Læknablaðið - 01.10.2014, Side 49
Líkur á að upplifa kulnun,1 að fara fyrr á
eftirlaun,2 að hætta að vinna sem læknar2
og að flytja af landi brott3 er meiri hjá
læknum sem eru óánægðir í starfi en
hinum. Einnig eru tengsl milli starfs-
ánægju lækna4 og ánægju sjúklinga5
og gæða heilbrigðisþjónustu.6,7 Vegna
kreppunnar sem hafði svo víðtæk áhrif
á Íslandi vildum við rannsaka starfs-
ánægju íslenskra lækna og bera saman
við lækna í Noregi þar sem kreppan hafði
lítil áhrif. Það er margt líkt með íslenska
og norska heilbrigðiskerfinu8,9 og frammi-
staða (health policy performance) þeirra er
meðal bestu í heimi.10 Útgjöld Noregs og
Íslands til heilbrigðisþjónustu sem hlut-
fall af vergri landsframleiðslu eru svipuð
(um það bil 9,5% 2010)11 en heildarútgjöld
miðað við höfðatölu lækkuðu á Íslandi
á árunum 2008-2010 en jukust í Noregi á
sama tímabili.12 Þessar aðstæður gerðu það
sérlega áhugavert að bera saman íslenska
og norska lækna þar sem fjárhagsleg um-
gjörð starfsins milli þessara landa breyttist
á skömmum tíma.
Vorið 2010 var gerð rannsókn meðal
allra starfandi lækna á Íslandi, þar sem
61% (n = 622/1024) svöruðu. Sama ár var
gerð rannsókn meðal norskra lækna (svör-
un 67%, n= 1025/1522).13 Tvær greinar hafa
nú verið birtar sem byggja á gögnunum14,15
en höfundum þeirra finnast niðurstöður
þeirra eiga sérstakt erindi til íslenskra
lækna og þykir rétt að vekja athygli þeirra
á þeim. Hér fyrir neðan eru meginniður-
stöður dregnar saman en að öðru leyti er
lesendum bent á greinarnar sjálfar.
Greinarnar sýna að mikill meirihluti
læknanna (77%) upplifði að sparnaðarráð-
stafanir hefðu áhrif á vinnu þeirra. Slík
upplifun hafði áhrif á ánægju í starfi og
það hvort læknarnir höfðu hugleitt að
flytja og starfa erlendis á næstu árum.
Aðeins 37% sérfræðilæknanna svöruðu að
áhyggjur af eigin fjárhag væri ekki streitu-
valdandi. Því meiri sem streituvaldandi
áhyggjur voru af eigin fjárhag því meiri
líkur voru á því að sérfræðilæknar hefðu
hugleitt að flytja og starfa erlendis. Margir
sérfræðilæknar höfðu hugleitt að flytja
og starfa erlendis á næstu árum (63%) og
4% sögðust flytja erlendis á næstu tveim
árum. Þeir sérfræðilæknar sem störfuðu
erlendis í fríum (10%) voru fimm sinnum
líklegri til að hafa hugleitt að flytja og
starfa erlendis. Læknar sem voru óánægðir
í starfi voru líka líklegri til að hafa hugleitt
þetta.
Hvað varðar starfsánægju íslensku
læknanna voru þeir óánægðari en norskir
læknar í starfi. Stærsti munurinn á ís-
lensku og norsku læknunum var ánægjan
með launin. Einnig var verulegur munur á
ánægju með möguleika eða tækifæri til að
nota eigin hæfileika í vinnunni og ánægju
með vinnutímann. Íslensku læknarnir
voru líka óánægðari en norsku læknarnir
með vinnuaðstæður og viðurkenningu
fyrir góða vinnu. Sjálfstætt starfandi
læknar á Íslandi voru ánægðari í starfi en
sjúkrahúslæknar og heimilislæknar. Yngri
læknar á Íslandi voru einnig óánægðari í
starfi en eldri og meðal sérfræðilæknanna
höfðu fleiri yngri en eldri læknar hugleitt
að flytja og starfa erlendis. Streita tengd
því að ná jafnvægi milli heimilis og vinnu
var há meðal íslensku læknanna og þetta
hafði áhrif á starfsánægju þeirra. Læknar
á Landspítala voru óánægðari í starfi 2010
(þegar rannsóknin var gerð) en 2003.
