Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.03.2001, Qupperneq 19

Ægir - 01.03.2001, Qupperneq 19
19 S K I P A M Á L N I N G O G H R E I N S I E F N I Dynjandi hf. í Reykja- vík hefur síðan 1990 selt og þjónustað há- þrýstidælur og dælu- stöðvar frá þýska fyr- irtækinu Oertzen. Dælustöðvar eru hannaðar fyrir staðbundna notkun, m.a. til teng- ingar við lagnakerfi. Slík kerfi hafa víða verið sett upp m.a. í matvælaiðnaði og þar sem kröfur um dagleg þrif eru. Til marks um það var nýverið sett upp dælustöð frá Oertzen og lagnakerfi frá Dynjanda í kjúklingasláturhúsi Reykjagarðs á Hellu. Kristján Einarsson, sölumaður hjá Dynjanda, segir að fyrirtækið selji í raun allt í þessu sambandi nema sjálft hreinsiefnið. Þarfir fyrirtækja segir Kristján að séu afar mismunandi og að mörgu þurfi að gæta við hönnun slíkra kerfa; stækkunarmöguleikum, fjölgun notenda og búnaðar til sérhæfðra þrifa. Dælustöðvarnar eru framleiddar í nokkrum útgáf- um; eins, tveggja eða þriggja not- enda og með 120 eða 210 bara þrýsting. Þar sem óskað er eftir fleiri en þrem notendum er ein- faldlega bætt við stöðvum þar til að ákjósanlegum fjölda notenda er náð. Þar sem tvær stöðvar eru seg- ir Kristján að lagnakerfið sé byggt upp sem tvær óháðar einingar að hvorri stöð en þegar komi að við- haldi eða bilunum sé hægt að opna á milli lagna og láta aðra stöðina afkasta báðum lögnum með sama þrýsingi, en þó færri notendum í einu, og við það skap- ist ákveðið rekstraröryggi því sumstaðar geti þrif ekki lagst niður öðruvísi en vinnsla stöðvist. Þrýsingur á dælunum frá Ortzen er um 120 eða 210 bör og lítraflæði af vatni á mínútu er um 16 lítrar á hvern notanda, hver stöð er búin stjórnbúnaði sem stýrir því að hún fari í gang þegar notandinn tekur um gikk byss- unnar og slekkur á sér skömmu eftir að notandi hættir að nota hana. Eins og áður segir eru þessar há- þrýstidælur víða að finna. Í sjávar- útvegi er þær bæði í vinnslustöðv- um í landi og togurum úti á sjó. Og þær nýtast vel í ýmsum iðn- fyrirtækjum, sem dæmi var eitt heildar háþrýstikerfi frá Ortzen sett nýverið upp hjá Myllunni- Brauði hf. í Reykjavík. Dynjandi hf. í Reykjavík: Háþrýstidælur og þvottastöðvar JF-verktakar á Akur- eyri sérhæfa sig í há- þrýstiþvotti og hefur starfsvettvangur fyrir- tækisins meðal ann- ars verið í sjávarút- vegi. Freyr Ragnarsson, annar eigenda JF-verktaka, en hinn er Jóhannes Gísli Pálmason, segir að á þriggja ára líftíma fyrirtækisins hafi það tekið að sér háþrýstiþvott á öllum sköpuðum hlutum, ekki síst hafi starfsviðið verið sjávarútvegsgeir- inn. Þannig hafa JF-verktakar í töluverðum mæli verið undir- verktakar við málningarhreinsun og málningarvinnu hjá Stáltaki hf. á Akureyri. JF-verktakar hafa yfir að ráða einni CAT-dælu sem hefur dælukraft upp á 400 bör og er mögulegt að auka hann. Auk þess að háþrýstiþvo skip og báta til undirbúnings fyrir málningarvinnu, vinna þeir JF- verktakar mikið utandyra við há- þrýstiþvott húsa, fyrst og fremst yfir sumarmánuðina, en einnig hafa þeir tekið að sér stærri verk- efni innanhúss. Nýlega háþrýsti- þvoðu þeir innandyra í sláturhús- inu á Akureyri og það sama má segja um fyrrum hús Söltunarfé- lags Dalvíkur, þar sem í framtíð- inni verður kjötvinnslustöð Ís- landsfugls ehf. JF-verktakar á Akureyri: Háþrýstiþvo allt milli himins og jarðar Kristján Einarsson, sölumaður hjá Dynjanda Mynd: Sverrir Jónsson

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.