Ægir - 01.02.2006, Blaðsíða 13
13
Þ O R S K S T O F N I N N
meðal afrakstur myndi tvöfaldast þó að
stofninn yrði tvöfaldaður nú. En afrakst-
urinn eykst ekki nema stofninn stækki
og sé ætlunin að stækka stofninn þó
ekki sé nema um 100 þús. tonn á ári
þarf greinilega að minnka veiðar um
helming. Sé markmiðið að byggja upp
stofninn án þess að það taki áratugi dug-
ar brátt ekki minna en veiðibann á
þorskinn og jafnvel fæðufisk hans líka.
Auknar veiðar minnka stofninn. Þar af
leiðir ekki að minnkaður stofn muni
auka aflann, eins og háværir hagsmuna-
aðilar halda fram. Einu gildir hversu vel
sú kenning er rökstudd með tilvísun í
fæðuskort, ofsetna beitihaga, sjálfsát
o.s.frv. Rökstuðningur sannar ekki vís-
indalegar kenningar, mælingar afsanna
þær. Dreifiritið á 6. mynd sýnir að minni
stofn gefur minna af sér. Það sýnir rétt
yfir 26% afraksturshlutfall óháð stofn-
stærð. 25% aflaregla ætti þá ekki að út-
rýma stofninum sé henni stranglega fylgt
en hún stuðlar ekki að hraðri uppbygg-
ingu hans.
Samstillingin hér
Það má ágætlega nota jöfnun (4) ásamt
einhverri forsendu um samband sóknar-
mynsturs á síðasta ári (2004) við fyrri ár
til að samstilla af nákvæmni. En það má
líka nota jöfnu (3) til að samstilla hvern
aldurshóp án þess að gefa sér neitt um
sóknarmynstrið. Það gaf sóknarmynstur
2004 líkara meðaltali áranna 2002-2003
en mynstri ársins 2003. Það sem er þá
endanlega gert hér er að nota meðal
sóknarmynstur 2002-2003 og samstilla
með jöfnu (4) fremur en jöfnu (3). Ald-
ursaflagreiningin er þá fest með:
nema stuðlarnir 0.435 og 0.475 er notað-
ur fyrir 3 og 4 ára aldurshópana. Það
gefur eins og fyrr sagði 3,8% sóknar-
aukningu, miklu nær niðurstöðu Hafró
um óbreytta sókn en ekki alveg eins
bjartsýn og talsvert svartsýnni en spár
fiskifræðinga frá 2003 og 2004 um 17%
og 14% sóknarminnkun. Niðurstaðan
hlýtur að vera réttari en fyrri niðurstaða
(2) um 13% sóknaraukningu því hún var
ekki í neinu samræmi við stofnstærðar-
spána á mynd 3. Samt gæti verið var-
hugavert að afskrifa hana strax að öllu
leiti sem tóma dellu. Ef hún er rétt sýnir
hún að þorskar eru að skila sér verr og
verr í afla, verr á síðasta ári en árið áður.
Það eru þá að sjást svipaðar breytingar
og urðu í Kanada fyrir hrun þorskstofn-
anna.
Er ég kannski líka of bjartsýnn?
Stofnmælingin í mars 2005 sýndi fækkun
6 ára og mikla fækkun 7 ára fiska. Þetta
er ekki það sem búist var við en það
kann að vera nokkur bjartsýni að koma
hér með aldursaflagreiningu sem sýnir
þó nokkra fjölgun 6 og 7 ára fiska (á ár-
inu 2004). Það er skrítið að stofnbreyt-
ingarnar á mynd 2 skuli ganga í sitthvora
áttina á því ári en þær gerðu það reynd-
ar líka á árinu 1998. Sú niðurstaða að 6
og 7 ára fiskum hafi fækkað er ekki fylli-
lega marktæk. Stofnmælingin sýndi
mikla fjölgun 5 ára fiska en lengdardreif-
ingar 5, 6 og 7 ára fiska skarast mikið.
Mér finnst ekki ólíklegt að margir þess-
ara töldu 5 ára fiska hafi raunverulega
verið (smávaxnir) 6 og 7 ára fiskar. Ég
tel það líklegri skýringu á þessari fækk-
un en að sóknin hafi vaxið eins mikið
og (2) sýnir. Ég tel semsagt ekki að það
sé neitt bogið við samstillinguna (2) sem
slíka en hún reiðir sig mest á 6 og 7 ára
fiska. Ég tel fremur að forsenda (1) og
(7) um óbreytt sóknarmynstur sé ekki
nógu góð eða að það sé eitthvað bogið
við niðurstöðu stofnmælingarinnar 2005
og því sé ekki ástæða til slíkrar svartsýni.
En það er ekki gott heldur ef fiskarnir
hafa stækkað minna en reiknað er með.
ÞAð hefur ekki aðeins áhrif á stofn
þyngdina heldur líka útreiknaðan stofn-
fjölda. Það mundi valda tilfærslu milli
aldurhópa í stofnmælingunni sem breytir
ekki vísitölusummunni því stofnmæl-
ingin telur aflann. En ársaflinn er
viktaður og aflatölurnar sjálfar, fjöldi
þorska í hverju aflatonni, mundi þá vera
vanmetnar. Þá er sóknin C/I vanmetin,
stofninn ofmetinn og niðurstaðan bara
bjartsýni.
English summary
The results of a virtual population
analysis VPA of Icelandic cod is shown.
It is slightly more pessimistic than the
official CAA calculation of the Marine
Research Institute. The cod stock is
greatly reduced, especially spawning
stock biomass SSB and stock of old
spawners SOS. That has reduced the
recruitment and yield: Y =– Cw+B
(Y/R)(N3, which is seen to be
proportional to the stock. The stock has
been stable for a decade but a further
reduction is likely now due to
diminished food supply, possible genetic
adaptation to decades of size selective
overfishing (F5-10 > 0.6) and because the
observed average yield/stock ratio of
26%, is no higher than the catch/stock
ratio effectively allowed by the current
catch rule.
A simple formula (3), called here ICE
(Index and Catch Equation) is presented
to calculate recruitment Nk or size of the
cohorts at age k in the beginning of the
year, as well as B = NiwiC which is
usually called the stock or biomass, and
Fi the fishing mortality of age class i. It
can be used to approximate or tune the
VPA with what is believed to be
unprecedented accuracy. Another simple
and accurate formula to extrapolate the
fishing stock is: B4+ (t) N3-C.
Tilvísanir:
Hafrannsóknastofnunin 2005. Nytjastofnar sjávar (State
of Marine Stocks in Icelandic Waters) 2004/2005. Afla-
horfur fiskveiðiárið (Prospects for the Quota Year)
2005/2006. www.hafro.is.
Myers, R.A., Hutchings, J.A., Barrowman, N.J. 1997. Why
do fish stocks collapse? Ecological Applications 7: 91-
106.
Mynd 6. Afrakstur þorskstofnsins sem fall af stofnstærð hans.
aegirfeb06-56sidurlagad.qxd 3/2/06 10:48 AM Page 13