Ægir - 01.02.2006, Qupperneq 23
23
K Æ L I N G M A T V Æ L A
er þurrkað það mikið að
hrím- og ísvandamál í klefum
ýmist hverfa algjörlega eða
minnka verulega. IceDry
tæknin hefur náð verulegri
útbreiðslu innan matvæla- og
lyfjaiðnaðarins sem í mörg ár
hefur liðið fyrir þessi vanda-
mál. Jafnframt að leysa hrím-
og ísvandamál auk þess að
auka vinnuöryggi starfs-
manna, eykst rekstraröryggi
frystikerfanna verulega þar
sem eimarnir (frystiblásararnir
eða frystispíralarnir) hríma
verulega minna, afhrímingum
fækkar og viftur og annar
búnaður endist betur. Við
þetta sparast peningar vegna
minni orkunotkunar auk
vinnulauna vegna handvirkr-
ar afhrímingar og hreinsunar
á tækjum, gólfi og vörum.
Rakastýring í vinnurýmum
Enn einn notkunarmöguleiki
í köldu rými er stýring á
rakastigi í vinnurýmum, t.d.
sláturhúsum, kjötvinnslurým-
um, fiskvinnslurýmum o.fl.
þar sem rétt rakastig er for-
senda fyrir þægilegri líðan
starfsfólks. Þéttivatnsleki á
vöru er einnig þekkt vanda-
mál sem leysa má með upp-
setningu á sérútfærðri lausn
frá Munters.
Rakaskemmdir í húsum
Kringum köld rými eru oft lít-
il loftunarrými, kjallarar,
lagnaloft eða gangar. Þrátt
fyrir einangrun kæli- og
frystiklefanna kólna þessi
rými töluvert og þannig
myndast kjöraðstæður fyrir
þéttingu á raka með tilheyr-
andi skemmdum. Við slíkar
aðstæður myndast oft mygla,
fúi og ryð. Oftar en ekki upp-
götvast þessar skemmdir ekki
fyrr en um seinan.
Með því að setja upp
ísogsþurrkara í þessi rými
skapast aðstæður þar sem
ryð, fúi, sveppir o.fl. ná ekki
að myndast.
Kælitækni ehf, Rauðagerði
25 í Reykjavík hefur umboð
fyrir Munters þurrkara á Ís-
landi og veitir allar nánari
upplýsingar. Einnig má
benda á www.munters.com
og www.kaelitaekni.is/vorur-
listi/muntersloftthurrkarar/
Heimildir:
1. Kulde Skandinavia, 5/2005, - 20 árg.
þýtt og endursagt, Munters A/S Dan-
mark
2. Aðalfundur Kælitæknifélags Íslands,
Október 2005, fyrirlestur, Sigurður J.
Bergsson
3. Viðskiptablaðið, Janúar 2004, grein,
Sigurður J. Bergsson
Texti: Sigurður J. Bergsson,
tæknifræðingur og framkvæmdastjóri
sölu- og tæknisviðs Kælitækni.
aegirfeb06-56sidurlagad.qxd 3/2/06 12:13 PM Page 23