Læknablaðið - 01.09.2014, Side 7
LÆKNAblaðið 2014/100 439
R i T S T J Ó R n a R G R E i n
Frá hruni (og líklega lengur) hefur fjórð-
ungur hvers árs hjá stjórnendum Land-
spítala að verulegu leyti farið í að berjast
fyrir fjárframlögum sem dugi til reksturs
þjóðarsjúkrahússins. Ekki fé til að gera nýja
og framsýna hluti, heldur í harða baráttu
fyrir fjármunum til lögbundinna verkefna
spítalans.
Landspítali hefur fengið gagnrýni á síð-
ustu vikum vegna umframkeyrslu fjárlaga,
samkvæmt 6 mánaða uppgjöri. Þó skeikar
einungis um 2%, sem skýrist af ófyrirsjáan-
legum breytileika í heilbrigðisþjónustu þar
sem sveiflur eru í eftirspurn og óhægt um
vik að takmarka starfsemi. Á Landspítala
er vel farið með fjármuni og þeim varið til
verkefna sem bæta öryggi og þjónustu við
sjúklinga. Hvað veldur því þá að spítalinn
hefur á fyrri hluta þessa árs farið fram úr
fjárlögum?
Fyrstu mánuðir þessa árs sýna starf-
semisaukningu á legudeildum Landspítala
miðað við 2013 sem birtist í hærri meðal-
fjölda inniliggjandi sjúklinga í hverjum
mánuði miðað við árið á undan. Mis-
munurinn nær hámarki á sumarmánuðum
og jafngildir allt að tveimur legudeildum.
Aukningin er mest á kvennadeildum og
vökudeild auk nokkurra legudeilda lyf-
lækninga- og skurðlækningasviða. Rúma-
nýting spítalans er of há og ekkert má því
út af bera svo ekki komi til endurtekinnar
„rúmakrísu“ með tilheyrandi gangayfir-
lögnum, álagi á starfsfólk, yfirvinnu og
öryggisógn.
Annar kostnaðarsamur þáttur – og ör-
yggisógn – er vaxandi óhagræði af gömlu
húsnæði sem dreift er út um allar þorpa-
grundir, en einnig gífurlega kostnaðar-
samt (og að mestu ófjármagnað) viðhald
þeirra húsa. Það mál mun fyrst leysast með
nýbyggingum á Landspítalalóð. Þar til úr
rætist erum við tilneydd að stunda látlausa
flutninga á veiku fólki, tækjum og verð-
mætu starfsfólki fram og aftur um bæinn.
Aðrir stórir þættir sem rétt er að nefna
eru óleyst mál varðandi kostnað mjög
dýrra líftæknilyfja. Þá má geta þess að
ólíkir útreikningar fjármálaráðuneytis og
Landspítala á áhrifum kjara- og stofnana-
samninga leiða oft til þess að Landspítali
fær launakostnað ekki bættan að fullu, sem
er í raun ígildi sparnaðarkröfu. Einnig má
nefna ógreiddar skuldir annarra sjúkra-
stofnana við spítalann. Samanlagt er þarna
um hærri fjárhæðir að ræða en nemur halla
spítalans.
Ljóst er að fjárveitingar til Landspítala
eru enn ekki nægar. Benda má á að hver
framleiðslueining á Karolinska háskóla-
sjúkrahúsinu kostar 58% meira en á Land-
spítala. En rekstrarkostnaður Landspítala
árið 2014 á föstu verðlagi, án tækjakaupa,
er nærri 4,5 milljörðum króna lægri en árið
2008! Frá 2008 hefur orðið mikil framþróun
í sérhæfðri sjúkrahúsþjónustu, framþróun
sem skilar sér í betri heilsu – en kostar fé.
Jafnframt hefur því heiðursfólki sem komið
er á efri ár fjölgað. Það kostar einnig, því
eldri sjúklingar eiga við fleiri og erfiðari
vandamál að etja og þurfa oft lengri tíma
til að ná sér.
Afleiðingar langtíma fjársveltis eru
ljósar. Í mörgum skilningi náði Landspítali
botninum árið 2013. Þar héldust í hendur
ónóg fjármögnun til lengri tíma og sem
afleiðing af því minni starfsánægja en áður
hafði mælst. Hallinn nam tæplega 1500
milljónum króna og mikil ólga varð meðal
starfsfólks. Það tekur tíma að snúa þeirri
þróun við. Stjórnvöld settu inn nauðsynlegt
viðbótarfjármagn árið 2014 sem hefur gert
okkur kleift að fá viðspyrnu. Leiðin sem
hefur verið farin til þess að hefja viðspyrnu
spítalans árið 2014 var í fyrsta lagi að bæta
eftir mætti tæki og húsnæði, í öðru lagi að
bæta starfsskilyrði starfsfólks og í þriðja
lagi að bregðast við flóknum rekstrarvanda
með ýmsum hætti og nýttist um það bil
helmingur viðbótarfjármagns í rekstur.
