Læknablaðið - 01.06.2015, Side 16
www.sak.is
Forstöðulæknir geðlækninga
og deildarlæknir geðlækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri
Lausar eru til umsóknar tvær stöður í geðlækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri.
ÖRYGGI • SAMVINNA • FRAMSÆKNI
Forstöðulæknir
Staðan veitist frá 1. ágúst 2015 til fimm ára.
Hæfniskröfur
Fullt lækningaleyfi og sérfræðiréttindi í geðlækningum.
Reynsla af stjórnun, hæfni á sviði samskipta og sam-
vinnu, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. Um-
sagnir stöðunefndar lækna sjúkrahússins og stöðunefnd-
ar Embættis landlæknis.
Forstöðulæknir geðlækninga hefur yfirumsjón með
geðlækningum og er leiðandi og stefnumótandi í grein-
inni á sjúkrahúsinu. Hann samræmir störf yfirlækna og
annarra sérfræðinga sem undir hann heyra til að tryggja
skjólstæðingum sjúkrahússins bestu mögulegu þjónustu.
Forstöðulæknir hefur eftirlit með vinnufyrirkomulagi og
mönnun innan einingarinnar í samræmi við markmið um
rekstur hennar og fjárhagsramma.
Deildarlæknir
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst,
eða í síðasta lagi 1. september 2015. Staðan veitist til 6
mánaða, eða lengur ef um semst.
Hæfniskröfur
Umsækjandi skal hafa fullgilt íslenskt lækningaleyfi.
Hæfni á sviði samskipta og samvinnu, frumkvæði og
sjálfstæði í vinnubrögðum nauðsynleg.
Helstu þættir starfsins
Í starfinu felst dagvinna skv. nánari fyrirmælum og
skipulagi forstöðulæknis geðlækninga. Stöðunni fylgir
vaktskylda á geðdeild. Um er að ræða námsstöðu og
fær deildarlæknirinn í starfi sínu leiðsögn og kennslu
hjá geðlæknum. Starfið felst í þjónustu við sjúklinga
geðlækninga, skráningu og samskiptum samkv. fyrir-
mælum, lögum og reglugerðum, þátttaka í kennslu nema
heilbrigðisstétta, aðstoð við verklega þjálfun læknanema
og þátttaka í meðferðarteymum einingarinnar.
Upplýsingar um starfið veita:
Sigmundur Sigfússon
forstöðulæknir geðlækninga
sími: 463 0100
netfang: sigmundur@sak.is
Ingvar Þóroddsson
framkvæmdastjóri lyflækningasviðs
sími: 463 0100
netfang: ingvarth@sak.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Læknafélags
Íslands og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
Umsóknarfrestur er til og með 15. júní n.k.
Umsóknum skal skilað á umsóknareyðublaði sem fæst
á vef sjúkrahússins www.sak.is. Umsóknum skulu fylgja
ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt próf-
skírteinum og starfsleyfi.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu
sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður.
Geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri er eina almenna geð-
deildin utan höfuðborgarsvæðisins og þjónar aðallega
íbúðum Norður- og Austurlands 18 ára og eldri. Þar er
veitt margvísleg meðferð við öllum bráðum og langvinn-
um geðröskunum, í góðri samvinnu við heilsugæslu,
sjúkrahúsdeildir, félagsþjónustu sveitarfélaga og aðra
aðila á svæðinu. Geðdeildin skiptist í tvær þjónustuein-
ingar, legudeild og dag- og göngudeild.