Ægir - 01.02.2006, Page 24
24
F I S K V I N N S L A N
„Rannsóknir hafa leitt í ljós að framleiðsla meltu úr slógi er ekki aðeins möguleg, heldur getur hún einnig verið arðbær ef rétt er að málum staðið. Skiptir þar miklu rétt
val á hráefni og vinnsluaðferðum, sem og markviss vinna við vöruþróun og markaðssetningu,“ segir Sigurður E. Vilhelmsson m.a. í grein sinni. Þessi mynd var tekin í fisk-
vinnslu ÚA á Akureyri.
Úrgangur frá
fiskvinnslum
– vaxandi vandamál eða vannýtt verðmæti?
Miklar breytingar hafa orðið á lögum og reglum er lúta að förg-
un úrgangs á undanförnum árum. Þannig er meðhöndlun úr-
gangs orðin starfsleyfisskyldur rekstur, sem leitt hefur til þess
að förgunarstöðum hefur fækkað og þeir stækkað. Með hertum
reglum hefur eftirlit einnig aukist með því að úrgangi sé aðeins
fargað á löglegan hátt, s.s. með urðun á vottuðum förgunar-
stöðum. Það er því af sem áður var að fiskverkendur á landi
geti sagt „hafið gaf og hafið tók“ um leið og þeir losa úrgang-
inn aftur í sjóinn. Af þessu leiðir að urðun úrgangs frá fisk-
vinnslum hefur aukist mikið síðustu ár og samkvæmt tölum
Hagstofu Íslands nam hún 32 þúsundum tonna árið 2004.
aegirfeb06-56sidurlagad.qxd 3/2/06 10:48 AM Page 24