Læknablaðið - 01.09.2014, Blaðsíða 50
482 LÆKNAblaðið 2014/100
Vegabætur á veginum til Vestfjarða hafa
verið til umræðu að undanförnu og er tek-
ist á um vegagerð um Teigsskóg í Þorska-
firði. Því rifjaðist upp fyrir mér löngu
liðinn atburður úr einni lítilli læknisævi.
Sunnudaginn 15. mars 1981 fékk ég
símtal frá Skálanesi vegna veikinda Ingi-
bjargar Jónsdóttur, konu Jóns Einars Jóns-
sonar bónda á Skálanesi. Margir sem fóru
um hlaðið á Skálanesi á leið sinni vestur
á firði minnast Jóns. Hann rak þar útibú
Kaupfélags Króksfjarðar, seldi bensín
og olíur en einkum og sér í lagi óbarinn
vestfirskan harðfisk og vísaði viðskipta-
vinunum á klubbu og stein handan vegar.
Ég var læknir í Búðardal á þessum tíma
og náði svæði heilsugæslustöðvarinnar
í Búðardal að hreppamörkum Gufudals-
sveitar og Múlahrepps á Klettshálsi. Var
það um 150 km vestan við Búðardal. Þá
var enn búið á mörgum bæjum í Gufu-
dalssveit, meðal annars á þremur bæjum í
Kollafirði. Liðlega 120 km voru frá Búðar-
dal á Skálanes. Ég mat vandann þannig að
sinna þyrfti sjúklingnum án tafar.
Þetta var snjóþungur vetur. Töluvert
hafði snjóað um nóttina og dregið og erfið
færð um allar sveitir. Svínadalur var alveg
ófær, Gilsfjörður þokkalegur en hálsarnir
í Austur-Barðastrandarsýslu, Hjallaháls
og Ódrjúgsháls, ófærir. Veðrið var annars
gott, bjart og bloti í snjónum. Var úr
vöndu að ráða. Annaðhvort þurfti að fá
alla leiðina opnaða með dýrum tækjum
Vegagerðarinnar eða fá þyrlu til að flytja
mig á staðinn, sem var ekki eins sjálfsagt
mál í þá daga og nú. Ég hafði samband
við Þorgeir Samúelsson frá Höllustöðum
en hann var hefilsstjóri Vegagerðarinnar
á Reykhólum (nú verksmiðjustjóri í Þör-
ungaverksmiðjunni). Þorgeir var ódeigur
til hjálpar ef því var að skipta, en nú sá
hann mörg tormerki á mokstri, hann yrði
heilsugæslunni óbærilega dýr. En Þorgeir
var ekki ráðalaus; ég skyldi koma mér
vestur og síðan myndum við hittast á Stað
á Reykjanesi og freista þess að fara yfir á
Skálanes á snjósleða. Firðirnir væru á ís og
þetta yrði sennilega skásti kosturinn.
Ég lét ekki segja mér þetta tvisvar og
bjó mig út þegar í stað með nauðsynleg
gögn og hjartalínuritstæki sem hafa mátti
í tösku um öxl. Ég var venjulega á ferðum
sem þessum í ullarfötum, lopapeysu,
skíðasmekkbuxum og VÍR-gæruúlpu,
sem ég á enn. Slíkur fatnaður er kallaður
aumingjaúlpa á mínu heimili en telst eftir-
sótt munaðarvara af menntaskólafólki. Þá
hafði ég jafnan litla lyfjatösku og aukaföt
og nesti ef á þyrfti að halda. Ferðin sóttist
vel til að byrja með inn í Hvammssveit en
þá varð ég að taka stefnuna út á Fellströnd
og fara fyrir strandir sem kallað er.
Færðin þyngdist stöðugt og í móunum
fyrir neðan Rauðbarðaholt þurfti ég að
járna Volvoinn minn, sem oft kom fyrir.
Ég naut þess þó að einhver var á undan
mér og höfðu skaflarnir víða verið hand-
mokaðir. Brátt ók ég fram á Björn Stefán
Guðmundsson kennara frá Reynikeldu
á Skarðsströnd, þar sem hann var einn á
ferð með hestakerru. Ætlaði að ná í hross
sem hann átti vestur í Reynikeldu. Þótti
mér hann heldur velja daginn til þess, en
Birni er ekki fisjað saman. Eftir þetta var
ferðin tíðindalaus. Skarðsströndin er alla
jafna snjólétt og lítil vandræði nema þar
sem vegarstæðið er slæmt og skafrenn-
ingurinn hleður í.
Ég kom að Stað einhvern tímann upp
úr miðjum degi. Veðrið var enn gott en þó
heldur tekið að þykkna í lofti og það var
komið frost. Þeir tóku á móti mér Þorgeir
og kunningi minn Eiríkur Snæbjörnsson,
bóndi á Stað, sem ætlaði að fylgja okkur á
dráttarvél til strandar. Hann var auðvitað
öllum hnútum kunnugur. Þorskafjörður,
Djúpifjörður og Gufufjörður voru allir
ísi lagðir og engin hætta nema ef til vill
uppi við land. Við Þorgeir settumst nú á
sleðann, ég sat fyrir aftan og brá töskunni
með hjartaritinu á bakið en hafði læknis-
töskuna og aukabúnaðinn í fanginu. Þótti
mér það ágæt vist.
Við lögðum á ísinn til norðurs með
stefnu á Hallsteinsnes til að hafa sem
traustastan ís og rétt sunnan nessins
sveigði Þorgeir til vesturs í stefnu á Grónes
og fórum við þar rétt undan landi. Þá
tók hann stefnu á Hofsstaði sem er „hæg
smájörð“ vestan til í Gufufirði. Þar tókum
Sigurbjörn Sveinsson
heilsugæslulæknir og fyrrum formaður LÍ
sigurbjorn.sveinsson@heilsugaeslan.is
Í Skálanesi 1981
Söguslóðir Sigurbjörns líta svona út á korti Landmælinga Íslands af Gufudal.
Þetta er í grunninn kort frá árinu 1911 sem Landmælingadeild danska herforingjaráðsins (Generalstabens topogra-
fiske Afdeling) mældi út og teiknaði. Einsog fleira gott má finna þetta inn á timarit.is