Ægir - 01.02.2006, Page 49
49
T Æ K N I
trolls eru skráðar stærðir sem tengjast
þessum flokki.
4) Fyrirliggjandi skráningar í gagna-
grunninum, þ.e. skipsstefna réttvísandi,
haldinn ganghraði (GPS), sönn vindátt,
sannur vindhraði í Beaufort, sjólag og
stýrishorn mynda grunninn fyrir hina
svonefndu vindálagsútreikninga, ásamt
föstum sem áður eru nefndir (vindfang
skips o.fl.). Af niðurstöðum hér má
nefna: vindhorn ((); afstæðan vindhraða
(Vr), þ.e. miðað við skip; afstætt vind-
hraðahorn ((); vindkraft (Fw); vindkrafts-
horn ((); og vindmótstöðu skips (RSw).
5) Í fræðilega kaflanum var fjallað um
skipsmótstöðuútreikninga og hvernig
skipta mátti mótstöðunni upp í hluta
skips og hluta veiðarfæris þegar um
dregin veiðarfæri er að ræða. Nýtanlega
skrúfuspyrnan, T ( (1 - t), fékkst sam-
kvæmt lið 2) hér að framan og dráttar-
mótstaða veiðarfæris (FT) samkvæmt lið
3) hér að framan. Heildar mótstaða skips
(RS) verður því:
RS = T ( (1 - t) - FT
Áður er fengin vindmótstaða skips
(RSw) samkvæmt lið 4), og frekari grein-
ing mótstöðunnar á sér síðan stað í
tölvuforriti.
6) Fyrirliggjandi skráningar í gagna-
grunni eru m.a. rafmagnsframleiðsla
rafala, rið og dæluþrýstingur rafknúinna
vökvadælna. Ákveðin aðferðafræði
greinir rafmagnsframleiðsluna frekar í
vissa undirþætti, og er þar stuðst m.a.
við grunnskráningar.
Niðurstöður, sýnishorn
Hér verður aðeins gefið sýnishorn af
þeim fjölmörgu niðurstöðum sem feng-
ust út úr þessu rannsóknaverkefni, og þá
stuðst við Þerney RE 101.
Almennt: Af heildarúthaldstíma í
fimm veiðiferðum var sjótími 84,2% og
hafnartími 15,8%. Samtals voru gerðar
619 skráningar í veiðiferðunum. Að
meðaltali var verið að taka út 2322 hö,
þ.e. 69,5% álag (skráð afl aðalvélar 3342
hö). Meðal rafmagnsframleiðsla reyndist
vera 433,5 kW sem svarar til þess að 690
hö séu tekin út af aðalvél vegna raf-
magnsframleiðslu, eða 29,7% af heildar
aflþörfinni. Hjálparvélakeyrsla var óveru-
leg, eða 4,2% tímans.
Ef tölur um olíunotkun eru skoðaðar
þá reyndist hún vera 10066 lítrar á sjó-
dag, sem skiptist þannig að 83,7% er
vegna veiða og 16,3% vegna siglinga.
Nánari greining olíunotkunar kemur
fram á mynd 2.
Eins og áður hefur komið fram var að
meðaltali verið að keyra á 69,5% álagi. Á
mynd 3 er dreifing aðalvélarafls sýnd í
250 hestafla bilum (7,5% af skráðu afli),
neðsta bil svarandi til 20-27,5% álags.
Um þriðjungur skráninga liggur á svið-
inu 65,0-72,5% og um fjórðungur á svið-
inu 72,5-80,0%. Tíðni álags yfir 80% var
15,8%.
Ýmsir orku-/straumfræðiþættir
skips: Ef aðgerðin sigling er skoðuð, þá
liggja fyrir 67 skráningar með meðal
ganghraða 12,32 hn, mótstöðu skips
15,02 tonn, og tilheyrandi aflþörf 2645
hö, eða 79% álag. Meðal rafmagnsfram-
leiðsla á siglingu reyndist vera 301 kW,
eða um 18% af aflþörfinni, og afl til
skrúfu 2063 hö. Meðal ganghraði svarar
til að verið sé að sigla á hraða-/lengdar-
hlutfalli (V/(L’) jafnt og 0,871. Tilheyr-
andi grannleikastuðull skips (L/-1/3) er
4,24 og prismastuðull (() 0,667. Verstu
aðstæður reyndust einungis 6 vindstig
(Bf 6). Niðurstöður áhrifa vinds sýndu
að við 5 vindstig hafði hraðinn fallið um
8,5% (1,05 hn) miðað við bestu aðstæð-
ur og sama afl tekið út á skrúfu.
Ef aðgerðin tog er skoðuð, þá liggja
fyrir 473 skráningar með meðal toghraða
3,30 hn, mótstöðu skips 3,37 tonn og til-
heyrandi aflþörf 2294 hö, eða 68,6%
álag. Meðal rafmagnsframleiðsla á togi
reyndist vera 435 kW, eða um 29% af
aflþörfinni, og afl til skrúfu 1546 hö.
Verstu aðstæður voru 8 vindstig (Bf 8),
og fékkst þá að meðaltali um 10,5 tonna
mótstaða vegna skipsins. Þá sýndu nið-
urstöður, miðað við 3,3 hn togferð á
móti í 8 vindstigum, að mótstöðuauki
vegna vinds og sjólags var 8,7 tonn.
Ýmsir orku-/straumfræðiþættir
veiðarfæris: Á tímabilinu notaði skipið
níu mismunandi veiðarfærasamstæður,
þegar skoðuð er mismunandi samsetn-
ing á vörpu- og hleragerðum. Ef tekið er
meðaltal af togskráningunum 473 fæst
eftirfarandi:
Toghraði 3,30 hn.
Öxulafl 1546 hö.
Nýtanleg skrúfuspyrna 23,33 tonn.
Mótstaða skips 3,37 tonn.
Dráttarmótstaða veiðarfæris 19,96
tonn.
Heildarvíraátak 23,89 tonn.
Víralengd 607 faðmar.
Togdýpi 289 faðmar.
Toghorn 33,2° með víraslaka.
Vindstig 2,8 Bf.
Sjóstig 2.
Höfundur greinarinnar er Emil Ragnarsson.
Hann rekur fyrirtækið VER Skiparáðgjöf ehf. og
er lektor við Auðlindadeild Háskólans á Akur-
eyri. Hér birtist síðari hluti greinar Emils, en sá
fyrri birtist í síðasta tölublaði.
Mynd 4: Unnið við mjölframleiðslu í Þerney RE 101 á
Reykjaneshrygg sumarið 1997.
Mynd 5: Skipting aflþarfar milli veiðarfæris og skips
á togi.
0
500
1000
1500
2000
2500
Hestöfl
Þerney RE 101
Skipting aflþarfar á togi
Heildarafl,hö Skrúfuafl,hö Rafafl,hö
Skip og
veiðar-
færi
Hlutur
veiðar-
færis
Hlutur
skips
Tafla 1: Mæld og útreiknuð skipting mótstöðu Gloriu
2560, 3,17 hn toghraði og 719 faðmar af 30 mm
vír, lárétt opnun 82 faðmar og lóðrétt 70 faðmar.
Þáttur Dráttar- Hlutdeild
mótstaða
Varpa með búnaði 13,46 t 62,2%
Toghlerar 4,33 t 20,0%
Togvírar 2,95 t 13,6%
Höfuðlínukapall 0,92 t 4,2%
Veiðarfæri í heild 21,66 t 100,0%
aegirfeb06-56sidurlagad.qxd 3/2/06 10:48 AM Page 49