Ægir

Volume

Ægir - 01.11.2007, Page 17

Ægir - 01.11.2007, Page 17
17 svæði út af Reykjanesi og Háfadýpið austan við Vest- mannaeyjar. Betur má þó ef duga skal.“ Lengjum úthaldið Hver leiðangur á Árna Frið- rikssyni er að jafnaði þriggja til fjögurra vikna úthald. „Oft eru þetta rétt rúmar tvær vik- ur, við erum að minnsta kosti sjaldan skemur en tvær vik- ur,“ segir Guðmundur sem er með fimmtán manns í áhöfn. Þar við bætast vísindamenn sem oft er fimm til tíu manna hópur en raunar ræðst fjöld- inn alfarið af verkefnum hvers leiðangurs. „Hér um borð er alltaf fiskifræðingur með aðstoð- armenn, sem meðal annars sitja yfir fiskileitartækjum og öðrum búnaði og fylgjast með, til dæmis ef sést til lóðninga. Vísindamennirnir sinna fjölmörgum verkefnum öðrum svo sem sýnatöku og slíku, meðal annars í sam- vinnu við sjómennina um borð. Þegar við erum í vist- fræði- og sjórannsóknum eru sérfræðingar á því sviði um borð og síðan eru allt að tíu manns í hvalatalningunni og standa vaktina hér í brúnni og uppi í turni. Úthaldið hjá okkur á ári hverju eru um það bil 190 til 200 dagar en þeim þarf nauðsynlega að fjölga. Mér þætti eðlilegt að við værum úti svo sem 300 daga, enda eru mörg brýn verkefni sem þarf að sinna.“ Gjörþekktum grynningarnar Guðmundur Bjarnason segir þau 31 ár sem hann hefur verið á skipum Hafrann- sóknastofnunar hafa verið af- skaplega skemmtilegan tíma, enda verkefnin fjölbreytt. Margt sé minnisstætt, enda þótt sumt rísi hærra en ann- að. H A F R A N N S Ó K N I R Skipstjórinn á útkíkki. „Mér hefur fundist afskaplega gaman að vinna með þessum vísinda - mönnum enda gefur það manni skemmtilega sýn á hlutina.“

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.