Læknablaðið - 01.06.2015, Síða 50
Munnþurrkur sambærilegur lyfleysu
1,2
Það er önnur leið
til að njóta lífsins.
Fyrsti ß3-örvinn við einkennum ofvirkrar þvagblöðru
Heimildir: 1. Khullar et al. European Urology 63;(2013):283–295.
2. Nitti et al. J Urol 2013;189:1388–1395.
IS
B
E
T-
1
4
0
1
9
5
0
3
.2
0
1
5
338 LÆKNAblaðið 2015/101
Frá formanni Félags íslenskra öldrunarlækna
Síðastliðið haust fagnaði Félag íslenskra
öldrunarlækna 25 ára afmæli. Í félaginu
eru læknar með sérfræðimenntun í lyf-
og öldrunarlækningum og einnig þeir
læknar sem starfa við öldrunarlækningar
eða hafa þær sem áhugasvið. Félagar eru
ríflega 40 en rúmur helmingur hefur sér-
fræðimenntun í greininni.
Allt frá því að frumherjar öldrunar-
lækninga hér á landi hófu starfsemi í anda
greinarinnar á sjöunda áratugnum hefur
hún verið í stöðugri framþróun. Með
stofnun öldrunarlækningadeildar Land-
spítala í Hátúni og síðar öldrunarlækn-
ingadeildar í B-álmu Borgarspítala voru
stigin mikilvæg upphafsskref í uppbygg-
ingu greinarinnar. Í upphafi var hlutverk
öldrunardeilda við sjúkrahúsin langlega.
Fljótlega þróaðist starfsemi þessara deilda
í nútímalegt horf með greiningarvinnu,
endurhæfingu og útskriftum í heimahús
með stuðningi og í samstarfi við heima-
þjónustu.
Aðkoma að heilabilunarsjúklingum
varð síðar annað hlutverk öldrunarlækna
og hefur gríðarlegt verk verið unnið á
þeim vettvangi. Í fyrstu með þjónustu
á legudeildum, en síðar var stofnuð
minnismóttaka til greiningar og stuðnings
við heilabilunarsjúklinga og fjölskyldur
þeirra. Uppbygging dagdeilda með
virkri dagþjálfun hefur skipt sköpum
fyrir þennan sjúklingahóp. Nú eru vel á
annað hundrað pláss á dagdeildum á Stór-
Reykjavíkursvæðinu sem sinna heilabiluð-
um og hefur sú starfsemi stuðlað að lengri
búsetu þessa hóps á eigin heimilum. Þessi
uppbygging er gott dæmi um samstarf
fagstétta og stjórnvalda þar sem verulegur
árangur hefur náðst.
Við sameiningu sjúkrahúsanna í Land-
spítala háskólasjúkrahús á sínum tíma
varð til ein öflug öldrunarlækningadeild
með endurhæfingardeildum á Landakoti
og bráðaöldrunarlækningadeild í Foss-
vogi. Þar fer fram mikilvæg starfsemi sem
þó hefur tekið talsverðum breytingum í
áranna rás. Á tímabili var rekin líknar-
deild fyrir aldraðra á Landakoti sem var
illu heilli aflögð í kjölfar hrunsins. Einnig
var á tímabili rekin þjónusta í öldrunar-
geðlækningum sem var ákaflega mikil-
væg fyrir skjólstæðingana en fékk ekki
náð fyrir augum ráðamanna á þeim tíma
og var því aflögð. Þannig hefur þjónusta
öldrunarlækningadeildar lent í ýmsum
boðaföllum en stendur þó styrk eftir.
Umtalsverð uppbygging hefur orðið
á hjúkrunarheimilum í landinu þar sem
öldrunarlæknar koma á mörgum stöðum
að þjónustu, ýmist með beinni læknis-
þjónustu eða ráðgjöf. Á Akureyri eru þrír
öldrunarlæknar starfandi sem hafa átt
þátt í uppbyggingu greinarinnar þar, jafnt
endurhæfingu, hjúkrunarheimilisþjónustu
sem og vinnu með heilabilaða.
Öldrunarlækningadeild Landspítalans
hefur öflug tengsl við læknadeild HÍ, þar
sem öldrunarlæknar taka virkan þátt í
kennslu læknanema. Öldrunarlækninga-
deildin er einnig hluti af kennslupró-
grammi fyrir almenna lyflæknisfræði og
allir sérnámslæknar í heimilislækningum
sem koma á lyflækningasvið Landspítala
eru 6-8 vikur á öldrunarlækningadeild.
Því ber að fagna að lífslíkur Íslendinga
hafa aukist, en samfara hækkandi lífaldri
fjölgar langvinnum sjúkdómum sem fólk
lifir með, auk aldurstengdra breytinga
sem verða í líkamanum og eru ekki flokk-
aðar sem sjúkdómar, svo sem aukinn
stífleiki í æðakerfi, rýrnun á beinum og
vöðvum, væg vitræn skerðing og hrum-
leiki. Við þurfum að viðurkenna að gamalt
fólk er ekki bara eldra miðaldra fólk og
það þarf aðra nálgun sem krefst teymis-
vinnu, bæði utan spítala sem innan.
Á Landspítala er nú í undirbúningi
stofnun þverfaglegs öldrunarteymis fyrir
bráðalegudeildir spítalans. Það er vel
þekkt að fjölveikir aldraðir eru í aukinni
hættu á neikvæðum afleiðingum sjúkra-
húsvistar, svo sem færnisskerðingu, óráði,
byltum og þrýstingssárum sem geta leitt
til lengri legutíma, aukins kostnaðar og
jafnvel hindrað að einstaklingar geti út-
skrifast heim á ný í sjálfstæða búsetu.
Markmið teymisins er að finna þá sem
leggjast inn á Landspítala og eru í mestri
hættu á alvarlegum afleiðingum legu.
Einfalt skimunartæki verður notað strax
við innlögn sem finnur þá sem eru við-
kvæmastir. Teymið fær vitneskju um
innlögn þessa fólks og mun bjóðast til
að framkvæma alhliða öldrunarmat til
að kortleggja þarfir viðkomandi og veita
ráðgjöf til lækna og hjúkrunarfólks sem
miðar að því að viðhalda færni, sjálfstæði
og vellíðan einstaklingsins, auk þess að
draga úr hættu á neikvæðum afleiðingum
legunnar.
Framtíðin er björt og það er mikil
gróska innan greinarinnar. Unnið er að
því að öldrunarlæknar komi að greiningu
og meðferð aldraðra sjúklinga allt frá
fyrstu komu þeirra á Landspítala og
þangað til þeir útskrifast heim. Þetta
verður gert með aðkomu öldrunarlækna
og hjúkrunarfræðinga með sérmenntun
innan öldrunarfræða, strax á bráða-
móttöku en þaðan verði skjólstæðingum
okkar vísað í viðeigandi úrræði. Sumir
munu þurfa á innlögn að halda og þá mun
áðurnefnt öldrunarteymi fylgja þeim eftir,
aðrir útskrifast heim en þurfa hugsanlega
að koma í áframhaldandi greiningu og
meðferð á göngudeild öldrunarlækna á
Landakoti, og þriðji hópurinn getur að
öllum líkindum farið til heimilislæknis.
Lykillinn að því að þessi áform verði að
veruleika er öflug teymisvinna og eru
öldrunarlæknar tilbúnir til samvinnu við
kollegana og aðrar fagstéttir til þess að af
þeim verði.
Mikilvægt hlutverk
öldrunarlækninga
Sigurbjörn
björnsson
formaður Félags
íslenskra öldrunarlækna
sigurb.bjornsson@gmail.com