Læknablaðið - 01.06.2015, Qupperneq 4
292 LÆKNAblaðið 2015/101
F R Æ Ð I G R E I N A R
6. tölublað 2015
296
Sigurður Ólafsson
Byltingarkenndar
framfarir í meðferð
lifrarbólgu C: Hvers
eiga íslenskir sjúk-
lingar að gjalda?
Læknar sjúklinga með
lifrarbólgu C um allan heim
upplifa nú ævintýralega
tíma. Komin eru á markað
lyf sem lækna flesta
af þessum alvarlega
sjúkdómi og hafa litlar
aukaverkanir. En samt
hvílir skuggi yfir meðferð
sjúklinga með lifrarbólgu C
hér á landi.
299
Þórey Steinarsdóttir, Elsa B. Valsdóttir, Páll Helgi Möller
Gallrásarsteinar eftir gallblöðrutöku á Landspítala 2008-2011
Gallsteinar og sjúkdómar tengdir þeim eru algeng vandamál þó margir sem hafa
gallsteina séu einkennalausir. Algengi gallsteina er 10-20% í Evrópu og Norður-
Ameríku og talið er að 8% hvítra kvenna í Norður-Ameríku fari í gallblöðrutöku á
lífsleiðinni. Gallblöðrutaka er ein algengasta aðgerð á Landspítala og undanfarið hafa
verið gerðar á bilinu 400 til 550 gallblöðrutökur þar árlega.
306
Steinunn Arna Þorsteinsdóttir, Herdís Sveinsdóttir, Jón Snædal
Óráð eftir opna hjartaaðgerð: kerfisbundin samantekt
á algengi, áhættuþáttum og afleiðingum
Óráð er bráð tímabundin truflun á meðvitund, athygli, hugsun, skynjun og
tilfinningum. Orsakir þess eru ekki að fullu þekktar en truflanir á taugaboðefnum og
bólguviðbrögð eru mögulegir orsakaþættir. Óráð er algengt vandamál eftir opnar
hjartaaðgerðir og afleiðingar geta verið alvarlegar. Þrátt fyrir það sýna rannsóknir að
vandamálið er vangreint og fyrirbyggingu og meðferð er ábótavant.
313
Karl G. Kristinsson, Franklín Georgsson
Innflutt fersk matvæli og sýkingaráhætta fyrir menn
Aðgangur að mat og hreinu vatni er ekki sjálfgefinn. Íbúum jarðar fjölgar hratt, úr
þremur milljörðum árið 1960 í rúmlega 7 milljarða í dag. Til að anna eftirspurn eftir
matvælum og geta boðið ódýrari matvæli hefur verksmiðjubúskapur í auknum mæli
tekið við af hefðbundnum búskap. Worldwatch Institute áætlaði að árið 2006 væru
74% kjúklinga, 43% nautgripa, 50% svína og 68% eggja í heiminum framleidd á þann
hátt. Kjötframleiðsla í heiminum næstum tvöfaldaðist á árunum 1980-2004 og vöxtur-
inn tengdist aðallega verksmiðjubúskap í þróunarlöndunum þar sem búskapurinn
hefur jafnframt verið að flytjast úr dreifbýli í þéttbýli. Aðstæður á verksmiðjubúum eru
ákjósanlegar fyrir útbreiðslu sýkla og getur verið erfitt að koma í veg fyrir þá þróun.
297
Ingibjörg Jónsdóttir
Af hverju er ávísun
á hreyfingu mikil-
væg innan heil-
brigðiskerfisins?
Við erum á tímamótum.
Stöndum saman í að vinna
að áframhaldandi þróun
og innleiðingu hreyfingar
sem meðferðarúrræðis í
íslensku heilbrigðiskerfi.
Við megum engan tíma
missa: nú er stóraukin tíðni
sjúkdóma þar sem hreyfing
gæti skipt sköpum.
L E I Ð A R A R
árgangar að baki
Notkun sýklalyfja í dýrum í 25
Evrópulöndum árið 2011 mælt
í mg/PCU (PCU, population
correction unit, notað til að
áætla sýklalyfjanotkun eftir
þyngd búfénaðar og sláturdýra
til manneldis).