Ægir - 01.02.2006, Blaðsíða 42
42
R A N N S Ó K N I R
Á undanförnum misserum hefur verið
unnið að því að byggja upp Þróunarsetur
Hólaskóla - Háskólans á Hólum, á hafn-
arsvæðinu á Sauðárkróki - í húsnæði því
sem var kallað Skjaldarhúsið og nefnist
núna Verið. Þar er unnið að ýmsum rann-
sóknum og þróunarverkefnum í samvinnu
við m.a. Rannsóknastofnun fiskiðnaðar-
ins, FISK Seafood á Sauðárkróki, Há-
skóla Íslands og Háskólann á Akureyri.
Þróunarsetrið var formlega opnað þann
7. mars sl.
Rannsóknirnar eru m.a. á sviði
vinnslu sjávarafla, matvælavinnslu og
fiskeldis. Að þeim koma ýmsir sérfræð-
ingar og nemar í meistara- og doktors-
námi.
Bæði sjávarútvegs- og iðnaðarráðu-
neytin styrkja þetta rannsóknasamstarf
með sérstöku fjárframlagi til Rannsókna-
stofnunar fiskiðnaðarins sem nemur 6
milljónum króna á ári. Fjármagninu er
varið til eflingar rannsókna Rf á Sauðár-
króki.
Af hálfu Háskólans á Hólum er þetta
rannsóknasamstarf afar mikilvægt til þess
að styrkja rekstur og uppbyggingu rann-
sókna og kennslu fiskeldis- og fiskalíf-
fræðideildar Hólaskóla og um leið styrkir
Rf. og aðrir samstarfsaðilar aðstöðu sína
og tækifæri til fiskeldis- og matvælarann-
sókna og rannsókna á vinnslu sjávaraf-
urða.
Sem fyrr starfrækir Hólaskóli öflugt
nám í fiskeldi- og fiskalíffræði - annars
vegar eins árs nám sem skilar nemend-
um prófi í fiskeldisfræðum og hins vegar
er unnt að taka þriggja ára nám til BS-
prófs. Auk þess vinna nemendur í
masters- og doktorsnámi að rannsókna-
verkefnum og kemur þá rannsóknaað-
staðan á Sauðárkróki sér mjög vel. Með-
al verkefna sem unnið er að má nefna
fóðurrannsóknir í þorskeldi, verkefni er
lýtur að eldisumhverfi lúðu, verkefni í
fiskalíffræði og sem fyrr er Hólaskóli
með ýmis rannsóknaverkefni á bleikju,
en hann hefur árum saman verið í farar-
broddi í kynbótum á bleikju og náð
verulega góðum árangri.
Efling rannsókna- og þróunarstarfsemi á Sauðárkróki:
Aukin áhersla á rannsóknir
og þekkingariðnað
Aðstaða til rannsókna í Þróunarsetrinu Verinu á
Sauðárkróki er mjög góð. Þessi mynd var tekin í til-
raunasal fiskeldisbrautar Hólaskóla í Verinu.
aegirfeb06-56sidurlagad.qxd 3/2/06 10:48 AM Page 42