Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2014, Blaðsíða 36

Læknablaðið - 01.04.2014, Blaðsíða 36
236 LÆKNAblaðið 2014/100 ■ ■ ■ Gunnþóra Gunnarsdóttir U M F J ö l l U n O G G R E i n a R „Áhugi minn á lýtalækningum byrjaði eiginlega þegar ég var stúdent á vakt á slysavarðstofunni, sem þá var í Heilsu- verndarstöðinni við Barónsstíg. Karlmaður sem hafði orðið fyrir áverka á andliti leitaði á slysadeildina, annað eyrað hafði nærri rifnað af en hékk þó á örlitlum þræði. Ég hringdi í Árna Björns- son lýtalækni og lýsti málinu fyrir honum og niðurstaðan varð sú að ég mundi ekki gera neinn skaða með því að sauma eyrað á, sem ég gerði og eyrað lifði. Svona er tilviljanakennt hvert lífið leiðir mann. Ég hafði engin stór plön í upphafi heldur leiddi eitt af öðru,“ segir Sigurður sem er fæddur 1936 í Vesturbænum í Reykjavík. „Sem Vesturbæingur fór ég á alla leiki með KR og það var voðalega erfitt að fara austur fyrir Læk að hitta stúlku. En það fór þó svo,“ segir hann glettnislega. Kveðst hafa gengið í Miðbæjarskólann þar til Melaskólinn var opnaður. Þá var hann sendur þangað og það þótti honum ergi- legt því félagarnir voru flestir áfram í Mið- bæjarskólanum. „Það skiptist akkúrat um götuna sem ég átti heima við,“ segir hann. „Síðan fór ég í Verslunarskólann sem var við Grundarstíg í þá daga.“ Ætlaðir þú að verða kaupsýslumaður? „Það var nú kannski ekki hugsunin en Verslunarskólinn bauð upp á fjögurra vetra nám til verslunarprófs sem var gagn- leg menntun. Tveggja vetra viðbótarnám bauðst til stúdentspróf sem ég lauk 1956. Eftir stúdentspróf var ég erlendis til ára- móta. Þegar ég kom heim var hugmyndin að fara í tannlæknadeild, en þar var ekki hægt að hefja nám á miðjum vetri, mér var þá sagt að ég gæti byrjað í læknadeild því þar væri kennd sama efnafræði. Mér líkaði svo vel við félagana í læknadeild að ég ákvað að vera þar áfram og námið gekk ágætlega.“ Féll vel á Landakoti Á kandídatsárinu var Sigurður á Landa- kotsspítala og fann strax að þar mundi hann vilja starfa ef kostur yrði á að sér- fræðinámi loknu. „Á Landakoti var hugur í læknum að gera vel, sérlega góð sam- skipti lyflækna og skurðlækna og mér féll vel við systurnar. Ég fékk styrk hjá American Scandinavi- an Foundation til að fara á Mayo Clinic í Rochester, Minnesota, til eins árs. Að yfir- veguðu máli fór ég í lyflækningar því ég taldi þær góða undirstöðu fyrir öll læknis- störf. En mig langaði í skurðlækningar, fékk framlengda dvölina um fjögur ár og lauk námi í almennum skurðlækningum á Mayo Clinic og MS-prófi frá University of Minnesota. Þegar við komum til Rochester voru fjórir íslenskir læknar þar fyrir í fram- haldsnámi en flest vorum við 8 um tíma, öll í mismunandi greinum. Það var eftir því tekið hvað við vorum mörg frá þessu litla landi. Þarna var allt í fremur föstum skorðum. Námslæknar voru yfirleitt þrjá mánuði í senn á hverri deild. Vaktaálag var mikið. Fyrstu tvö árin var ég á vakt aðra hverja nótt og daginn eftir vaktina þurfti ég að vinna venjulega dagvinnu fram að kvöldmat. Svo þegar heim kom þurfti að undirbúa kynningu fyrir næsta morgun. Það tók örlítið betra við á þriðja ári og á fjórða ári þurfti ég ekki að sofa inni á spítala en var á stöðugri bakvakt með kalltæki. Flestir sem hafa lært í Bandaríkjunum kannast við þetta vakta- álag. Dr. Oliver Beahrs var sá læknir sem mér fannst mest til um, hann hafði unnið fyrir sér í læknaskóla með því að sýna töfrabrögð við ýmis tækifæri, ég sá hann hins vegar aldrei í því hlutverki en inni á skurðstofu var hann einnig algjör galdra- maður. Hann var skipulagður og kom vel fram við námslækna. Ég fór síðan til Ann Arbor í Michigan í lýtalækningar. Það var gaman að vera í Ann Arbor sem er háskólabær með öllu því lífi sem því fylgir. Yfirlæknir deildar- innar var Dr. Reed Dingman. Mér er minnistætt þegar ég kom í starfsviðtalið til hans að sækja um námsstöðu. Þegar öllum venjulegum spurningum hafði verið svarað og umræðuefnið tæmt sá ég kunnuglegt landslag á málverki á skrifstofunni. Þetta reyndist vera málverk frá Þingvöllum og nú gafst tækifæri til að slaka aðeins á og ræða málverkið. Mál- verkið var eftir Dr. Harold Gillies, sem var brautryðjandi í lýtalækningum í og eftir fyrra stríð. Hann var Ný-Sjálendingur að uppruna, en starfaði í Bretlandi. Gillies var mikill áhugamaður um laxveiði og kom oft til Íslands í þeim erindum, en hann var jafnframt nokkuð slyngur list- málari og málaði íslenskt landslag. Síðar fékk ég þetta málverk að gjöf frá syni Dingmans að honum látnum og á nú sjálfur sumarbústað þar sem þetta lands- lag blasir við.“ Hjartað sló annars staðar Eftir nám í lýtalækningum vildi Sigurður bæta við sig frekari reynslu í sumum greinum sem hann taldi að hér heima yrðu augljós verkefni lýtalæknis, eins og bruna- meðferð og meðferð á krabbameini í munni og á hálsi. „Ég vann í hálft ár á brunadeild Mic- higan-háskóla. Þetta var afar stór deild og tók við öllum stærri brunum frá nær- liggjandi ríkjum. Mér fannst það erfitt starf að leggja sig allan fram dag og nótt vitandi það að líklega mundu flestir deyja eftir nokkra daga eða verða afskræmdir Eyra á örlitlum þræði var örlagavaldur – segir Sigurður E. Þorvaldsson lýtalæknir sem lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands og hugðist fara í tannlækningar. Sigurður hefur nýlega látið af störfum og fer hér lauslega yfir lífsgönguna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.