Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2014, Blaðsíða 46

Læknablaðið - 01.04.2014, Blaðsíða 46
246 LÆKNAblaðið 2014/100 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Innúðasterar eru mikilvæg meðferð við astma og vinna á bólgu í stórum loft- vegum þar sem frumur ónæmiskerfisins koma við sögu en einnig frumur sem mynda vegg loftvegarins eins og þekju- frumur og sléttar vöðvafrumur. Sterarnir hafa þannig mjög víðtæk áhrif í meingerð astma og hemja margskonar bólguvið- brögð sem eiga sér stað. Því er ábending fyrir notkun þeirra á öllum stigum astma nema hugsanlega hjá þeim sem eru með mjög vægan astma, til dæmis við áreynslu.1 Í langvinnri lungnateppu er bólgusvörunin af öðrum toga en í astma. Þar er fyrst og fremst daufkyrningabólga en einnig eru lungnablöðruátfrumur áberandi sem og CD4- og CD8-jákvæðar eitilfrumur.2 Fjöldamargar rannsóknir hafa sýnt að innúðasterar eiga eingöngu við hjá þeim sem komnir eru með langvinna lungnateppu á háu stigi þannig að einnar sekúndu fráblástur sé orðinn minni en 50% af áætluðu gildi.3 Að auki þurfa þeir að hafa mikil einkenni með tíðum versn- unum á öndunarfæraeinkennum. Með því er átt við að sjúklingar leiti aðstoðar heil- brigðisstarfsmanns að jafnaði einu sinni til tvisvar á ári vegna versnunar á öndunar- færaeinkennum eins og hósta, slímupp- gangi og mæði. Þannig eru skilmerki fyrir notkun innúðastera þrengri í langvinnri lungnateppu en í astma.3 Snemma í rann- sóknum á ábendingum fyrir notkun inn- úðastera í langvinnri lungnateppu kom í ljós að þeim virtist fylgja aukin hætta á lungnabólgu samanborið við sjúklinga sem fengu lyfleysu. Gerðar hafa verið safngreiningar sem sýna allt að 70% aukn- ingu á lungnabólgu hjá þeim sem voru á innúðasterum að staðaldri.4 Cochrane-hópurinn birti nýlega greiningu á rannsóknum sem gerðar hafa verið á gagnsemi innúðastera í langvinnri lungnateppu.5 Þeir greindu alls 43 rann- sóknir og voru fleiri rannsóknir til fyrir flútíkasón (26 talsins; n = 21,247) en fyrir búdesóníð (17 talsins; n = 10,150). Flútíka- són jók tíðni lungnabólgu sem þarfnaðist sjúkrahúsinnlagnar (áhættuhlutfall 1,78, 95%, öryggisbil 1,50-2,12). Búdesóníð jók einnig líkur á lungnabólgu sem þarfnaðist sjúkrahúsinnlagnar (áhættuhlutfall 1,62, 95% öryggisbil 1,00-2,62). Fyrri greining hafði skoðað meðferð með samsettum lyfjum sem innihéldu innúðastera í bland við langvirk betaadrenvirk lyf. Þær rann- sóknir sýndu samanlagt gagnsemi þess- ara lyfja til þess að fækka versnunum og var áhættuhlutfall 0,73 (95% öryggisbil 0,69-0.-,78).6 Að meðaltali fengu þátt- takendur í þessum rannsóknum eina til tvær versnanir á ári sem sem þýðir að með þessum lyfjum má forða sjúklingum frá einni versnun á tveggja til fjögurra ára fresti. Þessi lyf bættu einnig lífsgæði, drógu úr einkennum og bættu lungna- starfsemi. Notkun þeirra fylgdi aukin áhætta lungnabólgu með áhættuhlutfalli 1,62 (95% öryggisbil 1,36-1,94). Þeir gátu ekki greint mun á áhættu eftir skammti og gerðu ekki upp á milli mismunandi tegunda af samsettum innúðalyfjum.5,6 Árið 2013 birtust einnig rannsóknir sem byggðu á stórum sjúklinga- og lyfjagagna- grunnum og könnuðu tengsl innúðastera og lungnabólgu hjá sjúklingum með lang- vinna lungnateppu. Rannsókn frá Québec í Kanada á 163.514 sjúklingum sýndi áhættuhlutfall á að fá lungnabólgu vera 1,69 (95% öryggisbil 1,63-1,75). Áhættan hélst með langtímanotkun og var horfin sex mánuðum eftir að notkun þeirra lauk. Áhættan var meiri með flútíkasón en búdesóníð og var skammtabundin.7 Rannsókn frá Svíþjóð sem fylgdi eftir 9893 sjúklingum með langvinna lungnateppu bar saman sjúklinga meðhöndlaða