Miðað við upplýsingar í fjölmiðlum um
bágt ástand tækja, húsnæðis og búnaðar
og skoðanir lækna sem fram hafa komið
að undanförnu er ekki órökrétt að ætla að
líðan lækna í starfi hafi síðan rannsóknin
var gerð frekar versnað en hitt. Vissulega
væri áhugavert að rannsaka það enn
frekar. Allavega er víst að átaks er þörf
til að bæta starfsumhverfi og laun lækna
ef íslenskt heilbrigðiskerfi á að vera til
fyrirmyndar og standa jafnfætis því sem
best þekkist. Með áframhaldandi stefnu,
eða stefnuleysi, þar sem eðlileg uppbygg-
ing, forgangur starfsumhverfis og kjara
eru ekki á oddinum munu okkar bestu
starfsmenn hverfa annað til starfa í enn
ríkara mæli. Afleiðingar af slíku fyrir heil-
brigðiskerfið eru ekki góðar.
Heimildir
1. Visser MR, Smets EM, Oort FJ, De Haes HC. Stress, satis-
faction and burnout among Dutch medical specialists.
CMAJ 2003, 168: 271-5.
2. Landon BE, Reschovsky JD, Pham HH, Blumerthal D.
Leaving medicine: the consequences of physician dissatis-
faction. Med Care 2006, 44: 234-42.
3. Vanasse A, Scott S, Courteau J, Orzanco MG. Canadian
family physicians’ intention to migrate: associated factors.
Can Fam Physician 2009, 55: 396-7.
4. Haas JS, Cook EF, Puopolo AL, Burstin HR, Cleary PD,
Brennan TA. Is the professional satisfaction of general
internists associated with patient satisfaction? J Gen
Intern Med 2000; 15: 122-8.
5. DiMatteo MR, Sherbourne CD, Hays RD, Ordway L,
Kravitz RL, McGlynn EA, et al. Physicians‘ characteris-
tics influence patients‘ adherence to medical treatment:
results from the Medical Outcomes Study. Health Psychol
1993, 12: 93-102.
6. Grembowski D, Paschane D, Diehr P, Katon W, Martin D,
Patrick DL. Managed Care, Physician Job Satisfaction, and
the Quality of Primary Care. J Gen Intern Med 2005, 20:
271-7.
7. Wallace JE, Lemaire JB, Ghali WA. Physician wellness: a
missing quality indicator. Lancet. 2009, 374: 1714-21.
8. Rechel B, Dubois C, McKee M. The Health care work-
force in Europe - Learning from experience. World Health
Organization on behalf of the Europiean Observatory on
Health Systems and Policies. The Cromwell Press, Wilts
2006.
9. Magnussen J, Vrangbæk K, Saltman RB. Nordic health
care systems, recent reforms and current policy challen-
ges. European observatory on health systems and policies
series. Open University Press, London 2009.
10. Mackenbach JP, McKee M. A comparative analysis of
health policy performance in 43 European countries. Eur J
Public Health 2013; 23: 195-201.
11. Stig K, Lütz IP and The Nordic Reference Group.
Financing of Health Care in the Nordic Countries.
NOMESCO Nordic Medico Statistical Committee 99:2012.
nomesco-eng.nom-nos.dk/filer/publikationer/Financing.
pdf - september 2014.
12. The World Bank, World Health Organization National
Health Account database, data.worldbank.org/indicator/
SH.XPD.PCAP.PP.KD - september 2014.
13. Aasland OG. 20 years of doctor research. Public Service
Review: European Science and Technology 2012; 15: 206-7
14. Solberg IB, Tómasson K, Aasland O, Tyssen R. The impact
of economic factors on migration considerations among
Icelandic specialist doctors: a cross-sectional study. BMC
Health Serv Res 2013; 13: 524.
15. Solberg IB, Tómasson K, Aasland O, Tyssen R. Cross-
national comparison of job satisfaction in doctors
during economic recession. Occup Med (Lond) 2014.
doi:10.1093/occmed/kqu114.
LÆKNAblaðið 2014/100 545
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
Starfsánægja minni hjá
íslenskum læknum en norskum
ingunn
bjarnadóttir
Sólberg
læknanemi við
Háskólann í Osló
i.b.solberg@studmed.uio.no
kristinn
Tómasson
yfirlæknir
Vinnueftirlitsins
kristinn@ver.is