Læknablaðið - 01.06.2015, Side 36
324 LÆKNAblaðið 2015/101
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Verkfallið hefur víðtæk áhrif
Verkfall háskólamenntaðra starfsmanna á
heilbrigðisstofnunum hefur nú staðið hátt
í tvo mánuði án þess að hilli undir lausn
við samningaborðið. Þær stéttir sem eru
í verkfalli eru geislafræðingar, lífeinda-
fræðingar, ljósmæður og náttúrufræðing-
ar en störf þeirra snerta nær alla starfsemi
spítalans á einn eða annan hátt.
Læknablaðið leitaði til fimm yfirlækna
sérgreina á Landspítala og bað þá að lýsa
áhrifum verkfallsins á þeirra deildir og
sérsvið.
Þegar þetta er skrifað, 26. maí, eru allar
líkur á að verkfall hjúkrunarfræðinga hefjist
á miðnætti þann 27. og þarf enginn að velkj-
ast í vafa um áhrif þess á heilbrigðiskerfið
til viðbótar við nýlega afstaðin og yfirstand-
andi verkföll heilbrigðisstarfsfólks.
Í forstjórapistli sínum föstudaginn
22. maí sagði Páll Matthíasson forstjóri
Landspítalans:
„Í dag eru 45 dagar frá því verkfall BHM
hófst á Landspítala. Áhrifin eru afar alvar-
leg; 54.500 blóðtökum hefur verið frestað og
blóðsýni hafa skemmst vegna biðar, 6.100
myndgreiningarrannsóknum hefur verið
frestað, 370 skurðaðgerðum, 1.700 komum á
dag- og göngudeildir, auk þess sem áhrif á
fæðingarþjónustu og á starfsemi blóðbanka
eru mikil. Með þrotlausri baráttu starfsfólks
og góðu samstarfi við þau stéttarfélög sem
eru í verkfalli höfum við leitað allra leiða til
að tryggja öryggi sjúklinga og koma í veg
fyrir að fólk bíði varanlegt tjón. Hvort það
hafi tekist er ekki ljóst. Ljóst er hins vegar
að mjög langan tíma mun taka að glíma við
afleiðingar þessara verkfalla, bæði félaga
BHM sem og verkfalls læknafélaganna
sem varla hafði verið byrjað að vinda ofan
af þegar verkföll BHM hófust. Heilbrigðis-
kerfið er þegar keyrt að mörkum og því ekki
ljóst hvernig við tökumst á við það krefjandi
verkefni þegar þessum verkfallsaðgerðum
linnir.
Að óbreyttu mun verkfall Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga hefjast næsta
miðvikudag, 27. maí. Mun þá skapast for-
dæmalaust ástand í íslensku heilbrigðis-
kerfi. Fyrir því eru ýmsar ástæður. Í fyrsta
lagi er við að eiga uppsafnaðan vanda fyrri
verkfalla vetrarins. Í öðru lagi stendur verk-
Maríanna garðarsdóttir röntgenlæknir
og formaður Félags Íslenskra röntgenlækna
Helstu áhrif verkfallsins á sérgrein mína
eru þau að myndgreiningarrannsóknir
sem þarf að framkvæma tefjast eða eru
ekki framkvæmdar. Myndast hafa langir
biðlistar á Landspítalanum þar sem ég
starfa og óeðlilegar tafir hafa orðið, jafn-
vel á þjónustu við inniliggjandi sjúklinga.
Geislafræðingar eru nauðsynlegir til að
framkvæma rannsóknirnar sem við lesum
úr en þegar rannsóknirnar eru ekki fram-
kvæmdar getum við ekki veitt þá þjónustu
sem við læknar teljum nauðsynlega. Við
styðjum auðvitað geislafræðinga og aðra í
kjarabaráttu þeirra en það er framkvæmd
verkfallsins sem hefur reynst okkur afar
erfið og setur skorður sem við getum
illa sætt okkur við. Það er erfitt að geta
ekki sinnt þeim sjúklingum sem þurfa á
myndgreiningarrannsóknum að halda til
greiningar, meðferðar og eftirlits og ótt-
umst við að áhrif verkfallsins á sjúklinga
muni koma fram í langan tíma eftir að því
lýkur.
Þóra Steingrímsdóttir prófessor
og yfirlæknir kvenna- og barnasviðs
Á kvennadeildinni og í allri mæðravernd
og á öllum fæðingadeildum á landinu
erum við heft af ljósmæðraverkfalli, þar
sem 70% fæðinga landsins eiga sér stað.
Verkfall ljósmæðra hefur fyrst og fremst
áhrif, þrjá daga í viku, en allt annað gerir
okkur lífið líka erfiðara, lífeindafræðingar
í verkfalli fyrir hádegi, geislafræðingar
allan daginn og í dag varð mér ljóst að
tölfræðiráðgjafi (náttúrufræðingur, BHM)
sem við leituðum til í samstarfi um vís-
indavinnu hefur verið í verkfalli í 6 vikur
og vísindavinna verður víst seint talin
bráðatilvik eða nauðsynleg heilbrigðis-
þjónusta, svo þar hlaðast mörg verkefni
upp og verða jafnvel vanrækt.
Við þurfum að fresta skurðaðgerðum,
keisaraskurðum og framköllun fæðinga,
en á endanum verða flestar þessar aðgerð-
ir nauðsynlegar og bráðar og eru gerðar
undir þeim formerkjum.
Verst er þó að jafnvel þótt verkfallsað-
gerðirnar séu íþyngjandi fyrir okkur og
sjúklinga og skjólstæðinga er þetta varla
nógu beitt eða árangursríkt. Við styðjum
samstarfsstéttir okkar heilshugar og
svíður að sjá baráttu þeirra hálfmáttlausa.
fall fjögurra aðildarfélaga BHM enn með allri
þeirri truflun á starfsemi sem þau hafa í för
með sér. Í þriðja lagi þá eru hjúkrunarfræð-
ingar fjölmennasta stétt spítalans, þriðjung-
ur allra starfsmanna Landspítala. Hjúkrun
sjúkra er grundvallarþáttur í starfsemi hvers
sjúkrahúss og ótímabundið verkfallið skellur
af fullum þunga á sjúkrahúsinu og opinberri
heilbrigðisþjónustu allri frá fyrsta degi. Því
mun strax frá upphafi verða gífurleg röskun
á starfsemi, þrátt fyrir að undanþágulistar
muni koma til móts við þörf fyrir bráðaþjón-
ustu.”