Ægir - 01.02.2006, Page 16
16
B Á T A S M Í Ð I
Hjá bátasmiðjunni Sputnik
Bátum á Akranesi er nú fjórði
„Sputnik 15“ báturinn í smíð-
um. Þetta eru 15 tonna yfir-
byggðir plastbátar en þegar
hafa verið afhentir Geisli SH,
Eyrarberg GK og Aron ÞH, sem
er lengri útgáfa bátsins.
Segja má að báturinn fullnýti
smábátakerfið með núverandi
reglugerð en hann mælist
11,99 brúttórúmlestir.
Byggt á grunni Bátasmiðjunn-
ar Knarrar
„Hann er með svölum,“ segir
Lárus Skúlason, skipatækni-
fræðingur, um lenginguna á
Aroni og þeim báti sem nú er
í smíðum, en Lárus hefur um-
sjón með frekari þróun bát-
anna í samstarfi við Þorstein
Mána Árnason og Stefán
Jónsson, bátasmiði. „Svalirn-
ar“ koma aftur af millidekk-
inu og gefa rúmlega eins
metra langt viðbótarpláss á
dekkinu en mælast ekki með
í tonnatölunni.
Sputnik Bátar urðu til við
endurreisn Bátasmiðjunnar
Knarrar, en þar hófst smíði
þessara yfirbyggðu og sér-
stöku Sputnik Báta, sem nýja
fyrirtækið er kennt við.
Áhersla lögð á sjóhæfnina
Ingólfur Árnason, fram-
kvæmdastjóri, segir þá hjá
Þorgeiri & Ellert hafa séð
ýmsa möguleika í að tengjast
plastbátasmíði og vinna fyrir-
tækin nú saman að fram-
leiðslu og þróun þessa báts.
Markmiðið með „Sputnik“ sé
að ná einstakri sjóhæfni og
öll þróun bátsins nú miðist
við að nýta þennan eiginleika
til að skapa það sem þeir
kalli „veiðivél“. „Við erum
með bát sem getur athafnað
sig í misjöfnum veðrum og
þá bæði farið vel með mann-
skap og fisk. Við erum að
breyta öllu fyrirkomulagi í
bátnum með þau markmið að
stækka lest, auka rými á
vinnudekki, ná auknu rými
fyrir öflugt línukerfi og bæta
aðbúnað áhafnar. Allt miðar
að bættri meðhöndlun hrá-
efnis og er fjöldi kara ásamt
hreyfingum bátsins sjálfs lyk-
illinn að því. Þegar rými er til
staðar fyrir nægjanlegan
fjölda kara auðveldar það að
bæta allan frágang og flokk-
un hráefnisins,“ segir Ingólf-
ur.
Mikill ganghraði
Sputnik 15 bátarnir rúma 15
kör (660 lítra) í lest og 4-5
samskonar kör á millidekki.
Það á því að fara ágætlega
um 10 tonna afla, ísaðan í
krapa, um borð.
Sputnik bátarnir henta vel
til línu- og netaveiða en með
línubeitningakerfi um borð er
gott pláss fyrir allt að 17.000
króka línu. Þá bendir Lárus
Skúlason á að gott pláss sé
uppi á yfirbyggingunni, þar
er tiltölulega hár kantur um
hana alla og hátt rekkverk. Á
efra þilfari eru tvær stórar
lúgur sem auðvelda aðgang
að aðalþilfari í höfn, meðal
annars við löndun afla.
Þeir Lárus og Ingólfur
segja að ekki væsi um áhöfn-
ina um borð. Rúmgóðar kojur
eru fyrir 4 í káetunni, bak-
borðsmegin í stýrishúsinu er
eldhúskrókur, þar sem mögu-
legt er að hafa eldavél, ör-
bylgjuofn og ísskáp en þar
fyrir framan er borð með
bekkjum fyrir 4 menn.
Fimm menn starfa við að
móta skrokk bátanna og stýr-
ishús í húsnæði Sputnik Báta
við Smiðjuvelli á Akranesi.
Smíða „Sputnikbáta“
á Skaganum
Sputnikbáturinn Aron ÞH 105 við bryggju. Frá vinstri: Þorsteinn Máni Árnason, skipasmiður, Ingólfur Árnason, framkvæmda-
stjóri, og Lárus Skúlason, skipatæknifræðingur, um borð í sputnikbáti, sem er í
smíðum.
aegirfeb06-56sidurlagad.qxd 3/2/06 10:48 AM Page 16