Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2014, Blaðsíða 41

Læknablaðið - 01.04.2014, Blaðsíða 41
LÆKNAblaðið 2014/100 241 U M F J ö l l U n O G G R E i n a R hann bendir á að meðalaldur íslenskra sér- fræðilækna sé orðinn mjög hár og að erfitt verði að fá nýja lækna í stað þeirra sem hætta á næstu árum.“ Hvernig er hægt að bregðast við því? „Það þarf að gerast á ýmsum víg- stöðvum. Nú eru kjaraviðræður í gangi og þar þarf að vanda til verka ef við ætlum okkur að halda þessari þekkingu í landinu. Margir skurðlæknar starfa erlendis að hluta til og viðhalda þannig þekkingu sinni. Atvinnutilboð erlendis frá streyma inn, enda er alls staðar skortur á skurðlæknum.“ Helgi Kjartan vinnur sjálfur í Noregi, nánar tiltekið í Björgvin og Stafangri, og hefur farið reglulega utan frá því hann fluttist heim 2007. Hér heima er hann í 75% vinnu við Landspítalann við kviðarhols- skurðlækningar, aðallega ristil- og enda- þarmsskurðlækningar. Noregsferðir og róbótar „Svona þing eins og við erum að halda eru líka liður í því að viðhalda þekkingunni og laða fólk að starfinu. Mesti þunginn í erindaflutningnum er á almennum læknum og þetta er mikilvægur vett- vangur fyrir unga fólkið til þess að afla sér reynslu í því að flytja erindi og kynna starfsemi sína á vísindaráðstefnum. Skurðlækningar eru krefjandi vinna og sérnámið langt svo það er ekki sjálfgefið að fanga ungt fólk í fagið. Það er meðal annars hlutverk þessara þinga að leyfa þessum ungu læknum að kynna verkefnin sín og vekja áhuga þeirra á faginu.“ En hvernig gengur að sameina starfið hér heima og erlendis lífi fjölskyldunnar? Fylgir því ekki talsvert álag þegar heim- ilisfaðirinn er reglulega fjarverandi? „Jú, auðvitað er það álag, en það eru ekki bara Noregsferðirnar því í starfi mínu hér heima er ég á vakt og bakvakt fjórða hvern sólarhring miðað við fullt stöðugildi svo starfið krefst mikils af fjölskyldunni. Noregsferðirnar bætast svo ofan á það. Auðvitað hefur það verið rætt á heimilinu hvar okkur er best fyrir komið. Eigum við að flytja til útlanda eða halda þessu áfram? Það má vissulega venjast öllu og kosturinn við þetta er að með þessu móti held ég þekkingu minni við, auk þess sem ferðalögin skapa ákveðna tilbreytingu í starfi og víkka sjóndeildarhringinn.“ Hann vísar aftur til vísindaþingsins en eins og áður er nefnt hefst það á málþingi um það sem er nýjast í heimi skurðlækna. „Þar verða fluttir fyrirlestrar um aðgerðar- þjarkinn, róbot til skurðlækninga, sem verið er að safna fyrir. Það er mikilvægt að fá slíkt tæki hingað til lands og það er líka liður í því að halda í fólk. Haldin verða fjögur erindi þar sem farið verður yfir notkun aðgerðarþjarka við lækningar á krabbameini í blöðruhálskirtli, ristli og endaþarmi, leghálsi og við brjósthols- skurðlækningar. Að erindum loknum verða pallborðsumræður sem Tómas Guð- bjartsson, prófessor í skurðlækningum, stjórnar,“ sagði Helgi Kjartan Sigurðsson formaður Skurðlæknafélagsins og hlakkar greinilega til. Formannafundur Föstudaginn 11. apríl heldur Læknafélag Íslands árvissan formannafund sinn. Fyrir hádegi er farið yfir ályktanir aðalfundar 2013 og störf stjórnar LÍ. jafnframt gefa forystumenn í innra starfi félagsins skýrslur um starfsemi síðasta árs. Eftir hádegi er opið málþing undir fyrirsögninni: Heilsa lækna Fyrirlesarar verða Bjarni Össurarson, Haraldur Erlendsson, Kristinn Tómasson og Magdalena Ásgeirsdóttir Helgi Kjartan formaður skurðlæknafélagsins. Mynd Védís.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.