Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2014, Blaðsíða 39

Læknablaðið - 01.04.2014, Blaðsíða 39
LÆKNAblaðið 2014/100 239 Alþjóðasamtök lækna (WMA) eru þekkt- ust fyrir vönduð álit sem eiga að vera læknum heimsins til hliðsjónar í störfum sínum og verkefnum. Þekktast þeirra er Helsinki-yfirlýsingin um vísindarann- sóknir á mönnum, en þau eru mörg fleiri, svo sem um réttindi sjúklinga, sjálfstæði lækna og fleira. Eitt þeirra er um siðlega notkun gagnagrunna. Á síðastliðnu hausti skipaði WMA vinnuhóp til að vinna að nýju áliti um gagnagrunna og taka einnig til umfjöllun- ar lífsýnabanka. Læknafélag Íslands hefur formennsku í vinnuhópnum og var boðað til fundar í Reykjavík 7. mars síðastliðinn. Hópurinn samanstendur af fulltrúum níu læknafélaga frá fimm heimsálfum en auk þess situr framkvæmdastjóri WMA vinnufundina. Fundurinn var haldinn í húsakynnum LÍ við Hlíðasmára og var tvískiptur. Fyrir hádegi var opinn fundur með sex framsöguerindum en eftir hádegi var lokaður fundur vinnuhópsins. Opni fundurinn var vel sóttur og urðu líflegar og hnitmiðaðar umræður enda hefur þetta málefni verið lengi til umræðu hér á landi. Drög að áliti verða lögð fyrir stjórnar- fund WMA í Tókýó í apríl og eftir sam- ráðsferli aðildarfélaga samtakanna lýkur vinnunni vonandi í haust. Vinnufundur Alþjóðasamtaka lækna í Reykjavík Jón Snædal öldrunarlæknir, stjórnarmaður í WMA og formaður vinnuhópsins jsnaedal@landspitali.is U M F J ö l l U n O G G R E i n a R Japaninn heitir Masami Ishii, varaformaður stjórnar WMA, og stýrir alþjóðaskrifstofu japanska læknafélagsins. Konan með hönd undir kinn er Annabel Seebohm, lögfræðingur WMA. Jón Snædal og Vilhjálmur Árnason siðfræðingur, maðurinn fyrir framan Vilhjálm heitir Robert Wah og er af kínversku bergi brotinn. Hann er tilvonandi forseti banda- ríska læknafélagsins (AMA). Svanur Sigur- björnsson heim- ilislæknir og Sólveig Jóhanns- dóttir fram- kvæmdastjóri Læknafélags Íslands. Otmar Kloiber, læknir og framkvæmdastjóri WMA, að tala við Jón Jóhannes Jónsson lækni og erfðafræðing. Þorvarður Jón Löve gigtarlæknir var atkvæðamikill á fundinum. Salvör Nordal og Magnús Gottfreðsson að fá sér styrkingu milli funda. Myndirnar tók Védís Skarphéð- insdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.