Ægir - 01.11.2007, Síða 27
27
F I S K I B Ó K
Á síðasta ári kom út bókin IMA-
GES of FISHERMEN: The North
Atlantic, sem gefur afar
skemmtilega sýn á fiskveiðar í
Norður-Atlantshafi – ekki síst
með augum ljósmyndarans
Mariu Olsen, en einnig skrifa
þeir Menakhem Ben-Yami og
Búi Tyril, sem er eiginmaður
Mariu, stórskemmtilegan og
fróðlegan texta bókarinnar. Full-
yrða má að hér er um að ræða
einstaka bók um fiskveiðar við
norðanvert Atlantshaf. Bókin var
gefin út í fyrra, en fæst nú hér á
landi í verslunum Pennans.
Lifandi myndir
Í IMAGES of FISHERMEN er
leitast við að varpa ljósi á
leiðandi fiskveiðiþjóðir við
norðanvert Atlantshaf. Bókin
veitir innsýn í fiskveiðar Fær-
eyinga, Hjaltlandseyinga, Ís-
lendinga og Grænlendinga.
Myndir Mariu Olsen, sem eru
um 200 talsins í bókinni, eru í
senn lifandi og magnaðar.
Hún hefur greinilega nálgast
viðfangsefnið af sérstakri
næmni. Sýnir lesandanum
mismunandi veiðiskip – t.d.
botnfiskveiðar, uppsjávarveið-
ar, net- og línuveiðar.
Búi Tyril skrifar yfirlitskafla
um sögu fiskveiða fjögurra
áðurnefndra eysamfélaga í
Norður-Atlantshafi og fisk-
veiðiráðgjafinn Menakhem
Ben- Yami, sem meðal annars
hefur starfað á vettvangi Sam-
einuðu þjóðanna að fiskveiði-
málum og hefur skrifað ótelj-
andi fjölda fræðigreina um
fiskveiðistjórnun, skrifar fræði-
rit gerð í þessa bók um fisk-
veiðistjórnun samtímans með
áherslu á færeyska fiskveiði-
stjórnunarkerfið.
Ljósi varpað á sjómennskuna
Í inngangsorðum bókarinnar
segir Maria Olsen að þegar
hún kom til Færeyja fyrir
nokkrum árum hafi hana
undrað að fiskveiðum hafi
ekki verið gerð viðhlítandi
skil á bók og þannig sé unnt
að sýna fólki sem býr í stór-
borgunum þá sögu sem býr
að baki þess að það fær fisk-
inn úti í næstu búð. Maria
ákvað sjálf að ráða bót á
þessu og umrædd bók er af-
rakstur þeirrar ákvörðunar.
Maria rifjar upp að hún sé og
hafi á vissan hátt verið tengd
fiskveiðum og lífi sjómanns-
ins. Afi hennar, Færeying-
urinn Sámal Jacob Olsen, var
skipstjóri og gerði út eigin bát
árum saman. Á árum síðari
heimsstyrjaldarinnar var hann
einn af þeim sem lagði sig í
ómælda hættu við að flytja
þorsk frá Íslandsmiðum til
Bretlands. Margir urðu að lúta
í lægra haldi fyrir ógnum
stríðsins, sem kunnugt er.
Þetta voru sannkallaðar
háskaferðir.
Þrátt fyrir alla tækni dags-
ins í dag og þægindi um borð
í mörgum fiskiskipum, að
minnsta kosti í samanburði
við það sem eitt sinn var, seg-
ir Maria Olsen að fiskveiðar
séu ennþá hættuspil „og sjó-
menn eru ennþá löngum
stundum víðs fjarri sínum
nánustu. Ég hafði áhuga á því
að varpa ljósi á hvernig líf
það er nú til dags að starfa
um borð í fiskiskipum og
deila reynslu minni með öðr-
um,“ segir Maria.
Myndirnar í bókinni tók
Maria á árunum 2005 og
2006. Hún leitaði víða fanga
– hér á Íslandi myndaði hún
um borð í línuskipum frá
Grindavík. En hún sýnir einn-
ig um borð í skip og báta í
Færeyjum, Grænlandi og
Hjaltlandseyjum.
Maria Olsen gaf Ægi góð-
fúslegt leyfi til þess að birta
nokkrar myndir úr þessari
mögnuðu bók og má sjá þær
á næstu síðum.
Ljósmyndir í bókinni tók atvinnuljósmyndarinn Maria Olsen.
Sjómannslíf, sjómannslíf!
- gluggað í athyglisverða bók um fiskveiðar í Norður-Atlantshafi
– svipmyndir frá Íslandi, Grænlandi, Færeyjum og Hjaltlandseyjum
Höfundar texta bókarinnar, Búi Tyril og Menakhem Ben-Yami.
Kápa bókarinnar IMAGES of FISHER-
MEN: The North Atlantic.