Læknablaðið - 01.04.2014, Blaðsíða 44
244 LÆKNAblaðið 2014/100
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Nú er ljóst að töluverð umskipti verða í
stjórn Læknafélags Reykjavíkur á aðal-
fundi sem haldinn verður 20. maí næst-
komandi. Þá láta bæði formaður og
varaformaður af störfum, auk tveggja
meðstjórnenda. Læknablaðið hitti formann-
inn, Stein Jónsson, að máli og innti hann
eftir því hvernig formannstíð hans hefði
verið.
„Ég tók við formennsku í félaginu vorið
2010 svo ég er búinn að gegna embættinu
í fjögur ár. Þetta voru um margt erfiðir
tímar, heilbrigðiskerfið í landinu sætti
miklum niðurskurði og uppsögnum starfs-
fólks sem bitnuðu hvað harðast á Land-
spítalanum. Auk þess voru sérfræðilæknar
án samnings við Sjúkratryggingar ríkisins
í þrjú ár af þessum fjórum sem er mjög
óvenjulegt, reyndar einsdæmi,“ sagði
Steinn.
Tvö meginverkefni
Eins og lesendur Læknablaðsins vita er
Læknafélag Reykjavíkur stærsta aðildar-
félag Læknafélags Íslands með um 70%
stéttarinnar innan sinna vébanda. Steinn
segir að helstu verkefni félagsins séu tvö.
„Annars vegar semur félagið við Sjúkra-
tryggingar ríkisins um kjör sjálfstætt starf-
andi sérfræðilækna og hins vegar stendur
það vörð um vöxt og viðgang heilbrigðis-
þjónustunnar í landinu. Ég hef reynt að
vekja athygli á því ástandi sem ríkt hefur
með greinaskrifum í Læknablaðið og aðra
fjölmiðla.
Samningamálin voru í sérstæðu fari
lengst af minni formennskutíð eins og
ég nefndi. Samningurinn við SR rann út
snemma árs 2011 og við það hefðu að öllu
óbreyttu fallið niður allar endurgreiðslur
hins opinbera á kostnaði sjúklinga við
þjónustu sérfræðilækna. Þáverandi stjórn-
völd komu þó í veg fyrir að neyðarástand
skapaðist með því að setja reglugerð sem
tryggði endurgreiðslur á sama einingar-
verði og gamli samningurinn kvað á um.
En lög gera ráð fyrir því að samningur
sé í gildi. Því var gengið í það að semja
við SR síðastliðið haust og nýr samningur
tók gildi um síðustu áramót. Það urðu því
engin veruleg áföll þótt vitaskuld væri
þetta bagalegt,“ sagði Steinn.
Árshátíð og safnamál
Auk þessara tveggja meginþátta í starf-
semi LR leggur félagið drjúgan skerf til
félagsstarfa lækna og ekki bara í Reykja-
vík. Árshátíðir félagsins sem haldnar eru
í lok Læknadaga í janúar eru rómaðar
og þar lætur enginn íslenskur læknir sig
vanta, eigi hann heimangengt. Annað mál
sem hefur verið á borði stjórnar undanfar-
in ár er uppbygging Lækningaminjasafn
sem hefur gengið upp og ofan.
„LÍ og LR lögðu hvort um sig 25 millj-
ónir króna í uppbyggingu lækningaminja-
safns á Seltjarnarnesi og gerðu samning
um safnið við bæjarstjórn Seltjarnarness
og menntamálaráðuneytið árið 2006. Við
höfum reynt að stuðla að því að þetta
mál fái framgang en Seltjarnarnesbær
sagði samningnum upp í fyrra og skilaði
safninu til ráðuneytisins,“ segir Steinn. Nú
er alls óvíst hver framtíðin verður en hug-
myndir hafa verið uppi um að skrifstofur
læknasamtakanna verði fluttar í safnhúsið.
En hvernig líst Steini á framtíð félagsins?
„Nú er nýbúið að gera samning við
SR til næstu 5 ára. Samkvæmt honum
verður forminu á samningagerðinni breytt
þannig að hér eftir mun hver læknir semja
fyrir sig. Ég hef ekki trú á að það breyti
miklu fyrir kjör lækna en það boðar vænt-
anlega að kjarabarátta félagsins er komin á
lygnari sjó, í bili að minnsta kosti. Það þarf
þó áfram að halda vöku sinni enda mikil-
vægt að standa vörð um hagsmuni félags-
manna. Þeirri baráttu lýkur aldrei,“ segir
Steinn Jónsson.
■ ■ ■ Þröstur Haraldsson
Steinn Jónsson lætur af
störfum sem formaður
Læknafélags Reykjavíkur
á aðalfundi í vor
Samningslausir
læknar í þrjú ár
Steinn Jónsson á skrifstofu sinni á E7 á gamla Borgarspítalanum. Mynd: Védís.