Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.03.2001, Qupperneq 48

Ægir - 01.03.2001, Qupperneq 48
48 S K I P A S T Ó L L I N N B R E Y T T F I S K I S K I P „Eftir breytingarnar er orðin mjög góð vinnuaðstaða um borð, t.d. yfirbyggð aðstaða á þilfari fyrir aðgerðina. Hún er mikilsverð í vondum veðrum og kulda. Við búum við það að hafa fyrsta flokks áhöfn á skipinu sem vandar mjög til verka og skilar hágæða hráefni að landi. Þess vegna leggjum við upp úr að breytingarnar á skipinu skili betri vinnuaðstöðu fyrir áhöfnina sem hjálpar til að halda miklum gæðum á hráefninu,“ segir Rafn Haraldsson, útgerðarmaður Reykjaborgar. Rafn segir að með lengingunni verði skipið stöðugra í sjó og meira lestarrými auðveldi útgerðinni að sækja lengra. „Við erum á dragnót árið um kring og hugmyndin er að geta sótt lengra vestur og suður með landinu á sumrin. Okkar kvóti er að mestu í kola og við gerum út árið um kring á dragnótina. Hins vegar er stöðugt verið að skerða kvótann hjá þessum bátaútgerðum og okkar útgerð hefur til að mynda þurft að búa við skerðingu á rauðsprettu úr 250 tonnum í 68 tonn, 20-30% skerðingu í sandkola og þannig má áfram halda. Þrátt fyrir erfitt umhverfi leggjum við áherslu á að leggja mikið á okkur til halda úti góðu skipi fyrir góða áhöfn og skila sem bestu hráefni að landi,“ segir Rafn. Eins og áður segir voru breytingarnar framkvæmdar hjá Ósey í Hafnarfirði en Reykjaborg var smíðuð árið 1998 hjá Skipasmíðastöðinni á Ísafirði. Undirverktakar hjá Ósey í breytingunum voru Rafboði – Garðabæ, Trésmiðjan Brim hf. í Hafnarfirði, Sandtak, AH pípulagnir og Klaki hf. en það fyrirtæki smíðaði færibönd og þvottakör. Skipið var málað með International málningu frá Hörpu. Hönnun breytinanna var í höndum Skipasýnar. Reykjaborgin lengd hjá Ósey: Bætt vinnuaðstaða og betra sjóskip - segir Rafn Haraldsson, útgerðarmaður Mynd: Snorri Snorrason Í lok febrúar lauk hjá Ósey breytingum á dragnótabátnum Reykjaborgu RE. Skipið var lengt um fjóra metra, yfirbyggð aðgerðaraðstaða á þilfari og stækkað lestarrými. Eftir breytingar tekur skipið 64 kör í lest, eða nálega helmingi meira en áður. Breytingarnar kostuðu nálega 14 milljónum króna.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.