Læknablaðið - 01.04.2014, Blaðsíða 4
204 LÆKNAblaðið 2014/100
F R Æ Ð I G R E I N A R
4. tölublað 2014
207
Öryggi sjúklinga
– forysta og virk
þátttaka lækna er
nauðsyn
Ólafur Baldursson
Baráttan fyrir örugg-
ara heilbrigðiskerfi er
skammt á veg komin og
þarf mjög á stuðningi alls
samfélagsins að halda.
211
Sandra Gunnarsdóttir, Haraldur Briem, Magnús Gottfreðsson
Umfang og áhrif mislingafaraldranna 1846 og 1882 á Íslandi
Á Þjóðskjalasafni Íslands eru kirkjubækur
þjóðarinnar en í þær skráðu sóknarprestar upp-
lýsingar um fædda, fermda, gifta, burtvikna,
innkomna og látna. Þar eru persónugreinan-
legar upplýsingar, nafn, fæðingar- og dánar-
dagur, búseta og stundum dánarorsök. Fengið
var yfirlit hjá Þjóðskjalasafni Íslands um allar
sóknir landsins árin 1845-47 og 1881-83 og
kirkjubækur þeirra sókna yfirfarnar.
219
Ingibjörg Guðmundsdóttir, Steinn Steingrímsson,
Elsa Valsdóttir, Tómas Guðbjartsson
Sárasogsmeðferð - yfirlitsgrein
Á síðustu árum hefur sárasogsmeðferð rutt sér
til rúms um allan heim sem margir telja að sé
bylting. Myndaður er undirþrýstingur staðbundið
í sárbeðnum með loftþéttum umbúðum og
sárasugu sem tengd er við umbúðirnar. Þannig
er sárið hreinsað og flýtt fyrir að það grói. Sára-
sogsmeðferð er hægt að nota á flest sár en
þó sérstaklega sýkt skurðsár og langvinn sár
sykursýkissjúklinga. Meðferðin er dýrari en hefð-
bundnar sáraumbúðir en á móti kemur að sár-
græðsla er hraðari og getur það
stytt legutíma og minnkað kostnað.
100. ÁRGANGUR LÆKNABLAÐSINS
226
Framskyggnar slembirannsóknir og þýðing
þeirra fyrir framþróun læknisfræðinnar
Guðmundur Þorgeirsson
Hér er saga rannsóknaraðferðarinnar rakin og aðferðafræðilegum styrkleika og hlut-
verki í gagnreyndri læknisfræði gerð nokkur skil. Einnig eru takmarkanir og veikleikar
og helstu gryfjur á vegi rannsakenda ræddar sem og ný verkefni sem grillir í við
sjónarrönd.
209
Mislingar
– á hverfanda
hveli?
Sigurður Guðmundsson
Fræðilega er unnt að
útrýma mislingum og að
því er róið öllum árum, en
enn virðist útrýming ekki
í augsýn.
L E I Ð A R A R