Læknablaðið - 01.04.2014, Blaðsíða 40
240 LÆKNAblaðið 2014/100
Í sextánda sinn halda Skurðlæknafélag
Íslands og Svæfinga- og gjörgæslulækna-
félag Íslands vísindaþing að vorlagi og
stendur það yfir í Hörpu dagana 4. og 5.
apríl næstkomandi. Í ár eins og oft áður
tekur Félag íslenskra fæðingar- og kven-
sjúkdómalækna þátt í ráðstefnunni.
Það hlýtur að teljast merkilegt að í ekki
stærri félögum sé hægt að halda úti árlegu
vísindaþingi og í ár bárust á fimmta tug
ágripa. Það sýnir að talsverð gróska er í
vísindastarfi á þessu sviði lækninga hér á
landi. Enda var Helgi Kjartan Sigurðsson
formaður Skurðlæknafélagsins ánægður
með þann árangur.
„Auk erinda þar sem vísindamenn
kynna niðurstöður úr rannsóknum sínum
eru haldin sérstök málþing að morgni 4.
og 5. apríl þar sem flutt verða yfirlitser-
indi. Oft hafa það verið erlendir fyrirles-
arar sem við höfum boðið eins og verður
á dagskrá 5. apríl, en að þessu sinni verða
eingöngu íslenskir fyrirlesarar á málþingi
um aðgerðarþjark þann 4. apríl og það
erum við afar ánægð með,“ sagði Helgi
Kjartan.
Aukin sérhæfing
Skurðlæknafélag Íslands er liðlega fimm-
tugur félagsskapur, stofnað í mars 1957 af
36 starfandi skurðlæknum. Það hefur allan
tímann verið fagfélag en árið 2006 tók það
einnig að sér að verða stéttarfélag og sér
um samninga um kjör skurðlækna í ís-
lenskri heilbrigðisþjónustu. Helgi Kjartan
segir að vissulega hafi orðið miklar
breytingar á starfi skurðlækna á þessari
hálfu öld.
„Stærsta breytingin er sú að sérhæfing
hefur aukist til mikilla muna. Við stofnun
félagsins voru flestir stofnfélagar almennir
skurðlæknar. Við sækjum framhalds-
menntun okkar til nágrannalandanna,
ekki hvað síst Norðurlanda, og þar sem
annars staðar hefur átt sér stað mikil sér-
hæfing. Sérnám í skurðlækningum hefur
breyst þannig að það er verið að draga
saman í almennri menntun og sameigin-
legum námsþáttum en meiri áhersla lögð á
sérhæfinguna sem hefst fyrr.“
Því hefur verið haldið fram að vegna
fámennis sé erfitt að halda uppi eðlilegri
starfsþjálfun sérhæfðra lækna hér á landi.
Stangast það ekki dálítið á við þessa
þróun?
„Jú, það er að sjálfsögðu mikil ögrun
fyrir okkur að útvega nógu marga lækna
til þess að sinna öllum þessum sérfögum,
ekki síst í því róti sem hér er. Þá reynir á
okkur að fá til okkar hæft fólk og halda í
það góða fólk sem hér er að störfum,“ segir
Helgi Kjartan.
Hár meðalaldur sérfræðilækna
Hann er þó ekki á því að skurðlækna
skorti verkefni til þess að halda sér í
þjálfun. „Menn verða sér úti um reynslu
með því að vinna mikið, enda er alltaf
nóg að gera og skortur á skurðlæknum
útbreiddur. Til þess að sinna því sem þarf
að gera standa menn strangar vaktir og
öðlast við það mikla og góða reynslu. Það
sýnir sig líka í árangri skurðlækna. Á sviði
krabbameins-, kviðarhols- og hjartaskurð-
lækninga er hann fyllilega sambærilegur
við það sem gerist í nágrannalöndum
okkar.
Þróunin hefur líka verið sú að æ fleiri
sérhæfðar skurðaðgerðir eru nú gerðar hér
á landi sem áður þurfti að láta gera í útlönd-
um. Hjartaskurðlækningar eru skýrasta
dæmið um þetta. Einnig er farið að græða
nýru í sjúklinga hér á landi en aðrir líffæra-
flutningar eru ekki gerðir hér, enda fjöldi
þeirra svo lítill. Þetta er enn ein ögrunin, að
viðhalda og halda í nýja þekkingu. Velflest
viljum við vera hér heima, en eftir hrun
hefur verið erfitt að fá nýtt fólk til starfa.
Prófessorinn okkar, Tómas Guðbjartsson,
skrifaði nýlega grein í Læknablaðið þar sem
Styrkir til rannsókna vegna eyrnasuðs
liljusjóðurinn
Rannsóknar- og styrktarsjóður Lilju Guðrúnar Hannesdóttur auglýsir til umsóknar styrki til
rannsókna vegna eyrnasuðs (tinnitus)
Tilgangur sjóðsins er að styrkja rannsóknir á eyrnasuði. Tilgangur rannsókna skal vera að afla
vitneskju um ástæður eyrnasuðs (tinnitus) og meðferð við því.
Umsóknarfrestur er til 1. maí 2014.
Úthlutað verður úr sjóðnum 14. maí 2014 en
Lilja hefði orðið 88 ára þann 24 maí.
umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu sjóðsins
liljusjodurinn.is eða hjá undirrituðum.
Hannes Petersen dósent, yfirlæknir háls-, nef- og eyrnadeildar Landspítala; hpet@landspitali.is
Ingibjörg Hinriksdóttir, yfirlæknir Heyrnar- og talmeinastöð Íslands; ingibjorg@hti.is
– segir Helgi Kjartan Sigurðsson formaður Skurðlæknafélags Íslands sem heldur
vísindaþing 4.-5. apríl í samvinnu við félög svæfinga-, gjörgæslu-, fæðingar- og
kvensjúkdómalækna
„Verðum að halda í
fólkið og þekkinguna“
■ ■ ■ Þröstur Haraldsson
U M F J ö l l U n O G G R E i n a R