Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.2001, Síða 34

Ægir - 01.03.2001, Síða 34
34 U M R Æ Ð A N fiskeldisins á Íslandi. Sem stendur eru þar líka helstu sóknarfærin til þess að margfalda framleiðslu með litlum tilkostnaði. Öflugt laxeldi mun einnig verða lyftistöng fyrir eldi á öðrum tegundum. Auk hinna hefðbundnu laxfiska er að hefjast hér á landi eldi á ýmsum nýjum tegundum og má þar nefna hlýsjávartegundina barra, lúðu, sæeyra og sandhverfu. Flest bendir til þess að eldi á þess- um tegundum verði umfangsmik- ið á næstu árum. Rætt er um eldi á fleiri tegundum eins og kræk- lingi, þorski og hlýra, þó enn sé of snemmt að spá fyrir um framtíð þeirra. Aðstæður til fiskeldis á Íslandi eru sérstakar og líklegt er að hér verði eldisfánan fjölbreyttari en þekkist í nágrannalöndunum. Jarðhiti ásamt gnógt af ómeng- uðu ferskvatni og sjó skapa góðar forsendur fyrir eldi í kerjum á landi. Kostir þess að ala fisk í eld- iskerjum eru að þar má halda kjöraðstæðum til vaxtar eldisdýr- anna og með því að endurnýta vatn má jafnvel halda kjörhita- stigi hlýsjávartegunda eins og barra. Umhverfisáhrif kerjaeldis eru minni en annarra eldisaðferða m.a. vegna þess að hægt er að sía lífrænar agnir úr frárennsli stöðv- anna. Ókostur kerjaeldisstöðva er hins vegar sá, að það er fremur dýrt að reisa stöðvarnar og eldis- kostnaður er hærri en t.d. í kvía- eldi. Mikill kostnaður við eldi á laxi í íslenskum strandeldisstöðv- um veldur því að þær eru ekki samkeppnisfærar við norskar, skoskar og írskar kvíaeldisstöðvar. Hins vegar eru fjölmargar teg- undir sem henta betur til kerja- eldis en til kvíaeldis. Má þar nefna bleikju, lúðu, sæeyru og fleiri teg- undir. Íslendingar hafa forskot á aðrar þjóðir á sviði fiskeldis í stór- um kerjum. Hér er fyrir hendi meiri sérþekking á þessu sviði en nokkurs staðar annars staðar og kemur okkur þar til góða rann- sókna- og þróunarstarf undanfar- inna ára. Eru stjórnvöld viðbúin vexti í fiskeldi? Að mörgu leyti erum við illa búin undir skyndilegan vöxt fiskeldis á Íslandi. Það vantar alla umgjörð um fiskeldið bæði lagalegan ramma og reglugerðir. Það var eins og menn byggjust ekki við því að fiskeldi yrði nokkurn tíma atvinnugrein sem eitthvað kvæði að á Íslandi. Mikilvægt er að sem fyrst verði gengið frá þessum mál- Möguleikar á frekari vexti sjávarútvegsfyrirtækja á Íslandi eru afar takmarkaður enda eru stærstu fiskveiðistofnar full- nýttir. Fiskeldið getur veitt þessum fyrirtækjum svigrúm til umtalsverðs vaxtar. FÚSI SH 161 LENGDUR UM 2,5 M SKIPAVIÐGERÐIR & BREYTINGAR Tökum allt að 27 metra löng skip í hús til viðgerða Nesvegi 20 · 340 Stykkishólmur · Sími: 430 1400 Fax: 430 1402 · Netfang: skipavik@simnet.is Plötusmíði Rennismíði Vélaviðgerðir Sandblástur Skelvinnslutæki Gúmmíbátaþjónusta Raflagnir Trésmíði Málningarvinna Tækniþjónusta Frystipönnur Flotgallar Stóll sem gælir við þig. Hægt er að stilla bak, arma, setu, snúning og skammel. ✓ ✓ ✓ ✓ ✓ ✓ ✓ ✓ ✓ ✓ ✓ ✓

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.