með búdesóníð/formóteról við þá sem fengu flútíkasón/salmeteról. Niðurstaðan var sú að meiri líkur voru á að fá lungnabólgu og leggjast inn á sjúkrahús hjá þeim sem not- uðu flútíkasón/salmeteról og var áhættu- hlutfallið 1,73 (95% öryggisbil 1,57-1,90) fyrir lungnabólgu og 1,74 (95% öryggisbil 1,56-1,94) fyrir innlögn á sjúkrahús.8 Mikilvægt er fyrir lækna að muna eftir því að ein aukaverkun innúðastera hjá sjúklingum með langvinna lungnateppu er aukin tíðni lungnabólgu. Ráðlagt er að fylgja klínískum leiðbeiningum um notkun innúðastera og ekki gefa þá sjúklingum sem ekki uppfylla þau skilyrði sem sett eru fram þar. Ef sjúklingar sem uppfylla skilyrði fyrir notkun þeirra eru að fá endurteknar lungnabólgur er rétt að hætta notkun innúðastera og gefa eingöngu langverkandi betaadrenvirk lyf í stað samsettra lyfja. Ef mikilvægt er talið að gefa innúðastera er rétt að nota fremur búdesóníð/formóteról en flútíkasón/ salmeteról. Rétt er að muna að þessar leiðbeiningar gilda fyrir sjúklinga með langvinna lungnateppu. Að minnsta kosti ein rannsókn hefur sýnt fram á aukna tíðni lungnabólgu hjá sjúklingum með astma.9 Það var eingöngu hjá þeim sem voru á háum skömmtum af innúðasterum. Hér er því komin enn ein ástæða fyrir því að nota alltaf lægstu mögulega skammta sem duga til að halda einkennum niðri hjá sjúklingum með astma. Heimildir 1. Chung KF, Wenzel SE, Brozek JL, Bush A, Castro M, Sterk PJ, et al. International ERS/ATS guidelines on definition, evaluation and treatment of severe asthma. Eur Respir J 2014; 3: 343-73. doi: 10.1183/09031936.00202013 2. Jen R, Rennard SI, Sin DD. Effects of inhaled corticos- teroids on airway inflammation in chronic obstructive pulmonary disease: a systematic review and meta-ana- lysis.Int J Chron Obstruct Pulmon Dis 2012; 7: 587-95. doi: 10.2147/COPD.S32765 3. Vestbo J, Hurd SS, Agustí AG, Jones PW, Vogelmeier C, Anzueto A, et al. Global strategy for the diagnosis, management, and prevention of chronic obstructive pulmonary disease: GOLD executive summary. Am J Respir Crit Care Med 2013; 187: 347-65. doi: 10.1164/ rccm.201204-0596PP 4. Loke YK, Kwok CS, Wong JM, Sankaran P, Myint PK. Chronic obstructive pulmonary disease and mortality from pneumonia: meta-analysis. Int J Clin Pract 2013; 67: 477-87. doi: 10.1111/ijcp.12120 5 Kew KM, Seniukovich A. Inhaled steroids and risk of pneumonia for chronic obstructive pulmonary disease. Cochr Datab Syst Rev 2014; 3: CD010115. 6. Nannini LJ, Poole P, Milan SJ, Holmes R, Normansell R. Combined corticosteroid and long-acting beta₂-agonist in one inhaler versus placebo for chronic obstructive pulmonary disease. Cochr Datab Syst Rev 2013; 11: CD003794. doi: 10.1002/14651858.CD003794.pub4 7. Suissa S, Patenaude V, Lapi F, Ernst P. Inhaled corticosteroids in COPD and the risk of serious pneumonia. Thorax 2013; 68: 1029-36. doi: 10.1136/ thoraxjnl-2012-202872 8. Janson C, Larsson K, Lisspers KH, Ställberg B, Stratelis G, Goike H, et al. Pneumonia and pneumonia related mortality in patients with COPD treated with fixed combinations of inhaled corticosteroid and long acting ₂2 agonist: observational matched cohort study (PATHOS). BMJ 2013; 346: f3306. doi: 10.1136/bmj.f3306 9. McKeever T, Harrison TW, Hubbard R, Shaw D. Inhaled corticosteroids and the risk of pneumonia in people with asthma: a case-control study. Chest 2013; 144: 1788-94. doi: 10.1378/chest.13-0871 Gunnar Guðmundsson lungnadeild Landspítala og læknadeild Háskóla Íslands, Landspítala E7 Fossvogi ggudmund@landspitali.is Eru tengsl á milli innúðastera og lungnabólgu?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.