Fyrst og fremst þurfum við þó uppbygg-
ingu húsnæðis Landspítala og sameiningu
bráðaþjónustu á Hringbraut. Endurnýjun
húsnæðis er ekki óþarfi, heldur lykilþáttur
í því að tryggja öryggi og þjónustu heil-
brigðisþjónustunnar. Þar vitum við að
Alþingi stendur á bak við okkur1 og við
treystum því að hægt verði að finna leiðir
til að fjármagna uppbygginguna sem allra
allra fyrst, því engan tíma má missa.
Við starfsfólk Landspítala stöndum að
sjálfsögðu áfram vörð um þann hornstein
heilbrigðisþjónustunnar sem þjóðarsjúkra-
húsið er. Við treystum því að stjórnvöld
sýni því skilning að minniháttar sveiflur
í rekstri jafnstórrar þjónustustofnunar eru
eðlilegar og ekki merki um óráðsíu. Við
þurfum líka skilning á því að enn vantar
sem nemur nokkrum prósentum í rekstrar-
grunn Landspítala, eigi hann að geta sinnt
þeim verkefnum sem honum eru falin.
Alþingi hefur vissulega mikilvægu hlut-
verki að gegna sem eftirlitsaðili með því
almannafé sem það deilir út til stofnana.
Það er hins vegar sameiginlegt verkefni
okkar að tryggja landsmönnum þá heil-
brigðisþjónustu sem þeir hafa rétt til. Með
fullnægjandi fjárveitingum í takt við raun-
verulegan kostnað við þá þjónustu sem
Landspítala er ætlað að sinna, má komast
hjá endurteknum deilum um keisarans
skegg.
1althingi.is/altext/143/s/1249.html
Running the national University Hospital - budgeting
must meet service requirements
Páll Matthíasson,
MD MRCPsych PhD, is a consultant psychiatrist, a clinical
Associate Professor at The university of Iceland and the
CEo of Landspitali - The National university Hospital of
Iceland.
Rekstur Landspítala
– fjárframlög í samræmi við hlutverk
pallmatt@landspitali.is
Páll
Matthíasson
Höfundur er geðlæknir og
forstjóri Landspítala.
Meðferð við ofnæmiskvefi1
Meðferð við ofnæmiskvefi1
flútíkasónfúróat
Hver sem ástæðan er,
hver sem árstíðin er
* Notist eingöngu í nef
Ja
nú
ar
2
01
4
IS
/F
F/
00
01
d/
12
(1
)
AVAMYS nefúði, dreifa. Hver úðaskammtur gefur 27,5 míkrógrömm af flútíkasónfúróati. Ábendingar: Avamys er
ætlað til notkunar hjá fullorðnum, unglingum og börnum (6 ára og eldri), Avamys er ætlað til meðferðar við einkennum
ofnæmiskvefs. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og unglingar (12 ára og eldri): Ráðlagður upphafsskammtur er tveir
úðaskammtar í hvora nös einu sinni á dag. Þegar fullnægjandi stjórn á einkennum hefur náðst gæti minni skammtur,
einn úðaskammtur í hvora nös, nægt til viðhaldsmeðferðar. Skammturinn skal stilltur á minnsta skammtinn sem
viðheldur fullnægjandi stjórn á einkennum. Börn (6 til 11 ára): Ráðlagður upphafsskammtur er einn úðaskammtur í
hvora nös einu sinni á dag. Sjúklingar sem sýna ekki fullnægjandi svörun við einum úðaskammti í hvora nös einu sinni
á dag geta notað tvo úðaskammta í hvora nös einu sinni á dag. Þegar fullnægjandi stjórn á einkennum hefur náðst
er mælt með því að minnka skammtinn niður í einn úðaskammt í hvora nös, einu sinni á dag. Börn yngri en 6 ára:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum yngri en 6 ára. Öryggi og verkun hjá þessum hópi hafa ekki verið
vel staðfest. Aldraðir sjúklingar og sjúklingar með skerta nýrnastarfsemi: Engin þörf er á aðlögun skammta hjá þessum
hópum. Sjúklingar með skerta lifrarstarfsemi: Engin þörf er á aðlögun skammta þegar um væga eða miðlungsmikla
skerðingu á lifrarstarfsemi er að ræða. Engar upplýsingar liggja fyrir um sjúklinga með mikið skerta lifrarstarfsemi.
Frábendingar Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna. MARKAÐSLEYFISHAFI: Glaxo Group Ltd,
980 Great West Road, Brentford, Middlesex, TW8 9GS, Bretland. Fulltrúi markaðsleyfishafa: GlaxoSmithKline ehf.
Þverholti 14, 105 Reykjavík, Ísland, Sími 530 3700, Dagsetning endurskoðunar textans: apríl 2013. Upplýsingar
um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá
–www.serlyfjaskra.is
Pakkningar og verð (janúar 2014)
Avamys nefúði 27,5 mcg/sk 120 skammtar R,G 2.849 kr
Aukaverkanir má tilkynna á vef Lyfjastofnunar: www.lyfjastofnun.is/Aukaverkanir/tilkynna eða
til GlaxoSmithKline í síma 530 3700.
Heimildir:
1. www.serlyfjaskra.is.
Nykær 68
DK-2605 Brøndby
T +45 36 35 91 00
F +45 36 35 91 01
www.glaxosmithkline.dk