Ægir - 01.02.2006, Side 34
34
F J Á R M Á L
SP-Fjármögnun er eignaleigu-
fyrirtæki í eigu Landsbankans
og sparisjóða sem hefur á síð-
ustu tíu árum gengið til liðs
við fyrirtæki og einstaklinga í
flestum greinum íslensks at-
vinnulífs. Starfsemi fyrirtækis-
ins má skipta í tvennt, annars
vegar bifreiðafjármögnun og
hins vegar fjármögnun at-
vinnutækja í formi eignaleigu-
samninga.
Eignaleiga
Eignaleiga er samheiti yfir
fjármögnunarleigu, kaupleigu
og rekstrarleigu og eru þessar
fjármögnunarleiðir ólíkar
beinum lánum að því leyti að
þær byggjast á því að SP-Fjár-
mögnun kaupir það atvinnu-
tæki sem viðskiptavinurinn
óskar og leigir honum til fyr-
irfram umsamins tíma, en al-
gengur leigutími er þrjú til
fimm ár. Í fjármögnunar- og
kaupleigusamningum á leigu-
takinn síðan rétt á að kaupa
tækið í lok leigutíma á fyrir-
fram umsömdu verði.
Fjármögnunarleiga
Þegar gerður er fjármögnun-
arleigusamningur er öll leigu-
greiðslan gjaldfærð og at-
vinnutækið því í raun afskrif-
að að fullu á leigutímanum.
Þegar leigutími er styttri en
afskriftartími tækis myndast
nokkurs konar flýtifyrning
sem leiðir til lægri skatt-
greiðslna á leigutímanum.
„Með þessari lausn geta fyrir-
tæki brugðist hratt við þegar
bæta þarf við tækjabúnaði, til
dæmis í útgerð og fisk-
vinnslu, enda leggjum við
áherslu á hraða og skjóta
þjónustu,“ segir Jón Ragnars-
son, ráðgjafi hjá SP-Fjármögn-
un. SP-Fjármögnun greiðir
kaupverðið með virðisauka-
skatti. Leigan reiknast af
kaupverði án virðisaukaskatts
en virðisaukaskattur leggst á
hverja leigugreiðslu. Leigutaki
fær virðisaukaskattinn endur-
greiddan sé hann með virðis-
aukaskattskyldan rekstur.
Kaupleiga
Þegar atvinnutæki er tekið á
kaupleigu er það eignfært í
bókum leigutaka á leigutím-
anum og getur hann því fært
afskriftir til gjalda ásamt vöxt-
um og kostnaði af leigu-
greiðslum. Hann fær þó ekki
eignarhald í atvinnutækinu
fyrr en við lokagreiðslu. SP-
Fjármögnun greiðir kaup-
verðið án virðisaukaskatts.
Leigan reiknast af kaupverði
án virðisaukaskatts en leigu-
taki greiðir allan virðisauka-
skattinn til seljanda strax í
upphafi. Leigutakinn fær virð-
isaukaskattinn endurgreidd-
ann sé hann með virðisauka-
skattskyldan rekstur.
Árstíðarbundnar greiðslur
SP-Fjármögnun býður sveigj-
anlega greiðslubyrði leigu-
samninga svo að sem best
jafnvægi ríki á milli tekju-
streymis og útgjalda leigu-
taka. Hægt er að velja um
samninga í íslenskum krón-
um og erlendri mynt. Ef um
erlenda mynt er að ræða er
boðið upp á ákveðnar gengi-
skörfur til að draga úr gengis-
áhættu.
Rekstrarleiga
Rekstrarleiga er þríhliða
leigusamningur milli leigu-
taka, seljanda og SP-Fjár-
mögnunar. Rekstrarleigu-
samningar eru byggðir á því
að SP-Fjármögnun kaupir það
tæki sem viðskiptavinur óskar
og leigir honum til fyrirfram
umsamins tíma. Í lok samn-
ingstíma skilar leigutaki síðan
tækinu til seljanda. Hingað til
hefur verið mest um að
rekstraraðilar taki fólksbif-
reiðar og minni atvinnubíla
sem notaðir eru í starfseminni
á rekstrarleigu. Eins hefur
það þekkst lengi að tölvu-
búnaður sé rekstrarleigður og
nú hefur það færst í vöxt að
verktakar og aðrir rekstrarað-
ilar taki vinnuvélar og stærri
atvinnubifreiðar á rekstrar-
leigu. „Helsti kosturinn við
rekstarleiguna er að leigutak-
inn losnar algjörlega við alla
endursöluáhættu. Þetta getur
því skipt miklu máli fyrir þá
sem þurfa ákveðin tæki fyrir
ákveðin verkefni í ákveðinn
tíma“ segir Herber Svavar
Arnarson, ráðgjafi hjá SP-Fjár-
mögnun.
Margar og mismunandi leiðir
SP-Fjármögnun býður upp á
margvíslegar leiðir þegar
kemur að fjármögnun at-
vinnutækja sem henta t.d.
rekstraraðilum sem ekki vilja
binda of mikið rekstrarfé í
vél- og tækjabúnaði. „Við
hvetjum alla þá sem eru að
hugleiða einhverskonar
tækjakaup að hafa samband
við okkur. Einnig er hægt að
fá ítarlegar upplýsingar um
mismunandi leiðir í fjármögn-
un á heimasíðu okkar,
www.sp.is,“ segir Vala
Hauksdóttir, ráðgjafi hjá SP-
Fjármögnun.
SP-Fjármögnun er til húsa í Sigtúni 42. Mynd: Sigurður Bogi Sævarsson.
SP-Fjármögnun:
Margar leiðir færar í
fjármögnun atvinnutækja
aegirfeb06-56sidurlagad.qxd 3/2/06 10:48 AM Page 34