Læknablaðið - 01.09.2014, Page 58
ö l D U n G a D E i l D
Stjórn Öldungadeildar
Magnús B. Einarson formaður, Þórarinn
Sveinsson ritari, Hörður Alfreðsson gjaldkeri,
Guðmundur oddsson, Guðrún Agnarsdóttir.
Öldungaráð
Jóhann Gunnar Þorbergsson, Jón Hilmar
Alfreðsson, Kristín Guttormsson, Sigurður E.
Þorvaldsson, Tryggvi Ásmundsson, Valgarður
Egilsson.
Umsjón síðu
Páll Ásmundsson
Vefsíða: http://innri.lis.is/oldungadeild-li
Magnús Jónsson sagnfræðingur var leið-
sögumaður og fararstjóri. Flogið var til
Manchester í Englandi. Þaðan var haldið
til Liverpool og tekin ferja til Douglas,
höfuðborgar eyjarinnar Manar.
Mön er 572 km2, 52 km á lengd og
mesta breidd er 22 km.
Fyrsta morguninn var skoðuð Old
Kirk Braddon í Douglas. Þar eru frægir
rúnasteinar og steinkrossar. Þá var haldið
til Tynwald sem er fagur grasflötur með
háum hól. Þar hefur árlegt allsherjarþing
Manar verið haldið óslitið í meira en
1000 ár og talið vera elsta þing í heimi.
Í borginni Peel á vesturströndinni er
byggðasafnið Manannan sem segir sögu
frumbyggja eyjarinnar og víkinga. St.
Patricks-eyja er nú áföst við land. Þar
byggði Magnús berfætti virki rétt fyrir
árið 1100. Þar er nú kastali og rústir í fögru
umhverfi. Nú var haldið til austurstrandar
að bænum Laxey. Þar blasti við stærsta
hjól knúið vatni. Það er 22 m í þvermál og
hefur snúist stanslaust síðan 1854. Ekið
var skammt frá hæsta fjalli eyjarinnar,
Snaefell, rúmlega 600 metra háu. Síðdegis
var farið í Manx Museum í Douglas. Þar
eru gripir tengdir sögu eyjarinnar.
Næsta dag var farið um sunnanverða
eyjuna og stansað við Braaid. Þar eru leifar
byggðar um 4000 ára gamlar. Í bænum
Castletown skoðuðum við gamlan kastala.
Þar inni er sýndur lifnaður aðalsins á mið-
öldum. Skammt þaðan er byggðasafnið
Cregneash. Þar eru rófulausir kettir sem
við sáum þó ekki. Við syðsta odda Manar
er smáeyjan Calf of Man. Í sundinu milli
lands og eyjar gætu þrír tugir skipa hafa
legið og búið sig undir Brjánsbardaga
eins og segir í Njálu. Næst var haldið til
Rushen Abbey, gamals klausturs þar sem
nú er safn og veitingastaður. Loks var
stansað við kuml frá söguöld á Church
Hill í Balladoole héraði.
Að morgni fjórða dags var flogið til
Dyflinnar og haldið beint til borgarinnar
Athlone við Shannon-fljót. Þar nærri eru
rústir hins forna klausturs Clonmacnoise
og fornir steinkrossar. Þaðan var haldið
til næsta gististaðar, Limerick. Shannon
rennur í gegnum borgina.
Næsta dag var komið til St. Patrick’s
Rock nærri bænum Tipperary. Þar mun
hafa verið aðsetur konunga fyrir víkinga-
tíma. Rústir kirkju og annarra bygginga
eru frá 12. og 13. öld. Þar er hár turn vel
varðveittur. Síðdegis var leitað að Hákrossi
Írlands, fornum og frægum steinkrossi
í bakgarði býlisins Moone. Hann mun
vera frá 9. öld og er heillegur. Næst var
komið til Glendalough Monastic City í
Glendaloughdal. St. Kevin mun hafa reist
þarna klaustur á 6. öld. Þar er 100 feta
hár klukkuturn, rústir og safn sem lýsir
sögu staðarins. Síðla dags komum við til
Dyflinnar og gistum þar síðustu þrjár
næturnar.
Næsta dag var haldið til Tara Hill þar
sem höfuðkonungar Íra héldu til fyrir
myndun þéttbýlis. Þar er stór stytta af Pat-
reki helga. Monasterboice, nærri bænum
Drogheda er ein elsta byggð í kristni á
Írlandi, frá um 500. Þar stendur hár stein-
kross, Muiredach, frá 9. öld, hár turn og
miklar rústir. Skammt frá, í Newgrange,
er safnið Brú na Bóinne sem lýsir lífi og
byggð á staðnum um 3000 árum f. Kr. Far-
ið var með leiðsögumanni að svokölluðum
grafhaugum, kúpulaga og grasklæddum
mannvirkjum frá þeim tíma. Uppi á þeim
stærsta er nær sléttur flötur, 2/3 úr hektara,
sem mun hafa verið byggðasvæði. Er hann
umgirtur stórum steinum sem vega um
tvö tonn hver. Nálægt Newgrange er safn
sem lýsir orustunni þar milli Vilhjálms af
Oraníu og James II Englandskonungs 1690.
Árlega er haldið upp á minningu þessarar
orustu á Norður-Írlandi. Næsti morgunn
fór í að kanna staðsetningu og hugsan-
legar aðstæður Brjánsbardaga. Svo var
litið inn í dómkirkjuna Christchurch sem
Sigtryggur silkiskegg konungur Dyflinnar
lagði grunninn að 1038. Síðasta daginn var
ferja tekin til Holyhead á Wales. Þaðan var
ekið til London og flogið heim.
Ferð Öldungadeildar Læknafélags
Íslands til Manar og Írlands 14. til 22. maí 2014
Hér er birt stytt frásögn Harðar
Þorleifssonar augnlæknis.
Ferðasagan í heild ásamt myndum úr
ferðinni er á vefsíðu öldungadeildar.Hópurinn við Christchurch dómkirkjuna í Dublin. Ljósm. Hjörleifur Guttormsson.
490 LÆKNAblaðið 2014/100