Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.11.2007, Qupperneq 34

Ægir - 01.11.2007, Qupperneq 34
34 N Á M Laugardaginn 8. desember sl. voru útskrifaðir í Vestmanna- eyjum 28 nemendur með svo- kallað „pungapróf“, sem gefur réttindi til skipstjórnar á bátum allt að 30 rúmlestum að stærð. Námið er afrakstur samstarfs Visku – Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar Vest- mannaeyja og Framhaldsskól- ans í Vestmannaeyjum. Um er að ræða nám sem er kennt utan hefðbundins kennslutíma. Námið hófst í byrjun nóvember og var keyrt stíft í röskan mánuð. Því lauk síðan með prófi í Vestmanna- eyjum, en 15 af nemendunum voru heimamenn í Eyjum en 13 nemendur komu af Eyja- fjarðarsvæðinu – Akureyri, Dal vík og Árskógsströnd og fengu þeir kennsluna í gegn- um fjarfundabúnað, sem var staðsettur á Dalvík. Í þessu námi er lögð áhersla á siglingafræði og að sigla í hermi. Einnig er farið í siglingareglur og vélfræði, siglingatækni, slysavarnir, sjó- hæfi og veðurfræði. Sigurgeir Jónasson, deild- arstjóri skipstjórnardeildar Framhaldsskólans í Eyjum, er einn þeirra sem kenndi á námskeiðinu. Hann segist vera mjög ánægður með að- sókn að námskeiðinu, en hún skýrist að hluta af því að um áramót taka nýjar reglur gildi um þetta nám. Eftir 1. janúar 2008 miðast pungaprófið ekki við 30 rúmlestir, heldur lengd bátanna. Fyrir vikið fái menn minni réttindi út úr punga- prófinu eftir breytinguna. Sigurgeir sagði námið hafa gengið prýðilega. „Við höfð- um áður verið með nemend- ur af Norðurlandi vestra í fjar- námi og það tókst ljómandi vel. Það sama var uppi á ten- ingnum núna. Þó svo að norðanmennirnir tækju stóran hluta námsins í fjarnámi lögð- um við á það áherslu að þeir kæmu hingað líka og nytu kennslu í siglingafræði, sigl- ingahermi og fjarskiptum. Síðan tóku menn prófið hér í lok námsins,“ segir Sigurgeir. Þrettán Eyfirðingar tóku námskeiðið. Þarna má m.a. þekkja Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóra og annan tveggja aðaleigenda Samherja og Matthías Matthíasson, söngvara Papanna. Þá eru þarna tveir svarfdælskir bændur – Arngrímur Baldursson og Gunnsteinn Þorgilsson. Myndir: Óskar P. Friðriksson/Vestmannaeyjum. Viska og Framhaldsskóli Vestmannaeyja: 28 luku pungaprófi Eina konan í hópnum að þessu sinni – Margrét Lilja Magnúsdóttir, líffræðing- ur. Nú er Matthías Matthíasson í Pöp- unum orðinn löggiltur í að syngja sjó- mannalög. Nú er hann sumsé kominn með skipstjórnarpróf upp á vasann! Tvennir feðgar tóku pungaprófið – annars vegar Páll Marvin Jónsson, bæjarfulltrúi í Eyjum og sonur hans Jón Marvin Pálsson og hins vegar Jón Ingi Sveinsson, bygg- ingameistari á Árskógsströnd og sonur hans Einar Oddur Jónsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.