Læknablaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 45
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
ingarinnar. Hann hvatti fundarmenn til að
kynna sér sænsku kröfulýsinguna.
„Það sem við höfum sett sem ófrá-
víkjanlegt skilyrði er að heimilislæknar
stýri einkareknum heilsugæslustöðvum og
að hagnaður/rekstrarafgangur sé til ráð-
stöfunar innan þeirrar sömu stöðvar. Þetta
hefur ekki þótt sjálfsagt í umræðunni en
það liggur í augum uppi að enginn mun
vilja taka þátt í þessu ef rekstrarafgangur
verður gerður „upptækur“,“ sagði Þórar-
inn.
Breytingar boðaðar á
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Einmitt sama dag og FÍH efndi til fundar-
ins sendi forstjóri Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins, Svanhvít Jakobsdóttir,
bréf til allra starfsmanna heilsugæslunnar
þar sem boðaðar eru verulegar breytingar
á stjórnun, rekstri og þjónustu hennar.
Í bréfinu segir meðal annars:
„Ágætu starfsmenn. Nú er að byrja
breytingaskeið hjá HH til að takast á við nýjar
áskoranir. Markmiðið er að efla þjónustu við
skjólstæðinga, nýta fjármuni betur og bæta
vinnuumhverfi starfsmanna.
Meðal áskorana er ný stefna stjórnvalda um
betri heilbrigðisþjónustu sem boðar grundvall-
arbreytingar á skipulagi starfsemi heilsugæslu-
stöðva. Á undanförnum árum hafa viðfangsefni
heilsugæslunnar verið að breytast með vaxandi
tíðni lífsstílssjúkdóma, geðrænna vandamála og
auknum fjölda sjúklinga sem þurfa mikinn og
alhliða stuðning. Um leið hefur verið skortur á
sérhæfðu starfsfólki sem kallar á nýja nálgun.“
Tvíhöfðinn missir annað höfuðið
Fram kom í umræðum á fundinum að
alltof mikil áhersla væri lögð á rekstrar-
form á kostnað innihalds þjónustunnar.
Sumir teldu einkarekstur heilsugæslu-
stöðva vera svarið við öllum vanda en þó
virtist sjónarmið Odds Steinarssonar lækn-
ingaforstjóra HH vera flestum að skapi
en hann taldi hvorutveggja eiga að vera
til staðar, með því væru tryggð heilbrigð
samkeppni og gæði þjónustunnar.
Í fyrrgreindu bréfi er lögð áhersla á skil-
virkari stjórnun HH, með því að lágmarka
miðstýringu, skýra ábyrgð stöðva og stytta
boðleiðir. „Til að gera stjórnun skilvirkari
verður nú einn rekstrarlega ábyrgur stjórnandi
á hverri heilsugæslustöð í stað tveggja nú. Þessi
yfirmaður verður jafnframt fagstjóri annað
hvort hjúkrunar eða lækninga en auk hans
verður annar fagstjóri.”
Hér er augljóslega verið að koma til
móts við djúpstæða óánægju með hina
svokölluðu „tvíhöfða“ stjórnun á heilsu-
gæslustöðvunum þar sem hjúkrun og
lækningar hafa verið aðskildar rekstrar-
lega. Fagleg stjórnun verður áfram aðskilin
en reksturinn á einni hendi. Menn veltu
fyrir sér hvort það myndi ekki skapa ann-
an vanda ef læknar yrðu hugsanlega undir
stjórn annarra starfstétta og hafa sumir
sagt að það myndu þeir aldrei samþykkja
og hætta væri á að slíkt myndi höggva
skörð í þegar undirmannaðar stöðvar.
Einnig segir í bréfinu: „Áhersla verður
lögð á þverfaglega teymisvinnu til að auðvelda
starfsmönnum HH að taka á flóknum vanda-
málum með fjölbreyttari úrræðum“.
Kom skýrt fram í umræðunum að nú-
tímalæknisfræði kallar á slíka nálgun og
reynsla þeirra sem starfað hafa á Norður-
löndunum styður þetta. Á hinn bóginn
var bent á að veruleikinn væri sá að í því
umhverfi aðhalds og niðurskurðar sem
ríkt hefur undanfarin ár hefur reynst erfitt
að halda stöðugildum sálfræðinga og fjöl-
skylduráðgjafa á heilsugæslustöðvunum
þrátt fyrir að þetta væru „lykilstöður“ að
sögn eins fundarmanna.
Ennfremur segir: „Rekstur heilsgæslu-
stöðvanna verður gerður sjálfstæðari og dregið
úr miðstýringu. Fjárhagsrammi stöðvarinnar
mun ráðast af greiðslulíkani sem byggir á
fjölda, aldri og heilsufari skjólstæðinganna, en
jafnframt verða stöðvarnar að fylgja kröfulýs-
ingu, lögum, reglugerðum og stefnu HH.“
Mikilvægur tónn er sleginn með þeim
orðum að „afgangi af fjárheimild hverrar
stöðvar sé ráðstafað til þjónustu stöðvarinnar,
fræðslu, aðstöðu, tækja og varasjóðs og launa-
umbunar.“
Í niðurlagi bréfs forstjóra HH er til-
tekið að boðaðar breytingar muni taka tvö
ár, frá hausti 2015-2017, og verður ráðist í
breytingarnar á einni stöð af annarri, fyrst
á heilsugæslunum Grafarvogi, Glæsibæ og
Mjódd.
Fundarmenn töldu að þetta lofaði
góðu en höfðu alla fyrirvara á um fram-
kvæmdina og sögðust varla hafa heyrt af
þessu fyrr en þeir fengu bréfið í hendur
og það kynni ekki góðri lukku að stýra að
hafa starfsmenn ekki með í ráðum við svo
mikilvægar breytingar.
Aðrir kváðust svo tortryggnir á aðgerð-
ir stjórnvalda að það sem sæist og heyrðist
væri aðeins toppurinn á ísjakanum, eflaust
væri ýmiss konar baktjaldamakk í gangi
sem enginn utan æðstu manna stjórnsýsl-
unnar og pólitíkusar hefðu vitneskju um.
Þorbjörn Jónsson formaður LÍ sagðist
ekki vita af slíku og lagði þunga áherslu á
að Læknafélag Íslands væri ekki þátttak-
andi í neinu baktjaldamakki ef það væri
yfirhöfuð til staðar.
Undir þetta tók Arna Guðmunds-
dóttir og sagðist hafa lagt öll gögn og upp-
lýsingar á borðið sem fjallað hefði verið
um í verkefnastjórn um betri heilbrigðis-
þjónustu.
Nokkrir fundarmanna sögðust hafa
komið á fundinn með þá von í brjósti
að raunverulegra tíðinda væri að vænta.
Svo væri ekki, heldur væri enn verið að
teygja lopann með hálfkveðnum vísum og
loforðum sem lítil innistæða virtist vera
fyrir. Þórarinn Ingólfsson sleit fundinum
með þeim orðum að sér þætti leitt að hafa
ekki getað lagt fram ákveðnari og skýrari
skilaboð en járnið væri heitt og því skyldi
áfram hamrað hvað sem tautaði. Félag ís-
lenskra heimilislækna og LÍ gerðu allt sem
hægt væri til að hafa áhrif á niðurstöðuna
heimilislækningum og sjúklingum til
góðs.
Framsögu höfðu þau
Þórarinn Ingólfsson og
Arna Guðmundsdóttir.
Þorbjörn Jónsson og
Oddur Steinarsson sátu
fyrir svörum.
LÆKNAblaðið 2015/101 333