Ægir - 01.03.2001, Blaðsíða 38
38
S K I P A S T Ó L L I N N
Ingunn AK 150
N Ý F I S K I S K I P
Mynd: Snorri Snorrason
Ingunn AK er fyrsta skipið í
hrinu nýrra fiskiskipa fyrir Íslend-
inga frá Chile en skipið var smíð-
að hjá Asmar smipasmíðastöð-
inni, þeirri sömu og afgreiddi á
síðasta ári nýtt hafrannsóknaskip
til Íslendinga. Umboðsaðili
stöðvarinnar hér á landi er BP-
skip ehf. Ingunn hélt þegar í stað
til loðnuveiða og hefur skipið
komið vel út það sem af er. Skip-
stjórar á Ingunni AK eru Mart-
einn Einarsson og Guðlaugur
Jónsson. Albert Sveinsson er 1.
stýrimaður og Ingibergur Sig-
urðsson yfirvélstjóri.
Ingunn er tveggja þilfara tog-
og nótaskip, tæplega 2000 tonn
að stærð, búið tólf lestum fyrir
farm, þar af níu með sjókælingu.
Flokkunarfélag skipsins er Det
norske Veritas. Burðargeta er á
bilinu 1800-2000 tonn en burð-
argetan er minni eftir því sem
stærra hlutfall afla er í sjókæl-
ingu. Aðalvél skipsins er 5900
hestöfl að stærð.
Hönnun skipsins fór fram hjá
Skipatækni ehf. Á bls. 42 má sjá
yfirlit sem sýnir helstu mál og
Í byrjun febrúar kom til heimahafnar á Akranesi tog- og nótaskipið Ing-
unn AK 150, sem smíðað var í Chile fyrir Harald Böðvarsson hf. á Akra-
nesi. Engum blöðum er um að fletta að Ingunn er öflugt og burðarmik-
ið skip sem hefur burði til að takast á við veiðiskap á við kolmunna þar
sem krafist er mikils afls og toggetu.
Borgartúni 30 • 105 Reykjavík • Sími: 5 400 500 • Fax: 5 400 501 • e-mail: skipataekni@skipataekni.is
Óskum útgerð og áhöfn
til hamingju með nýja skipið
sem hannað var af Skipatækni
Ingunn AK 150
Ljó
sm
yn
d:
Sn
or
ri
Sn
or
ra
so
n
w
w
w
.a
th
yg
li.
is