikin), holdsveiki og sulla-
veiki hurfu nær alveg, berklaveikin rénaði
og þekking og skilningur á heilbrigðismál-
um jókst mikið. Nýjungar í læknisfræði
komu til Íslands um aldamótin, læknis-
menntun batnaði, tekin var upp kennsla
í hjúkrun og heilbrigðisstarfsmönnum
fjölgaði. Hér var Reykjavík í fararbroddi.
Í húsinu væri hægt að hafa nokkur tæki
og verkfæri sem voru notuð á þessum
tíma og kynna málefni með veggspjöldum,
brúðum af sjúkum einstaklingum, heilum
og hálfum, og myndrænni framsetningu
í tölvumyndum. Þá væri sjálfsagt að
gjörnýta aðstöðuna þar sem líkskurður fór
fram. Til að tryggja rekstur svona seturs
þarf að vera hægt að kaupa minjagripi og
vörur og þá væri ekki úr vegi að bjóða upp
á kræsingar úr lyfjaskápnum, til dæmis
te, lakkrís, ölkelduvatn og skarfakál.
Einnig væri hægt að nota húsið fyrir
fundi og skemmtanir og þaðan gætu legið
gönguleiðir til heilsubótar og fræðslu um
sögu heilbrigðismála, til dæmis út á Nes
og inn á Klepp.
Hrakfarir lækningaminjasafns eru vel
kunnar og ástæðulaust að þæfa það mál
frekar. Þessi tillaga gæti að einhverju leyti
leyst þann vanda, hafið spítalann til vegs
og virðingar og gert mikilvægum þætti í
íslenskri sögu skil. Heilbrigðisminjasetur
í Farsóttarhúsinu er hvorki dýr né fráleit
hugmynd heldur gæti hún orðið einföld og
ódýr ráðstöfun. Í þessu máli eins og svo
mörgum öðrum er það viljinn til að gera
vel sem skiptir máli.
Heilbrigði í
Farsótt!
læknar
SÁÁ auglýsir eftirtaldar stöður á Sjúkrahúsinu Vogi lausar til umsóknar:
Stöðu sérfræðilæknis
Stöðu deildarlæknis
Stöðu læknanema
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Tyrfingsson, sími 824 7600
netfang: thorarinn@saa.is
Umsóknarfrestur er til 21. júlí 2015
Jón Ólafur
Ísberg
sagnfræðingur
jonolafur@althingi.is
Farsóttarhúsið, elsti spítali landsins, er í 101, hann stendur við Þingholtsstræti 29.