Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.2007, Blaðsíða 8

Ægir - 01.11.2007, Blaðsíða 8
8 K Ö F U N Erlendur Bogason þekkir betur en margur annar hvað býr í hafinu við Ísland. Hann er atvinnukafari og hefur tekið þátt í mörgum athyglisverðum rannsóknaverkefnum á atferli nytjafiska. Hann kom á sínum tíma að fundi hverastrýtanna í Eyjafirði og tók ótrúlegar myndir af þeim sem hafa verið sýndar í sjónvarpi og blöðum og tímaritum. Erlendur hefur líka kafað niður að skipsflök- um og svo mætti áfram telja. Um þessar mundir vinnur hann hörðum höndum að því að koma miklum fjölda ljós- mynda og myndbanda sem hann hefur tekið í gegnum tíð- ina á það form að hver sem er geti skoðað efnið á heimasíðu hans. „Það má eiginlega segja að ég hafi farið út í köfunina þegar ég var á milli starfa. Þetta var árið 1994 og þá var í gangi töluverð ígulkeraplága hérna í Eyjafirði. Við köf- uðum eftir nokkrum ígulker- um og fórum með þau vestur í Stykkishólm þar sem var fyr- irtæki á þeim tíma sem vann ígulker. Þar var þá staddur Japani, fulltrúi þarlends fyr- irtækis sem keypti íslensk ígulker, sem var mjög hrifinn af gæðum ígulkeranna úr Eyjafirði. Hann sendi í fram- haldinu fjóra bandaríska ígul- kerakafara til landsins og í rúman mánuð var ég leið- sögumaður fyrir tvo þeirra. Eitt leiddi af öðru og ég fór að kafa í auknum mæli eftir ígulkerum, gerði það í nokkr- um mæli í tvö til þrjú ár. Einn daginn hóf ég störf sem rann- sóknamaður hjá Hafrann- sóknastofnunnini á Akureyri og í framhaldinu vann ég að ýmsum köfunarverkefnum hjá Hafró, m.a. mikið með Karli Gunnarssyni.“ Varð fljótt heltekinn af köfuninni „Ég tók atvinnuköfunarrétt- indi árið 1997 og hafði fram að þeim tíma fyrst og fremst verið að prófa þetta eins og hver annar – frá 1994. Miðað við margan annan byrjaði ég frekar seint að kafa. Flestir byrja að kafa um eða innan við tvítugt og hætta köfun um fertugsaldurinn. Um leið og ég fór að kynnast köfuninni varð ég heltekinn af henni og síðan dró ekki úr áhuganum að fá fljótlega tækifæri til þess að fara í rannsóknaköfunina og kynnast um leið fræðunum og lífríkinu. Ekki var verra að njóta handleiðslu Karls Gunn- arssonar, sem hefur kafað í um fjóra áratugi og er því með gríðarlega reynslu. Við köfuðum víða saman – t.d. við Surtsey og nýja hraunið í Vestmannaeyjum. Þessi rann- sóknaköfun gerði það að verkum að maður fékk fljót- lega tækifæri til þess að kafa á svæðum þar sem enginn hafði áður kafað. Það ýtti að sjálfsögðu undir áhugann.“ Góður köfunarbúnaður fyrir 250 þúsund Erlendur segir að venjulegur útbúnaður kafara sé ekki svo óskaplega dýr. „Það er hægt að fá mjög góðan köfunar- búnað fyrir um 250 þúsund krónur. En þegar er komið út í atvinnuköfun er nauðsynlegt að eiga líka myndbandstöku- vél, myndavél, suðubúnað, aðflutt loft, talsamband o.fl. Allur þessi búnaður er tölu- vert dýr – hleypur á nokkrum milljónum króna.“ Erlendur segir að í raun sé það ekki háð ströngum skil- yrðum að fá að kafa. „Hver sem er getur í rauninni labb- Löngum stundum undir yfirborði sjávar - spjallað við Erlend Bogason, atvinnukafara Steinbítur að bíta á agnið í Þistilfirði. Stundum eru þorskarnir rauðir, en þessi þorskur í Þistilfirði er óvenju rauður, eiginlega eins og karfi!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.