Ægir

Årgang

Ægir - 01.11.2007, Side 56

Ægir - 01.11.2007, Side 56
56 RE m.a. til veiða í Barentshafi og við Máritaníu en á báðum stöðum var aflanum landað í verksmiðjuskipið Norglobal. Óskar segist ekki hafa tekið þátt í því úthaldi, heldur hafa farið í Stýrimannaskólann árið 1971 og þaðan lauk hann námi 1974. ,,Ég hafði reyndar áður verið á nokkrum öðrum skip- um en Óskari Halldórssyni, s.s. Gullfossi á árunum 1968 til 1969 og á meðan ég var í skólanum fór ég í túra með Reykjafossi og Mánafossi. Þegar ég útskrifaðist fór ég á Akraborgina sem fyrsti stýri- maður. Það háði mér mjög mikið í sjómennskunni á fiskiskipunum að ég jafnaði mig aldrei eftir slysið á Siglu- firði. Ég átti erfitt með gang og fiskimennskan var það erf- itt starf að það hentaði mér betur að vera á annars konar skipum. Ég kunni mjög vel við mig á Akraborginni. Ég varð fljótlega afleysingaskip- stjóri og síðan fullgildur skip- stjóri og einn helsti kosturinn við starfið var að maður kynntist mörgu skemmtilegu fólki. Starfið gat reyndar verið erfitt á veturna og ég get ekki varist því að vorkenna þeim sem koma til með að manna nýjan Herjólf og þurfa að sigla um sandana við Bakka- fjöru í vitlausum veðrum. Ég skil ekki af hverju menn taka ekki af skarið og gera þarna alvöru stórskipahöfn. Það væri gráupplagt að hafa höfn- ina aðeins vestar og setja þar niður álver sem gæti tekið þátt í að kosta hafnargerðina. Síðan mætti setja upp raf- magnsjárnbraut á milli Bakka- fjöru og höfuðborgarsvæð- isins og láta hana fara um Grindavík. Þá kæmist sömu- leiðis fljótlega á lestartenging við Keflavíkurflugvöll. Með því að byggja stórskipahöfn á þessum stað og flytja varning þaðan til höfuðborgarsvæð- isins þá væri hægt að stytta siglingarleiðina frá Bretlandi eða meginlandi Evrópu um 240 sjómílur. Þá er ég að tala um þann spöl sem sparast í siglingum fram og til baka. Afi heitinn sá þennan mögu- leika á sínum tíma en hans hugmynd var reyndar sú að uppskipunarhöfn yrði gerð við Dyrhólaey.” Óskar hætti á Akraborginni ásamt öðrum í áhöfninni, alls um 36-37 manns, þegar Hval- fjarðagöngin voru tekin í notkun árið 1998. ,,Það var búið að segja okkur upp með sex mánaða fyrirvara þannig að í raun varð okkar starfslokasamning- ur aðeins einn dagur eftir að Akraborginni var lagt. Mér og öðrum voru boðin störf við göngin en ég ákvað að af- þakka það þar sem ég var ekki lærður til að selja miða í jarðgöng. Ég hafði verið bú- settur á Akranesi á meðan ég var á Akraborginni en eftir að Hvalfjarðagöngin leystu skip- ið af hólmi þá ákváðum við hjónin að flytja til Hafnarfjarð- ar. Þar með var ég kominn aftur heim því ég átti sem fyrr segir ættir að rekja til Hafn- arfjarðar og byrjaði auk þess minn búskap á Smyrlahraun- inu.” Eftir að Akraborginni var lagt leysti Óskar af um skeið á olíuskipunum en hann segir að hugur sinn hafi staðið til að komast að hjá veiðieftirlit- inu en af því hafi ekki orðið. Veiddum af kamarþakinu fyrir neðan frystihúsið Óskar hefur frá blautu barns- beini verið mikill áhugamað- ur um alls konar veiði og hann var ekki gamall þegar hann byrjaði að veiða á stöng eða með öðrum óhefðbundn- ari hætti. ,,Ég var alltaf veiðandi sem krakki. Það gekk sjóbirtingur í Lækinn hér í Hafnarfirði og þar veiddi maður uppi við rafstöðina eða niður við sjó þar sem Einarsbúð er. Lands- lagið hefur breyst svo mikið með landfyllingum að yngra fólk áttar sig örugglega ekkert á því hvað ég er að segja. Þá gat ég staðið allan daginn við affallið úr Flygeringsfrystihús- inu, þar sem blóðvatnið rann út í sjóinn, og þar kom ég mér fyrir ofan á affallsrörinu og stakk upp þá fiska sem sóttu í úrganginn. Aflann seldi ég í Mjöl & lýsi þar sem hann fór í bræðslu. Með því móti átti maður alltaf fyrir bíómið- um. Versti veiðiskapurinn, sem ég lenti í á þessum upp- vaxtarárum, var þegar við félagarnir veiddum ofan af kamrinum sem var fyrir neð- an frystihúsið. Eitt skipti urðu einhverjar stimpingar á kam- arþakinu og einn félagi minn datt niður í fjöruna og lær- brotnaði. Það er versta veiði- ferð sem ég man eftir að hafa farið í.” Leiðin lá víðar. Óskar var jafnan í sveit á sumrin. Þegar hann var 7 eða 8 ára gamall var hann í sveit á Reykjum í Miðfirði. ,,Ég gerði mér það til gam- ans að fylgjast með veiði- mönnum sem voru við lax- veiðar fyrir neðan túnin eða engjarnar sem tilheyrðu Reykjum. Ég tók eftir því hvar laxinn tók en sjálfur veiddi ég aðeins urriða í Urriðaánni sem rennur í Miðfjarðará. Okkur krökkunum var hins vegar alveg bannað að reyna við laxinn í ánni. Eitt sinn, þegar ég var á engjunum, sá ég hvar maður og kona komu á mikilli glæsikerru. Karlinn fór að munda stöngina en konan breiddi undir sig teppi á bakkanum og fylgdist með. Ég sá strax að maðurinn var ekki á réttum stað og gat ekki stillt mig um að benda frúnni á það hvar vænlegast væri að reyna. Hún hnippti í bónda sinn og sagði honum hvað barnið hafði sagt. Hann fór að þessum ráðum og fékk fjóra laxa í beit. Þegar mað- urinn var búinn að setja þá í skottið, kallaði konan á mig og gaf mér stærsta laxinn. Hann var svo stór að ég þurfti að draga hann heim á bæinn. Sporðurinn var reyndar orð- inn ónýtur þegar þangað kom og fyrst hélt húsfreyja að ég hefði stolist í ána. Ég gat hins vegar skýrt út fyrir henni hvað hafði gerst og laxinn var hafður í matinn.” Bleikjuaflinn fyllti heila kerru Þegar Óskar var á að giska 11 ára gamall, vann hann á síld- arplaninu hjá föður sínum á Raufarhöfn. Það sumar tók hann vatn á leigu á Melrakka- sléttu og stundaði þar neta- veiðar. ,,Ég borgaði bóndanum, V I Ð T A L Lengi var Óskar í brúnni á Akraborginni. Hér siglir hún út úr höfninni á Akranesi.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.